Orð og tunga - 26.04.2018, Blaðsíða 165
154 Orð og tunga
Annars vegar er það töluverður ókostur að hver flipi eða undirsíða
sé ekki með sína eigin vefslóð. Þetta veldur því að erfitt getur verið
að fara aftur á bak á fyrri síðu. Í stað þess að lenda beint á þeirri síðu
sem notandinn var áður á opnast stundum aðalsíða flettunnar og
stund um kemur upp villa. Eins er ógerningur fyrir notendur að deila
ákveðnum síðum með öðrum á samfélagsmiðlum eða senda tengla
í tölvupósti. Vefsíðurnar koma reyndar mjög vel út á prenti en nú
á dögum fer mikilvægt kynningarstarf einmitt fram á vefmiðlum
þannig að það er óheppilegt að notendur geti ekki deilt áhugaverðum
síðum með vinum og vandamönnum.
Hins vegar finnst mér að þróa mætti betur orðaleit vefsins. Í leið-
beiningum orðanetsins er tekið fram að vefsíðan bregðist við innslætti
staf fyrir staf. Þetta er rétt upp að vissu marki. Þegar notandinn hefur
slegið inn textastreng sem vefurinn þekkir sem sjálfstætt orð birtist
flettulisti yfir öll orðasambönd þar sem viðkomandi orð kemur fyrir.
Þannig þekkir orðanetið einingar eins og afbrýði (2 flettur) en finnur
enga samsvörun þegar notandinn bætir við einum staf og skrifar
afbrýðis. Hér hefði t.d. verið mikill kostur ef orðanetið hefði getað kom-
ið með tillögu að orðum eins og afbrýðisamur (3 flettur) eða afbrýðisemi
(3 flettur). Ekki er heldur gert ráð fyrir leit með algildistákni eins
og t.d. stjörnu eða spurningarmerki eins og gert er í veforðabókinni
ISLEX og miklu víðar. Af þeim sökum er ógerningur fyrir notendur
að leita eftir seinni hluta orða eins og t.d. -semi (t.d. afskiptasemi og
afbrýðisemi).
Þegar leitað er að ákveðnum orðum nægir oft að slá orðið inn í
nefnifalli eintölu. Þannig er hægt að leita að orðinu fjall og kalla fram
orðasambönd með beygingarmyndunum fjalli, fjalls, fjallsins, fjöll,
fjöllum, fjöllunum og fjalla. Þetta á einnig við um aðra orðflokka eins
og lýsingarorð og sagnir. Þó virðist oft vera misbrestur á að allar
beygingarmyndir birtist þegar notandinn slær inn grunnmynd orða.
Sem dæmi má nefna orð eins og kona þar sem notandinn þarf að slá inn
hverja beygingarmynd fyrir sig. Þegar leitað er að beygingarmyndinni
kona birtast 18 orð og orðasambönd, öll með leitarorðinu í nefnifalli
eintölu. Til að finna orðasambönd þar sem kona kemur fyrir í öðrum
föllum þarf að leita undir hverri beygingarmynd fyrir sig: konu (6
dæmi), kvenna (12), konum (7) og konur (3). Sömu sögu er að segja
um nafnorð eins og maður, köttur og fiskur og lýsingarorðið lítill. Ef
skoðað er uppflettiorðið gamall má finna ýmsar beygingarmyndir
þess orðs, þar af eitt dæmi um miðstig: eldri. En ef notendur slá inn
beygingarmyndina eldri birtist hins vegar flettulisti með 7 dæmum.
tunga_20.indb 154 12.4.2018 11:50:59