Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 95
DÆGRADVÖL 95
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Við leitum að
listaverkum
Síðustu forvöð að koma með
listaverk á næsta listmunauppboð
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri
myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson,
Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, louisu
matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar
Guðnason og Nínu tryggvadóttur.
ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum
Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs
Blöndal og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16
Sýning í Gallerí Fold
Síðasta sýningarhelgi
sveitungar
magnús Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér líður vel og berð það með þér.
Ef þú slakar aðeins á eru miklu meiri líkur
á að þú dettir niður á langþráða lausn.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er mögulegt að snúa göllum
þínum upp í kosti. Misjafnar skoðanir
munu takast á í dag. Bíddu í nokkra daga
með að ræða það sem er mikilvægt fyrir
þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ekki bíða eftir fullkomnum að-
stæðum til að halda áfram. Komdu jafn-
vægi á málin svo þú getir komið einhverju
í verk. Nú er rétti tíminn til að hreyfa sig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sýndu skilning þegar náinn vinur
færist undan að svara spurningum þínum.
Fyrir því liggja vissar ástæður sem þú
munt fá að vita í fyllingu tímans.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur ástæðu til að vera hikandi
varðandi eitthvað í vinnunni eða prívatlíf-
inu. Stuttar ferðir, samræður við ættingja,
lestur og skriftir, verslun og viðskipti taka
tíma þinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að vera reiðubúinn að
beita þínum innri styrk gegn tilfinningum
og ásókn annarra. Hluta af þér líður eins
og barni, og sá hluti vill koma út.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er gott að þiggja aðstoð annarra
þegar mikið liggur við en gleymdu ekki að
þakka hana þegar allt er afstaðið. Vertu
því sanngjarn og réttsýnn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert þreyttur og áhugalaus
á öllum sviðum og þarft að gera eitthvað
til að breyta því. Gangi þér vel. Vinnan
göfgar manninn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gættu þess vel sem þú vilt
ekki að aðrir komist yfir. Orkan sem þú
leggur í það sem þú fæst við er líf þitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Varaðu þig á því að festast í
einhverju leiðindafari. Reyndu að forðast
árekstra og láttu mikilvægar samræður
bíða betri tíma.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert engu bættari þótt þú
hafir síðasta orðið í deilum við kunningja
þína. Breyttu um aðferð og vertu ögn þol-
inmóðari í framsetningu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Yfirmaður þinn eða yfirboðari er til-
búinn að ræða ýmis óvissuatriði. Hafðu því
jafnan borð fyrir báru.
Kristján Eiríksson Skagfirð-ingur og íslenskufræðingur
sendi mér skemmtilegan tölvupóst:
„Hér á eftir fara nokkrar kosn-
ingavísur frá ýmsum tímum kveðn-
ar undir hætti þeim er sauðsháttur
nefnist. Eru megineinkenni hans
þau að þegar skáldið hefur ort
fyrripart vísu þrýtur það andríkið
og verður að grípa til seinniparts
(eða fyrriparts) sem einhver annar
hefur áður kveðið. Elstu vísurnar
eru ortar fyrir alþingiskosningarn-
ar 2007 en tvær þær síðustu fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar 2014.
Í vísunum er(u) kjósandi (kjós-
endur) að reyna að átta sig á eigin-
leikum og stefnumálum flokkanna
og sjá hver býður best og hefur
þekkilegasta stefnuskrá. Eftir
fyrstu könnun hallast höfundur
(höfundar) helst að eftirtöldum
flokkum og eru niðurstöðurnar
settar hér fram í eftirfarandi vís-
um:
Hjá vinstri grænum bið um brauð,
bregst ei listugt smjaður.
„Svona er að vanta veraldarauð
og vera drykkjumaður.“
Þótt framsókn missi fé og hold
finn ég mitt skjólið þarna
„meðan gróa grös í mold
og glóir nokkur stjarna.“
Og íhaldið kýs ég, elskan mín,
ó, hve það fagurt syngur:
„hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur.“
Styð ég þig sæla samfylking,
síst er það út í bláinn
„þegar allt er komið í kring
kyssir torfa náinn.“
Frjálslyndra ég fylli hjörð
frækn í snörpum brýnum.
