Morgunblaðið - 09.02.2017, Side 92
92 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Ég er fæddur og uppalinn vestur í Bolungarvík og hef ávallt veriðmikill sveita- og náttúruáhugamaður,“ segir Bjarni Benedikts-son, framkvæmdastjóri Iceland Seafood ehf., sem á 60 ára af-
mæli í dag. „Ég var í sveit á Miðdal hjá föðurbróður mínum Birgi og
Karitas konunni hans. Þar var mitt annað heimili. Fór svo í Bændaskól-
ann á Hvanneyri, ætlaði að verða bóndi en flutti til Reykjavíkur og
ílentist í störfum tengdum fiskútflutningi. Rak m.a. eigið
fiskútflutningsfyrirtæki um árabil.“
Helstu áhugamál Bjarna eru tengd sveitinni og náttúrunni og eru
hestamennska, veiði, fjallgöngur, skíði og lífið sjálft. „Svo fer ég árlega
í göngur norður í Skagafjörð og er gangnamaður fyrir vin minn Agnar
bónda og oddvita á Miklabæ.“
Sambýliskona Bjarna er Bjarnveig Eiríksdóttir lögmaður. „Við eigum
samtals fjögur börn og stjúpbörn. Ég á Auðbjörgu og Benedikt og stjúp-
soninn Hreggvið og Bjarnveig á Hólmfríði. Barnabörnin eru orðin 6.
Við erum ásamt góðum vinum okkar með hesthús og nokkra hesta á
Kjóavöllum í Kópavogi og búum þar rétt hjá. Ég nýt þess að fara í hest-
húsið og fara á bak og í útreiðar eins oft og færi gefst. Ég veit fátt
skemmtilegra en að vera vel ríðandi um landið í góðra vina hópi. Hef
farið í lengri og skemmri hestaferðir árlega í 40 ár í góðum félagsskap.
Ég stefni á að fagna afmælinu í áföngum á árinu. Ætla að byrja á
skíðaferð með skíðahópnum okkar. Svo er í undirbúningi hestaferð á
Löngufjörur í vor, einnig til að fagna afmælinu. Svo er aldrei að vita
hvað fleira verður á dagskrá með hækkandi sól.“
Hjónin Bjarni og Bjarnveig í hestaferð í Borgarfirði.
Fór í Bændaskólann
en lenti í fiskinum
Bjarni Benediktsson er sextugur í dag
V
aldimar Örnólfsson
fæddist á Suðureyri í
Súgandafirði 9.2. 1932.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1953,
íþróttakennaraprófi frá
Íþróttakennaraskólanum á Laug-
arvatni 1954, íþróttafræðiprófi frá
Íþróttaháskólanum í Köln 1956,
prófi í frönsku og frönskum bók-
menntum frá Háskólanum í Gren-
oble í Frakklandi 1957 að und-
anförnu frönskunámi við HÍ og
háskólana í Köln og Grenoble.
Valdimar var íþróttakennari við
MR 1957-67 og kenndi frönsku við
sama skóla 1958-72. Hann stjórnaði
og kenndi leikfimi í Ríkisútvarpinu á
árunum 1957-82 og var íþróttastjóri
Háskóla Íslands frá 1967 og þar til
hann fór á eftirlaun.
Valdimar stofnaði Skíðaskólann í
Kerlingarfjöllum 1961, ásamt Eiríki
Haraldssyni, og stjórnaði honum
meira og minna fram að aldamótum
2000, þegar loka varð skólanum
vegna snjóleysis.
Valdimar lék Harald í Skugga-
Valdimar Örnólfsson, fyrrv. íþróttastjóri HÍ – 85 ára
Í tilhugalífinu Valdimar og Kristín, ung að árum, stödd á Snækolli í Kerlingafjöllum á því herrans ári 1962.
Vakti þjóðina með
morgunleikfimi í 25 ár
80 ára afmælið Valdimar og fjölskylda í Hlíðarfjalli fyrir fimm árum.
Hafnarfjörður Eva Noría
Konstantinsdóttir, fæddist í
Reykjavík 1. febrúar 2016. Hún vó
3.826 g og var 51,5 cm löng. For-
eldrar hennar eru Katrín Glóey
Viktorsdóttir og Konstantin
Tihomirov.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isLaugavegi 178, sími 540 8400.
Viltu bæta tungumálakunnáttuna
Enska v Danska v Norska v Sænska v Þýska v Franska v Spænska
Við bjóðum upp á staðnám eða fjarnámi
í tungumálum, þar sem nemendur fá
vandað les- og hlustunarefni þar sem
nemendur geta æft sig daglega.
Þú hlustar, lest og talar og orðaforðinn
í talmáli þínu eykst um allt að 75%
meira en í hefðbundnu námi.