Morgunblaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 64
Á móti þér tekur fallegur staður með
berum viðarborðum, dökkum, hrjúf-
um veggjum og margvíslegum ljósa-
gjöfum sem veita skemmtilegt yf-
irbragð. Viður í stólum og
skreytingum ásamt brúnum leð-
ursófa eftir endilöngum vegg og
brúnum gólfflísum gefur staðnum
hlýlegt yfirbragð. Matwerk var opn-
aður í lok nóvember síðastliðins. Ég
hringdi á föstudagskvöldi til að
panta borð, sem er vitanlega versti
mögulegi tíminn til að reyna að ná
sambandi símleiðis. Ég þarf kannski
ekki að taka það fram, en það hringdi
út. Matwerk tekur hins vegar líka við
pöntunum á Facebook svo ég sendi
skilaboð þar og fékk staðfestingu um
hæl.
Hönnun og andrúmsloft
Staðurinn leynir á sér, þar eru
sæti fyrir 85 manns á nokkrum pöll-
um. Úr hljóðkerfi staðarins streymir
þykkur bassinn í rokkaðri tónlist en
maður á að venjast á svona stöðum.
Kaleo og Ásgeir Trausti hljóma und-
ir borðum í bland við ýmsa erlenda
listamenn. Þó að tónlistin virki fyrst
um sinn eins og hún sé nokkuð hátt
stillt þá truflar hún ekki samræður
og lagalistinn, sem er samsettur af
starfsfólkinu sjálfu, virkaði bara vel.
Einfaldir sjófuglar setja svip sinn á
gríðarstóran vegg við innganginn og
fjöldinn allur af veggljósum and-
spænis þeim er skemmtileg útfærsla.
Raunar er öll lýsing staðarins til fyr-
irmyndar. Margra metra háir glugg-
arnir gera það að verkum að birtan
úti stýrir ljósinu að mestu en vel
staðsett og skemmtileg ljós hér og
þar gera mikið, ekki síst þegar fer að
dimma. Það er bjart á neðsta svæð-
inu hjá eldhúsinu, kokkarnir verða
auðvitað að sjá hvað þeir eru að gera,
en það vilja kúnnarnir líka. Efsta
svæðið er svo aftur dimmasti stað-
urinn í húsinu, enda er barinn þar.
Svartur og glæsilegur teygir hann
sig inn eftir rýminu endilöngu og þar
má setjast með drykk í sófa meðan
beðið er eftir borðinu, eða jafnvel til
að borða smárétti. Eini staðurinn
þar sem mér þótti birtan full mikil er
á salernunum, en það kemur ekki að
sök því þau eru snyrtileg, flísalögð að
hluta með svokölluðum subway-
flísum, þær sóma sér ágætlega þar
sem og í eldhúsinu, en þar njóta þær
sín vel.
Eldhúsið á Matwerk er ekki fyrir
spéhrædda. Það er alveg galopið og
meðfram löngum, háum bekknum
sem girðir það af eru nokkur mjög
skemmtileg borð, eins konar útsýnis-
borð fyrir þá matargesti sem vilja
fylgjast með kokkunum að störfum.
Það þarf sjálfstraust og yfirvegun til
að geta unnið í þessu eldhúsi því þar
er ekki hægt að fela neitt. Þarna
finna allir gestir hússins lyktina af
því ef eitthvað fer úrskeiðis og kokk-
urinn getur ekki bölvað, nema
kannski í hljóði.
Yfirkokkur á Matwerk er Stefán
Hlynur Karlsson, ungur kokkur sem
lærði sitthvað af því sem hann kann á
Fiskfélaginu. Stefán hefur haft „fus-
ion“-matargerð og íslenskt hráefni
meðferðis í eldhús sitt á Matwerk, en
matreiðslan hans er eins konar ný-
norrænn bræðingur. Nýnorræn
matargerð er auðvitað teygjanlegt
hugtak, og þó að eldhúsið á Matwerk
leggi ekki höfuðáherslu á stund og
stað, eins og kannski Dill og Matur
og drykkur gera, er vissulega mikið
um íslenskt hráefni í bland við annað
sem komið er lengra að. Eldhús Stef-
áns er metnaðarfullt. Þetta er ekki
hversdagslegur matur og það er fjöl-
breytt bragðflóra á hverjum diski.
Þarna eru réttir á borð við fiskisúpu
með kóngakrabba, dilli og mysingi,
humar með blómkáli og hunangi,
þorsk með smjörfroðu og gras-
kersgranóla, hamborgara með beik-
oni og mangó og hægeldað egg með
kúskús, jógúrt og súrum. Þessir rétt-
ir eru svo ýmist bornir fram á ker-
amikdiskum eða koparpottum og
-pönnum. Það er smekkleg og
skemmtileg leið til framsetningar.
Þegar þjónninn hefur tekið pöntun
ber hann til að mynda brauð á borð í
litlum og sætum koparpotti.
Brauðið er alveg ágætt. Þau kalla
það focaccia, þótt mér finnist það
hafa verið í þykkara lagi til að geta
talist flatbrauð. Deigið er þó vissu-
lega gert með ólífuolíu, frekar þétt,
með ánægjulegan keim af kúmeni og
ögn af timjan og því fylgir þeytt
smjör. Þetta smjör var það fyrsta
sem hristi upp í mér þetta kvöld. Það
er nefnilega sætt. Þegar ég spurði út
í þetta komst ég að því að smjörið er
þeytt með vanilluskyri! Eitt og sér,
verð ég að segja, bragðaðist smjörið
meira eins og fyrstu skrefin í smá-
kökudeigi, en með krydduðu brauð-
inu einfaldlega virkaði þetta og var
meira að segja frekar gott.
Veitingahúsa-
rýni: Matwerk
Við Laugaveg, rétt neðan við Snorrabraut, blasir
Matwerk við. Frá götunni séð er staðurinn mjög flottur
og stórir gluggarnir lýsa upp götuna með lokkandi
hætti. Orri Huginn Ágústsson lét lokkast, en hann er nýr
veitingahúsarýnir Matarvefs mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Brjálaður Bragðaref-
ur, syndsamlega góð-
ur ís úr brenndu
smjöri með súkkulaði
og lakkrís mylsnu.
Stjarna kvöldsins
Þessi réttur er nóg til að
réttlæta tilvist Mat-
werks og ég vona að
hann verði alltaf á mat-
seðlinum.
Matwerk
Matur bbbbn
Þjónusta bbbbn
Umhverfi bbbbm
Heildareinkunn bbbb
SJÁ SÍÐU 66
Klassík Tvenns
konar lambakjöt
var á diskinum,
innlærisvöðvi eld-
aður sous-vide auk
skanka sem var
virkilega góður.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2017
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni@hitataekni.is
hitataekni.is
Mótorlokar
fyrir allar stærðir kerfa.
Getum einnig boðið mótorloka
á allar algengustu gerðir loka
frá öðrum framleiðendum.
Gæðamótorlokar
frá Sviss
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali