Orð og tunga - 26.04.2018, Blaðsíða 151

Orð og tunga - 26.04.2018, Blaðsíða 151
140 Orð og tunga komu fram hjá Lindemann (2005) þegar hún lét 208 nemendur á grunn námsstigi í bandarískum háskóla leggja mat á ensku talaða með hreim. Þegar hreimur var fl okkaður eft ir landsvæðum kom í ljós að mat á honum breytt ist eft ir því hversu langt svæðin voru frá Banda ríkjunum. Burtséð frá löndum með enskumælandi meirihluta, svo sem Bretlandi og Ástralíu, voru viðhorfi n neikvæðari með vax- andi fj arlægð frá Bandaríkjunum. Upplesarar frá Vestur-Evrópu fengu hærri einkunnir en þeir frá Mið-Evrópu eða Suður-Ameríku og Vestur-Evrópumenn fengu hærri einkunnir en málhafar frá Austur- Evrópu, Miðausturlöndum eða Asíu. Taka þarf þó tillit til þess að þátt tak endur í könnun Lindemann lögðu einnig mat á hversu rétt og þægi lega viðkomandi upplesari hljómaði og hversu vel þeir þekktu þá ensku sem hann talaði. Með það og niðurstöður þessarar könnunar í huga má hér halda því fram að tvískiptingin milli innfædds og er- lends tals, sem hefði einhvern tíma mátt nota til að lýsa íslensku mál sam félagi, sé ekki (lengur) gild. Þessi aðgreining kann að hafa vikið fyrir einhvers konar stigskiptu kerfi sem greinir milli innhóps (e. in-group), þ.e. íbúa vestrænna landa, og úthóps (e. out-group), þ.e. Austur-Evrópubúa og Asíubúa, og þett a kann að ráða mati á erlendu tali.8 Raunar styðja þessar niðurstöður ekki hina ströngu tvískiptingu í innfætt og erlent samkvæmt Moyer (2013:102) þar sem niðurstöður mats á íslenska upplesaranum rétt læta ekki skiptingu af því tagi; þessi aðgreining virðist sem sé ekki nothæf í íslensku samhengi. Í staðinn má frekar gera ráð fyrir aðgreiningu á víðri samfellu sem byggist á sjálfsvitund skynjaðs innhóps. Með öðrum orðum er hugsanlegt að þeir innfl ytjendur sem tilheyra innhópnum að mati Íslendinga njóti jákvæðra viðhorfa og þar með svipaðrar stöðu og innfæddir í íslensku samfélagi. Neikvætt mat á þeim sem tilheyra úthópnum getur hins vegar valdið þeim lélegri stöðu innan samfélagsins. Samt sem áður þarf að hafa í huga að innhópur og úthópur eru ekki eins leitir heldur sveigjanlegir eft ir því hversu „innfætt “ eða „erlent“ við komandi hljóm- 8 Menn hafa tilhneigingu til þess að fl okka heiminn í hópa. Þeir skilgreina sig oft sem meðlimi í einhverjum félagslegum hóp og samsama sig þeim hópi (e. group identity). Samkvæmt kenningu um félagslega samsemd (e. social identity theory) er félagsleg sjálfsvitund (e. social identity) skilgreind sem sá hluti í sjálfsvitund ein- staklingsins sem stafar af þekkingu hans sem meðlimur í félagslegum hóp/hópum ásamt þeim gildum og tilfi nningalegu þýðingu sem er tengd því að vera meðlimur í þeim hóp/hópum (Tajfel 1978:63). Sá hópur sem einstaklingurinn samsamar sig við, þ.e. innhópurinn, er lokaður fyrir öðrum sem uppfylla ekki skilyrði þess að vera meðlimir og þeir eru svo skilgreindir sem meðlimir einhvers konar úthóps sem viðkomandi einstaklingur telur sig ekki tilheyra. tunga_20.indb 140 12.4.2018 11:50:55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176

x

Orð og tunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.