Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Taktu þátt og þú gætir unnið páskaegg! GOA.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Ingimundur Sigfús- son, fyrrverandi for- stjóri Heklu og fyrr- verandi sendiherra, lést á líknardeild Landspítalans í fyrra- dag, 80 ára að aldri. Ingimundur fæddist í Reykjavík 13. janúar 1938 og ólst þar upp. Foreldrar Ingimundar voru Rannveig Ingi- mundardóttir og Sig- fús Bergmann Bjarna- son, stofnandi og forstjóri Heklu hf. Ingimundur gekk í Melaskóla, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og síðan í Verslunarskóla Íslands, og útskrifaðist þaðan sem stúdent 1959. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1967. Ingimundur hóf störf hjá Heklu hf. að loknu lagaprófi og varð forstjóri Heklu hf. við fráfall föður síns haustið 1967 og gegndi því starfi til ársloka 1990. Ingimundur var stjórnarformaður Reykjaprents 1967- 85, stjórnarformaður Heklu hf. 1990-94, stjórnarformaður Stöðvar 2 1993-94, sendiherra Íslands í Þýskalandi 1995-2001 og sendi- herra Íslands í Japan 2001-2004. Ingimundur var formaður Listahátíðar 2004-2010, stjórn- arformaður Stofnunar Sigurðar Nordals 2005-2010, formaður þjóð- leikhúsráðs 2007-2014, stjórn- armaður Watanabe-styrktarsjóðs- ins frá 2008 og formaður Íslandsdeildar Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation frá 2006. Ingimundur og eftirlifandi eig- inkona hans, Valgerður Valsdóttir, hlutu landgræðsluverðlaunin 2016 fyrir landgræðslustörf, en þau græddu landsvæði og unnu að skógrækt að Þingeyrum og Sigríð- arstöðum í Húnavatnssýslum. Ingi- mundur var sæmdur heiðursorðu Japanskeisara 2016 og heiðursorðu frá þýska ríkinu 2001. Hann var að- alræðismaður Spánar á Íslandi 1983-94. Synir Ingimundar og Valgerðar eru Valur, prófessor í sagnfræði við HÍ, og Sigfús Bergmann, fram- kvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Hofs ehf. Andlát Ingimundur Sigfússon fyrrv. sendiherra Nefndin staðfestir allar synjanir SÍ & Úrskurðarnefnd velferðarmála hafa borist 15 kærur vegna greiðsluþátttöku Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Úrskurðarnefnd velferðarmála hef- ur hafnað öllum kærum vegna synj- unar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um greiðsluþátttöku í kostnaði vegna liðskiptaaðgerða hjá Klíník- inni. Nefndinni hafa borist sex kær- ur það sem af er þessu ári, henni bárust níu kærur 2017 og engar 2016 en Klíníkin hóf að gera lið- skiptaaðgerðir í febrúar í fyrra. Fimm kæranna bíða úrlausna. SÍ niðurgreiða ekki liðskiptaað- gerðir sem Íslendingar velja að fara í á Klíníkinni og snúa kærurnar að því. Aðeins er greitt fyrir liðskipta- aðgerðir á Landspítalanum (LSH), þar sem biðlistar eru langir, og er- lendis. Ef sjúklingur þarf að bíða lengur en 90 daga eftir aðgerð á LSH getur hann óskað eftir að fara í aðgerð út sem er greidd að fullu af SÍ. Sjúklingur getur líka valið að fara í lið- skiptaaðgerð út samkvæmt ESB- tilskipun um heil- brigðisþjónustu yfir landamæri þó að hann hafi ekki verið á bið- lista hér heima. Þá fær hann end- urgreiddan útlagðan kostnað frá SÍ sem samsvarar því að þjónustan hefði verið veitt hér á landi. SÍ er ekki heimilt samkvæmt lög- um að samþykkja umsóknir um endurgreiðslu frá þeim sem hafa farið í liðskiptaaðgerð hjá Klíníkinni því ekki er til staðar samningur við SÍ varðandi greiðsluþátttöku vegna liðskiptaaðgerða. Því lætur fólk reyna á úrskurðarnefnd velferðar- mála sem hefur í öllum tilfellum staðfest synjun SÍ á umsókninni um greiðsluþátttöku. Í einum úrskurði nefndarinnar frá 28. febrúar kemur fram að SÍ mótmæli því ekki að kostnaður við liðskiptaaðgerðir er- lendis sé hærri en kostnaður hér á landi. SÍ hafi aftur móti ekki heim- ildir til að setja gjaldskrá nema heilbrigðisráðherra setji reglugerð og hann hafi ekki gert það. Hafa ekki efni á að tapa heilsu Hjálmar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Klíníkurinnar, segir að það sé horft mjög stíft í lagatext- ann. „Það er ekki horft til almennr- ar skynsemi heldur bara hvað lögin segja sem er að það sé ákvörðun ráðherra að setja reglugerð ef það er ekki til samningur.