Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 105

Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 105
MENNING 105 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017 Sváfnir Sigurðarson og drengirnir af upptökuheimilinu halda útgáfu- tónleika í Gamla bíói í kvöld kl. 20.30. Á þeim verður fagnað út- gáfu fyrstu sólóplötu Sváfnis, Lof- orð um nýjan dag, sem kom út í desember í fyrra og hefur hlotið prýðilegar viðtökur, m.a. hjá gagn- rýnandanum Arnari Eggerti Thor- oddsen. Drengirnir af upptökuheimilinu eru Eðvarð Lárusson, Kristján Freyr Halldórsson, Pálmi Sig- urhjartarson, Tómas M. Tómasson og Haraldur V. Sveinbjörnsson en einnig munu félagar í Drengjakór íslenska lýðveldisins taka lagið. Sváfnir gefur plötuna út sjálfur og hefur hún að geyma níu lög þar sem melódramatíkin er aldrei langt undan og yrkisefnin jafn ólík og lögin eru mörg, eins og því er lýst í tilkynningu. „Sváfnir hefur komið víða við í tónlist, ýmist sem flytjandi eða höf- undur. Fyrst með hljómsveitinni KOL sem sendi frá sér geisladisk- inn Klæðskeri keisarans árið 1994. Sváfnir var um tíma meðlimur í dönsku hljómsveitinni Quite Frankly í og er annar söngvara og lagahöfunda í hljómsveitinni Menn ársins sem sendi frá sér geisladisk árið 2008. Sváfnir hefur samið tón- list við leiksýningar og stutt- myndir svo fátt eitt sé nefnt,“ seg- ir í tilkynningunni. Sváfnir og drengirnir fagna útgáfu Fögnuður Sváfnir og félagar halda útgáfutónleika í kvöld í Gamla bíói. Íblábyrjun þessarar aldarskrifaði ungskáld nokkurtbréf til austurríska ljóð-skáldsins Rainer Maria Rilke og bað það um að ritrýna ljóð sín og ráða sér heilt. Í svari sínu ráðlagði Rilke skáldinu að líta sér næst í leit að yrkisefni og ef því virtist líf sitt hversdagslegt og innihaldslítið, óhentugt til að yrkja um, væri við engan annan en skáldið sjálft að sakast. Alvöru skáld þarf aldrei að skorta efnivið því þau hafa hæfileika til að koma auga á hið skáldlega og mikilfeng- lega í hversdeginum. Paterson fer að ráðum Rilkes og nær að galdra fram fegurðina í því lítilfjörlega. Paterson, að- alpersóna þessarar samnefndu myndar, vinnur sem strætóbíl- stjóri og mætti segja að hann sé eins konar holdgervingur þess hversdagslega. Hann er samt gríð- armikið ljóðskáld og sækir yrkis- efni sín í sitt fáskrúðuga daglega líf. Ljóðunum safnar hann í litla stílabók og sýnir engum nema sinni heittelskuðu Lauru. Verkefni skáldsins Patersons og kvikmyndarinnar Paterson er það sama, að búa til listaverk úr því ofurvenjulega: að fara í kvöld- göngu með hundinn, að vakna á morgnana eða að lesa utan á eld- spýtnastokk yfir morgunkaffinu. Myndin nýtir sér stílbrögð ljóðlist- arinnar í þessu verkefni. Líkt og ljóð, sem gjarnan fara í ákveðna hringferð, er byrjað og endað á sama stefinu. Þá eru endurtekn- ingar mikið notaðar, bæði í sam- tölum og í skotum, fólk endur- tekur sömu setningarnar og sömu rammarnir eru endurnýttir og þannig skapast ljóðræn hrynjandi. Persónugalleríið í myndinni er sérlega litríkt, en eins og Jar- musch-aðdáendur þekkja skarta myndir hans gjarnan fjölbreyttum og skemmtilegum aukapersónum og ættu þeir því ekki að verða sviknir. Samtöl aukapersónanna eru oft ísmeygilega kímin, ég hafði sérstaklega gaman af ungu anarkistunum í strætisvagninum, sem