„Því er alltaf einhver hörð
arða í skónum mínum?“
Framtíð björt mót sumri og sól
seiðir líkt og guðinn Bragi.
„Engir hemlar ónýt hjól,
allt í þessu fína lagi.“
Pírata er geðið grand,
gott hjá þeim að dreyma.
„Nú er horfið Norðurland,
nú á ég hvergi heima.“
Skemmtilegt væri að fá sendar
fleiri vísur undir sauðshætti.
Páll Imsland hefur áhyggjur af
„sunnudagsheilsunni“ og biður
Leirlið að vera kátt í messulokin:
Það er fiskur í fljótinu Kálfá,
sem Friðmundur búandi hálfá á.
Á mótı́ honum býr
einn makalaus fýr
og helming sá bölvaður bjálfı́ á.
Halldór Blöndal
halldórblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kosningavísur
undir sauðshætti
Í klípu
„ÉG LÝSI YKKUR ÞÁ HJÓN. ÞÚ MÁTT
SENDA SMS Á KONUNA ÞÍNA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ VORUM Á SAFNINU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... full af von
HVERSDAGS
FÖSTUDAGUR
HEPPNI
EDDI…
HVAÐ ER ÞÉR
EFST Í HUGA
Í DAG?
BARA SAMI HATTURINN OG
ÉG ER ALLTAF MEÐ, STJÓRI…
VONA AÐ ÉG SJÁI
ÞIG FLJÓTT!
Víkverji rakst á „gamlan vin“ umdaginn í formi tölvuleiksins
Minesweeper. Víkverji eyddi ófáum
dauðum stundum í æsku sinni í þeim
leik, sem gengur í stuttu máli út á það
að hreinsa jarðsprengjusvæði án
þess að springa sjálfur. Einu vís-
bendingarnar sem spilarinn fær eru í
formi tölustafa frá 1-8 sem segja hon-
um hversu margar sprengjur eru í
nánd.
x x x
Ekki leið á löngu áður en Víkverjivar enn á ný kominn á fullt í
„hreinsunina“, að vinstrismella þar
sem hann hélt að engin sprengja
leyndist og merkja meintar sprengj-
ur með hægri. Víkverji er greinilega
kominn vel úr æfingu, því að enn sem
komið er hefur ekkert gengið hjá
honum að hreinsa öll þessi „jarð-
sprengjusvæði“. Alltaf nær Víkverji
að ýta á rangan blett. Game over.
x x x
Þegar leikurinn er spilaður á erfið-asta stigi er auðvelt að komast í
hann krappan. Þegar Víkverji var
kominn á fullt í enn eina baráttuna
tók hann eftir því að honum mættu
ekkert nema 3 eða 4, og stöku fimma
hér og þar. Til þess að endurorða
þetta á mannamáli var Víkverji kom-
inn í töluverð vandræði. Hið ofvirka
ímyndunarafl hans sá síðan til þess
að í huganum var Víkverji að þræða
einhvern frumskóginn í Víetnam að
leita að þessum „Charlie“. Það var í
það minnsta skárra en raunveruleik-
inn; fölleitur þybbinn karlmaður að
sóa tímanum fyrir framan tölvuskjá.
x x x
Það versta við Minesweeper er ein-faldlega það hvað hann er ávana-
bindandi. Fyrir tölvuleik með enga
grafík og ófjölbreytta spilun hefur
Minesweeper reynst merkilega lang-
lífur. Á netinu er meira að segja hægt
að sjá heilu og hálfu heimasíðurnar
sem tileinkaðar eru þessum leik, þar
sem menn keppast við að leysa þraut-
irnar sem sneggst. Það er meira að
segja til heimsmeistari í þessari „göf-
ugu íþrótt“! Sú staðreynd fær Vík-
verja til þess að íhuga enn og aftur
hvað hafi eiginlega farið úrskeiðis í
lífi sínu. Af hverju þarf hann að vera
svona normal? vikverji@mbl.is
Víkverji
Biðjið, og yður mun gefast,
leitið og þér munuð finna,
knýið á og fyrir yður mun upp lokið
verða. Matt. 7:7