Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 30

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is Frábær smurefni sem einangra, verja og koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra o rafma nsvara. 100% eins árs RAKAVÖRN Klárt á pallinn Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Lavor Space 180 háþrýstidæla 2500W, 180 bör (245 m/túrbóstút), 510 L/klst. Pallabursti og felguhreinsir fylgja. Made by Lavor 26.490 Tansun geilsahitari – 2.0 kW áður 39.990 k 31.992 • IP staðlað fyrir íslenska veðráttu • 2 ára ábyrgð r. 29.990 Lavor SMT 160 EC 2500W, 160 bör (245 m/ túrbóstút) 510 L/klst. Þrjá stillingar: mjúk (t.d. viður) mið (t.d. bill) og hörð (t.d steypa). O r , . Kailber KG-KG-2 Gasgrill 4x3,5KW brennarar (14kw), grillflötur 304 cm2 20% AFSLÁTTUR 49.990 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Notkun þingmanna á fyrirspurnum er margslungnari en margur held- ur. Þær eru ekki einungis verkfæri þingmanna til að hafa eftirlit með ráðherrum heldur einnig mikil- vægur réttur þeirra til að afla sér upplýsinga. Þá nýta þingmenn sér fyrirspurnir óspart sem hluta af baráttu sinni við að halda sér sýnilegum gagn- vart kjósendum. Umfang fyr- irspurna er gríð- arlegt og álag þeim samfara á stjórnsýslun er mikið. Nokkrir viðmælendur telja svo komið að hugsanlega þurfi að skoða hvort til breytinga þurfi að koma á fyrirspurnarforminu. Mikilvægt er þó að bera virðingu fyrir þessum rétti þingmanna og hafa í huga mikilvægi hans þegar hugsanlegar breytingar eru rædd- ar. Þetta er niðurstaða Heimis Snæs Guðmundssonar í lokaverk- efni til MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, sem birt var í febrúar 2012. Heiti ritgerðarinnar var Fyrirspurnir á Alþingi: Notkun þingmanna og áhrif á stjórnsýslu Fyrirspurnir alþingismanna hafa mjög verið til umræðu und- anfarna daga. Þótt nokkuð sé um liðið síðan Heimir Snær vann að ritgerð sinni eru sömu álitamál enn til umræðu. Niðurstöður Heimis voru að miklu leyti byggðar á viðtölum sem tekin voru við stjórnmálamenn með reynslu af þingstörfum og ráð- herrasetu, aðila úr stjórnsýslunni, starfsmenn Alþingis og starfsmann innan fjölmiðla. Viðmælandi innan fjölmiðla var á því að þingmenn notuðust við fyr- irspurnir til að auglýsa sig, skoð- anir sínar og til að ná athygli fjöl- miðla. Í ljósi þess séu þeir sífellt að reyna að draga fram upplýsingar sem þykja ámælisverðar. Um leið og komi í ljós að upplýsingarnar séu ekki jafn athyglisverðar og fyr- irspyrjandi vonaði leggi hann þær til hliðar en um leið flaggi hann mjög svörum sem honum þykja op- inbera ámælisverðar upplýsingar. Jafnframt segir viðmælandinn að kjördæmapotið lifi góðu lífi og fyr- irspurnum sé óspart beitt í þeim tilgangi. Auk þess verði hann var við það að þingmenn reyni að skapa sér sérstöðu og auglýsi skoðanir sínar með því að vera sífellt að spyrja spurninga sem tengist ákveðnum málaflokkum. Þingmenn hafi alltaf þennan undirliggjandi til- gang að vekja athygli á sér og sín- um málum. Það sé einfaldlega hluti af baráttu fyrir endurkjöri og t.d. geti þeir notað fyrirspurnir til að sýna að þeir séu að berjast fyrir hagsmunum ákveðinna hópa sam- félagsins þegar kemur að próf- kjörs- eða kosningabaráttu. „Leikrit hjá þingmönnum“ Ráðherrann taldi fyrirspurnir oft vera dálítið leikrit hjá þing- mönnum. Sérstaklega taldi hann óundirbúnu fyrirspurnirnar vera því marki brenndar, þar væru þing- menn að reyna að koma höggi á ráðherra og um leið að auglýsa sjálfa sig og sínar skoðanir. Einnig greindi ráðherra frá því að stjórn- arandstæðingar gerðu meira af því að koma með pólitískar yfirlýsingar þegar kæmi að óundirbúnum fyr- irspurnum. Þó kæmi fyrir að stjórnarþingmenn væru forvitnir um það sem væri að gerast innan ríkisstjórnar sem væri að sjálf- sögðu eðlilegt, það væri leið stjórn- arþingmanna til að halda rík- isstjórn á tánum og láta vita af sér í leiðinni. Starfsmaður stjórnsýslunnar sagði viðhorfin vera beggja blands. Það færi fyrir brjóstið á starfsfólki þegar efni fyrirspurna væri óskýrt og verið væri að leita að upplýs- ingum sem erfitt væri að réttlæta að skiptu efnislega miklu máli. Einnig truflaði það starfsfólk þegar fyrirspurnir kæmu inn þar sem til- gangurinn væri augljóslega sá að