halda að þeir séu eina fólkið með viti í gervöllum Paterson-bæ. Þá sjáum við nokkrum þekktum einstaklingum bregða fyrir, þar á meðal rapparanum Method Man og japanska leikaranum Masatoshi Nagase, sem lék í Mystery Train eftir Jarmusch og Íslendingar ættu að þekkja úr mynd Friðriks Þórs, Á köldum klaka. Jarmusch er alræmdur fyrir að vísa í eigin myndir en með því skapar hann heildstæðan heim úr verkum sínum. Hér er engin und- antekning gerð, eygja má vísun í nýlega heimildarmynd hans Gimme Danger sem fjallar um hljómsveitina The Stooges, auk vísunar í The Limits of Control og líklega mætti tína til fleiri. Ég, líkt og margir sem á mót- unarárunum þyrsti í góðar kvik- myndir, hreifst snemma af verk- um Jarmusch og að sjá hann á RIFF 2010 var draumi líkast. Maður gerir því ákveðnar kröfur til hans en síðasta leikna mynd hans, Only Lovers Left Alive, olli mér ákveðnum vonbrigðum og var engan veginn á pari við það betra í höfundarverkinu. Sérgrein Jar- musch er að gera listrænar kvik- myndir um töffara og með þeirri mynd fór hann helst til langt í töffaraáttina en hér heldur hann lengra í listrænu áttina. Í myndinni er tíminn gerður að umfjöllunarefni, sem sést meðal annars í ljóði Patersons sem hefst á þessum línum: Þegar þú ert barn lærirðu að það eru þrjár víddir: hæð, breidd og dýpt. Eins og skókassi. Seinna meir heyrirðu svo af tilvist fjórðu víddarinnar: tímans. Reglulega er sýnt á armbandsúr Patersons og þar með vísar Jar- musch til úrsins í mynd Yasujiro Ozu, A Tokyo Story. Án þess að langyrða um gríðarflóknar kenn- ingar Gilles Deleuze er Paterson borðleggjandi dæmi um það sem hann kallaði „tímamyndina“, þar sem sérstök áhersla er lögð á tímavídd kvikmyndamiðilsins og tíminn er gerður áþreifanlegur. Sagan sjálf er frekar einföld, myndin gerist á einni viku í lífi Patersons og segir frá honum sjálfum og samferðarfólki hans. Hann gerir nokkurn veginn það sama á hverjum degi og er þessi daglega hringrás hans endurtekin með vissum tilbrigðum í hvert sinn. Myndin fjallar ekki um neina stóra viðburði heldur frekar um hið fallega og ljóðræna í hversdeg- inum og sýnir fram á að ekkert er leiðinlegt eða venjulegt, nema við ákveðum að svo sé. Þá eru það frekar persónurnar og ferðalag þeirra sem halda myndinni uppi en atburðarásin sem slík. Paterson er frábær kvikmynd, hún er trú þeim stíl sem sést í betri myndum Jarmusch en býður jafnframt upp á eitthvað nýtt og ferskt. Hún er ljóðræn (í orðsins fyllstu merkingu), fyndin og falleg og algjörlega ómissandi áhorf fyr- ir aðdáendur leikstjórans silfur- hærða. Ómissandi Paterson er algjörlega ómissandi áhorf fyrir aðdáendur Jim Jarmusch, að mati gagnrýnanda. Ást í eldspýtnastokki Bíó Paradís Paterson bbbbb Leikstjóri: Jim Jarmusch. Handrit: Jim Jarmusch. Ljóð: Ron Padgett. Stjórn kvikmyndatöku: Frederick Elmes. Klipp- ing: Alfonso Goncalves. Aðalhlutverk: Adam Driver og Golshifteh Farahani. 118 mín. Bandaríkin, 2016. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 13. mars. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 17. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 5.20 SÝND KL. 8, 10.10 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 8, 10.30 SÝND KL. 5.40 - ísl tal SÝND KL. 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.