Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Sundföt 2018 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði VIÐTAL Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég hef áður starfað í hinum ýmsu löndum, en Ísland hefur lengi verið mér kært – þetta er fyrsta landið sem ég bjó í utan Kína og hér hóf ég minn diplómatíska feril,“ segir Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið. Zhijian kom fyrst hingað til lands árið 1985 og stundaði nám í íslensku og ensku við Háskóla Íslands og starfaði í sendiráði Kína í Reykjavík árin 1988 til 1991. Á þessum tíma kynntist hann vel landi og þjóð, en í febrúar síðastliðnum afhenti Zhijian forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum sem sendiherra Kína. Er hann fyrsti kínverski sendiherr- ann sem mæltur er á íslensku. „Tími minn í háskólanum kenndi mér ýmislegt, einkum um Ísland, og ég man að mér fannst mjög gaman þar. En á þessum tíma var ég eini kínverski námsmaðurinn við skólann. Maður kynntist auðvitað mörgum í gegnum námið og eldaði ég oft kín- verskan mat fyrir vini mína á Nýja- Garði. Þau eru því mörg ævintýrin frá þessum tíma sem maður á aldrei eftir að gleyma,“ segir Zhijian og heldur áfram: „Íslenska er mjög erf- itt tungumál að læra og allt öðruvísi en móðurmál mitt. Áður en ég yfirgaf landið árið 1991 talaði ég mun betri íslensku en ég geri nú. Maður reynir samt að halda henni vel við, meðal annars með því að horfa á sjónvarp, hlusta á útvarp og ræða um málefni líðandi stundar við Íslendinga í sund- laugunum,“ segir Zhijian og hlær við. Miklir en nokkuð ólíkir vinir Stjórnmálasamband komst á milli Íslands og Kína árið 1971. Samskipti ríkjanna hafa verið góð allt frá þeim tíma og opnuðu Kínverjar sendiráð í Reykjavík 1972 og Íslendingar í Pek- ing árið 1995. Fjöldi samninga er í gildi milli ríkjanna, þ.á m. á sviði við- skipta, menningar og ferðaþjónustu. Zhijian segist bjartsýnn á aukna samvinnu Íslands og Kína. „Samskipti þessara tveggja landa eiga sér langa sögu og það má segja að þau hafi aldrei verið betri en ein- mitt nú. Ísland var fyrst Evrópu- landa til að gera fríverslunarsamning við Kína og það var mjög mikilvægt fyrir viðskipti milli landanna,“ segir Zhijian og bætir við að margt sé þó ólíkt með Íslandi og Kína. „Þegar kemur að fólksfjölda, stærð hagkerfis og félagskerfi þá er- um við ólík. En Ísland og Kína hafa þrátt fyrir það náð góðu sambandi og er ég mjög bjartsýnn á framtíðina,“ segir Zhijian, en hann segist jafn- framt finna fyrir miklum vilja frá hendi Íslendinga og Kínverja til að efla samstarf og samvinnu á hinum ýmsu sviðum. Nefnir hann í því sam- hengi jarðhita, innviði, málefni norð- urslóða, menntun, menningu og ferðaþjónustu. „Svo eru margir Ís- lendingar mjög góðir í hönnun, ný- sköpun og tækninýjungum. Ef við gætum fundið tækifæri til að vinna saman að nýjum verkefnum þá get- um við látið til okkar taka,“ segir Zhijian og bendir á að þótt langt sé á milli Íslands og Kína skipti fjar- lægðir litlu þegar stefnt sé að sam- eiginlegum markmiðum. Er eitthvað sem íslensk stjórnvöld geta gert til að efla þetta samband? „Ég held að Kínverjar og Íslend- ingar þurfi að efla sambandið – ekki bara íslensk stjórnvöld. Við þá vinnu tel ég gagnkvæmt traust vera afar mikilvægt því löndin eru á ýmsum sviðum svo ólík. Við þurfum að auka þekkingu og skilning hvert á öðru, þ.e.a.s. þegar ágreiningur kemur upp þurfum við að leita ráða og grípa til viðræðna svo hægt sé að leysa málið á farsælan hátt. Fulltrúar beggja stjórnvalda mættu einnig eiga í nán- ara sambandi og hittast oftar því það er mjög mikilvægt til að koma á per- sónulegu sambandi,“ segir hann og bætir við að aukið samstarf á sviði jarðhita sé einnig líklegt til að styrkja sambandið. Fólk