leita leiða til að koma pólitísku höggi á ráðherra, jafnvel persónu- legu. Hann velti því fyrir sér hvort það ætti að vera hlutverk stjórn- sýslunnar að svara slíkum fyr- irspurnum. Þó nefnir hann að starfsmenn séu meðvitaðir um þennan rétt þingmanna og beri virðingu fyrir honum jafnvel þó að- pirringur komi upp þegar fyrir- spurnir berist sem erfitt er að sjá að gagnist þingmanni. Viðmælandi innan fjölmiðla sagðist hafa það eftir samskiptum sínum við aðila úr ráðuneytunum að fyrirspurnir væru einfaldlega að drekkja þeim í vinnu í mörgum til- fellum. Þaðan segist hann hafa þær skoðanir að erfið og gríðarleg vinna fari í að svara fyrirspurnum sem í sumum tilfellum virðast ekki þjóna miklum tilgangi við fyrstu sýn. Heimir Snær nefndi til sög- unnar fyrirspurn sem Vigdís Hauksdóttur, þáverandi þingmaður, beindi til allra ráðherra. Vigdís sóttist eftir upplýsingum um utan- landsferðir starfsmanna ráðuneyta og undirstofnana á árunum 2007- 2010. Hún sóttist eftir marg- víslegum upplýsingum, í hvaða er- indagjörðum var farið, hvert og hve lengi. Einnig krafðist þingmaðurinn sundurliðaðra upplýsinga um kostn- að. 197-223 vinnustundir starfs- manna fóru í að svara fyrirspurn- inni. Upplýsingaþjónusta Alþingis Starfsmenn þingsins voru á því að mörgum fyrirspurna væri hægt að svara innan upplýsingaþjónustu Alþingis og bentu auk þess á að þeir vissu til þess að nú þegar færi þar fram ákveðin vinna þar sem starfsfólk aðstoðaði þingmenn við undirbúning fyrirspurna. Í því sam- bandi nefndu þeir þó tregðu ráðu- neyta til að afhenda upplýsinga- þjónustu gögn. En tregða ráðu- neyta til að afhenda upplýsingar væri eitthvað sem nokkrir viðmæl- enda lýstu að væri viðvarandi. Ákveðin vinna hefði verið í gangi innan þingsins sem miðaði að því að bæta samskiptin við ráðuneytin og koma þeim í betri farveg m.a. til að minnka tregðu ráðuneytanna gagn- vart upplýsingaþjónustunni. Breytt fyrirkomulagið myndi létta álagi af ráðuneytunum, álag myndi að sama skapi aukast til muna á upplýsinga- þjónustu Alþingis. Nota fyrirspurnir til að halda sér sýnilegum Morgunblaðið/Eggert Gengið úr kirkju Alþingi kom saman um miðjan desember. Síðan þá eru fyrirspurnir orðnar rúmlega 300 talsins. & Þarf að gera breytingar á formi fyrirspurna á Alþingi? 15 virkir dagar » Ef óskað er skriflegs svars ráðherra við fyrirspurn er tímafresturinn 15 virkir dagar. » Yfirstandandi þing, 148. löggjafarþingið, var sett um miðjan desember. Nú þegar eru fyrirspurnir, munnlegar og skriflegar, orðnar rúmlega 300 talsins. » Ráðherrar biðja ítrekað um lengri frest til að svara skriflegum fyrirspurnum því vinnsla við svör í ráðuneyt- unum tekur lengri tíma en 15 daga. Heimir Snær Guðmundsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Einhverjar fyrirspurnir hafa borist Tryggingastofnun ríkisins varðandi aukinn sveigjanleika í töku ellilíf- eyris þar sem mögulegt er að taka hálfan líf- eyri hjá TR á móti hálfum líf- eyri frá lífeyris- sjóðum. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Trygg- ingastofnunar segir í svari við fyrirspurn blaðsins að hins vegar hafi einungis ein um- sókn borist. Um er að ræða lagabreytingu sem samþykkt var haustið 2016 en tók ekki gildi fyrr en um seinustu áramót. TR hefur síðan þá kynnt þennan valkost á vefsíðu stofnunar- innar með skýringum og reiknað er með að lífeyrissjóðir muni breyta samþykktum sínum á aðalfundum á næstu vikum vegna heimildarinnar til greiðslu hálfs ellilífeyris til handa þeim sem náð hafa 65 ára aldri. Sigríður Lillý bendir á að eins og fram komi í lögunum sé þessi leið bundin ýmsum skilyrðum. ,,Þurfa þau sem hana velja t.d. að afsala sér hálfum lífeyrissjóðsgreiðslum sam- hliða töku hálfs lífeyris hjá okkur. Að öðru leyti er ekki um tekjuteng- ingar að ræða sé þessi leið valin,“ segir hún. Spurð um tekjuáhrifin segir hún að sé hefðbundin leið valin þá hafi tekjur undir frítekjumörkum ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur, að öðru leyti er um tekjutengingar að ræða. „Gagnvart ellilífeyri er 25 þúsund kr. almenn frítekjumark og að auki 100 þús. kr. sértækt frítekjumark á atvinnutekjur.“ Fyrirspurnir og ein umsókn til TR & Ýmis skilyrði ef velja á hálfan lífeyri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.