Orð og tunga - 26.04.2018, Page 150
Stefanie Bade: Hvernig meta Íslendingar fólk með hreim? 139
þeirra hafi haft áhrif á matið, sérstaklega þegar gert er ráð fyrir þátt um
eins og samsömun og velvilja. Þess vegna væri ráðlegt og fróðlegt að
framkvæma svipaða könnun með karlkynsupplesurum.
Þegar litið er til aldurshópanna er greinilegur munur milli yngstu
hópanna beggja (18–44) og þeirra elstu (60+) þar sem þeir yngstu
meta upptökurnar, bæði með innfæddum og erlendum hreim, lægra
en hinir eldri. Þessar niðurstöður koma mikið á óvart að því leyti að
búist var við öfugum venslum samkvæmt vísbendingum úr fyrri
könn un um (sjá kafl a 2.2 og sbr. Bade og Isenmann væntanl., T. Kristi-
ansen 20067). Til þess að geta túlkað niðurstöðurnar er nauð syn legt að
átt a sig á því að íslenskt samfélag, líkt og fl est samfélög víða um heim,
hefur orðið fyrir gríðarlegum lýðfræðilegum breytingum, sem hafa
valdið því að það sem fyrrum var félagslega og málfarslega eins leitt
er nú fj ölmenningarlegt og fj ölmála samfélag. Þrátt fyrir þörf á inn-
fl ytjendum sem vinnuafl i svo og sívaxandi áhuga á Íslandi sem ferða-
mannastað og nýjum heimkynnum innfl ytjenda hefur þessi rótt æka
og skjóta umbreyting mögulega valdið óöryggi meðal inn fæddra.
Sam kvæmt tilgátum úr hagfræði hafa þeir sem búa við lítil efni til-
hneigingu til þess að vera minna umburðarlyndir gagnvart inn fl ytj-
endum (Paas og Halapuu 2012:5). Mynstur af því tagi er sérstaklega
áberandi í tekjuháum löndum (sbr. Mayda 2006). Samkvæmt þeim
til gátum er ástæðan fyrir því sú að samkeppni á vinnumarkaðnum
eykst með vaxandi fj ölda innfl ytjenda. Þar sem innfl ytjendur vinna
oft störf sem ekki krefj ast fagmenntunar eru meiri líkur á því að aðrir
sem vinna þau störf ali með sér neikvæð viðhorf til innfl ytjenda. Þar
af leiðandi er hugsanlegt að aukin samkeppni á vinnumarkaðnum og
harðari starfskröfur hafi það í för með sér að heimamenn upplifi ein-
hvers konar pressu, sem endurspeglast svo í viðhorfum til þeirra sem
tala með erlendum hreim og eru fulltrúar fyrir þessa pressu.
Þegar litið er á heildarniðurstöður fyrir allar átt a upptökurnar
virð ist koma í ljós að vestrænn hreimur sé að jafnaði tekinn fram yfi r
ann an, þ.e. austurevrópskan og asískan hreim. Svipaðar niðurstöður
7 Samanburður niðurstaðna þessarar könnunar og þeirra úr grímuprófi MIN-verk-
efnisins er takmarkaður. Það sem lá til grundvallar grímuprófi nu í MIN-verkefninu
var upplesinn texti í tveimur útgáfum og er önnur þeirra með rótgrónum ís lensk-
um orðum og hin með enskum tökuorðum. Tilgangur verkefnanna tveggja er því
nokkuð ólíkur að því leyti að MIN kannaði einstaka formþætt i tengda staðli og
frávikum en þessi rannsókn kannar röðun innan einhverrar samfellu byggðrar á
því hvort málhafar eru innfæddir eða erlendir. Aðferðafræðin er líka ólík því að
MIN notaði grímupróf en rannsóknin Dulin viðhorf notaði hulinspróf sem gerir
ráð fyrir yfi rsneiðarþátt um og framburði.
tunga_20.indb 139 12.4.2018 11:50:55