“ Hjálmar átti fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni og Óttari Proppé þegar þeir voru heilbrigðisráðherr- ar og bíður þess nú að funda með Svandísi Svavarsdóttur. Hann seg- ist ekki sjá skynsemina í því að senda sjúklinga til útlanda sem er mun dýrari lausn en að gera að- gerðina hjá Klíníkinni og skapi mik- ið óhagræði. Gerðar hafa verið 85 liðskiptaað- gerðir hjá Klíníkinni frá því í febr- úar í fyrra og ásóknin hefur verið stigvaxandi. „Það er stór misskiln- ingur að þetta sé efnaða fólkið sem er að koma hingað í aðgerð, þetta er fólk sem hefur ekki efni á því að tapa meiri heilsu. Þetta er fólk sem er orðið örvinglað yfir stöðu sinni og getur ekki meira. Þetta eru þeir sem þurfa mest á því að halda að aðgerðin sé gerð sem fyrst en hafa engin tök á því að fara út,“ segir Hjálmar. Hjálmar Þorsteinsson „Þjóðhagsráð var tilraun til þess að fjalla um þessi mál í sáttafarvegi en það er engin sátt,“ segir Gylfi Arn- björnsson, formaður Alþýðu- sambands Íslands. ASÍ sendi frá sér tilkynningu eftir fund miðstjórnar sambandsins í gær þess efnis að sambandið tæki ekki sæti í Þjóð- hagsráði. Ákvörðun um stofnun Þjóðhags- ráðs var tekin árið 2015, m.a. að frumkvæði ASÍ. „Við sáum þetta fyrir okkur sem grundvöll að því að skapa sátt í samfélaginu um jafn- vægi á milli efnahagslegs veruleika og félagslegs stöðugleika,“ segir Gylfi. „Við eigum í grundvallardeilu um skiptingu verðmæta, forgangsröðun ríkisfjármála, tekjujöfnun í gegnum skattkerfi og tekjuöflun til þess að geta þá veitt þá þjónustu sem við teljum að landsmenn hafi þörf fyrir og eigi rétt á. Það verður ekki rætt í einhverju huggulegu samtali í Þjóð- hagsráði, það gerum við í tengslum við undirbúning að næstu kjara- samningum.“ ASÍ ekki með í Þjóð- hagsráði & Umræðan tekin í tengslum við kom- andi kjarasamninga Fólk sem kom í Höfðaborg, hús Ríkisáttasemjara við Borgartún í Reykjavík, í gær varð að smeygja sér þar í gegnum „fæðingarveginn“ sem ljósmæður komu þar upp. Þetta gerðu ljósmæður til að vekja athygli á kjörum sínum, en samningar stéttarinnar við ríkið losnuðu í ágúst á síðasta ári og hvorki hefur gengið né rekið í kjaraviðræðum. Vill stéttin leiðréttingu á launum sínum, enda hafi hún dregist aftur úr miðað við menntun og ábyrgð. Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra var í gær afhentur listi með undir- skriftum 5.800 manns sem hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við kjara- baráttu ljósmæðra. „Það er mikill hugur meðal almennings. Fólki finnst rétt- lætanlegt að við hækkum í launum við að bæta þessu við okkur, að við fáum laun samkvæmt ábyrgð og menntun,“ sagði Steina Þórey Ragnarsdóttir, varaformaður Ljósmæðrafélags Íslands, við Morgunblaðið. Farið um fæðingarveg ljósmæðra í Höfðaborg Morgunblaðið/Eggert Í úrskurðunum má lesa að kær- endur hafa flestir verið sárkvaldir og séð fram á langa bið eftir lið- skiptaaðgerð á LSH áður en þeir ákváðu að fara til Klíníkurinnar. Það hafi bætt lífsgæði þeirra veru- lega og gert það að verkum að þeir komust fyrr út á vinnumark- aðinn aftur. Flestir vísa til þess að SÍ heimili þeim að fara í aðgerðir erlendis og greiði þann kostnað sem sé tölvert hærri en við að- gerðina hjá Klíníkinni og þeir von- ist því til að úrskurðarnefndin sýni málinu skilning og hlutist til um að SÍ greiði kostnaðinn. Verulega bætt lífsgæði ÚRSKURÐIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.