ferðist á milli landanna Kína er það land í Asíu sem flestir ferðamenn koma til Íslands frá. Zhijian segist myndu vilja sjá enn frekari ferðir fólks á milli landanna tveggja, meðal annars námsmanna. „Við ættum að ýta undir ferðalög fólks. Vissulega er langt á milli Ís- lands og Kína, en núna er hægt að koma á mjög góðum samgöngum og tengja lönd okkar saman,“ segir hann og bætir við að góðar sam- göngur séu lykilatriði þegar komi að samstarfi. „Ég vil því sjá meiri sam- skipti á milli þjóðanna. Það væri t.a.m. hægt með menningastarfsemi ýmiss konar og skiptinámi.“ Þá segist Zhijian halda að Ísland verði áfram einn heitasti áfanga- staður ferðafólks frá Kína. „Millistéttin í Kína telur um 400 milljónir manna. Þessi hópur fólks hefur mikil tækifæri og sterkan vilja til að ferðast um heiminn. Flestir kunna þeir ensku, eru vel menntaðir og hegða sér í anda heimsborgara. Mín skoðun er sú að Ísland hefur nú þegar orðið og mun áfram vera einn af vinsælustu áfangastöðum margra ferðamanna frá Kína, sérstaklega þeirra sem yngri eru. Við þurfum því að búa okkur undir komu fleiri gesta hingað,“ segir hann. Er þá ekki brýnt að koma á beinu flugi á milli Keflavíkur og Kína? „Það er mjög mikilvægt. Þetta er eitt af þeim atriðum sem ég hef lengi hugsað um og meðal annars talað fyrir þessum samgöngum við hina ýmsu stjórnmála- og embættismenn. Ég tel að það sé vel hægt að opna beina flugleið á milli Kína og Íslands vegna þess að það bætist sífellt í hóp þeirra sem vilja ferðast þessa leið. Aukin viðskipti á milli landanna eru einnig önnur ástæða,“ segir hann bendir á að finna megi mikil tækifæri í flutningum á ferskum fiski með beinu flugi frá Íslandi. „Íslendingar eru nú þegar þekktir fyrir gæði þegar kemur að fiskvöru og það er búið að byggja upp ímynd Íslendinga á mörkuðum í Kína. Vör- urnar eru þekktar fyrir hreinleika og hollustu og það er góður grunnur að frekari kynningu og sölu. Fengjum við beint flug yrði hægt að koma vörum til neytenda í Kína með fljót- virkum hætti,“ segir hann. „Ég vil sjá minnst eitt kínverskt og eitt ís- lenskt flugfélag fljúga á milli land- anna.“ Sér tækifæri í nánara samstarfi & Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, vill efla samstarf og samvinnu Íslands og Kína á hinum ýmsu sviðum & Mikilvægt að koma á beinum flugsamgöngum & Fyrsti sendiherrann sem talar íslensku Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samstarfsríki Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, segist bjartsýnn á framtíðina þegar kemur að sambandi Íslands og Kína, en hann vill meðal annars sjá fleiri skiptinema og persónulegra samband milli ráðamanna. Jin Zhijian, sendiherra Kína á Ís- landi, segir frábært gengi karla- landsliðs Íslands í fótbolta að undan- förnu hafa vakið mikla athygli meðal fótboltaunnenda í Kína. „Það er í raun með ólíkindum hversu margir Kínverjar hafa heyrt um velgengni landsliðsins. Ég er handviss um að fjölmargir kínversk- ir fótboltaáhorfendur eiga eftir að fylgjast grannt með gangi liðsins á komandi heimsmeistaramóti. Sam- kvæmt minni bestu vitund verður vel fjallað um íslenska landsliðið í Kína og mun t.a.m. kínverska ríkis- sjónvarpsstöðin CCTV senda frétta- menn hingað til lands. En þeir vilja fjalla um allt sem tengist fótbolt- anum og hvernig íslenska landsliðið undirbjó sig fyrir keppnina og hvernig Íslendingum tókst að ná svona langt á svo skömmum tíma. Ég vil því nýta tækifærið og óska lið- inu velgengi ég mun fylgjast með.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleðistund Jin Zhijian segist ætla að fylgjast vel með leikjum Íslands á komandi heimsmeistaramóti, en gott gengi liðsins vakti athygli í Kína. Fréttamenn CCTV fjalla um landsliðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.