Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bezt
á lambið
Rauðspretta
1 flak
Smjör
Salt
Aðferð: Rauðsprettan er flökuð og
skorin í tvennt. Hitið pönnu með olíu.
Rauðsprettan er lögð í pönnuna heita,
krydduð til með salti og pipar. Þegar
rauðsprettan er farin að verða gullin
á lit bætið við smjöri og látið það
bráðna. Þegar smjörið er bráðnað
snúið henni við og ausið með smjör-
inu í 30 sek og takið svo af pönnunni.
Smælki-kartöflur
4 smælki
Aðferð: Smælki-kartöflur soðnar
með hýðinu þar til mjúkar. Kældar
með köldu vatni og skornar í tvennt,
steiktar á pönnu með smjöri og hvít-
lauk, smakkaðar til með salti og pip-
ar.
Íslenskar gulrætur ofnbakaðar
1 poki gulrætur
Olía
Salt
Pipar
Aðferð: Gulrætur í ofnskúffu með
olíu, salti og pipar. Bakað á 160 í 30
mín. Endinn skorinn af og skornar í
hæfilega stærð til að gefa með fisk-
inum. Gott að hita gulræturnar með
kartöflunum þegar þær eru steiktar.
Epla- og möndludressing
1 grænt epli
50 g möndlur heilar
1 shallot laukur
50 g dill
20 g ólívuolía
5 g eplaedik
Aðferð: Epli, möndlur, shallot-
laukur og dill saxað fínt í ílát. Allt sett
saman með olíunni og edikinu.
Smakkað til með salti
Hollandaise sósa
1 eggjarauða
100 g smjör
1 sítróna
Salt
Aðferð: Píska eggjarauður yfir
hitabaði í 70 gráður. Bræða smjör og
hafa það um 60 gráður, blanda smjör-
inu varlega útí eggjarauðurnar og
hræra stöðugt í blöndunni. Þegar allt
smjörið er komið saman við er bara
að smakka sósuna til með salti og
sítrónusafa.
thora@mbl.is
Pönnusteikt rauðspretta
Sigurjón Bragi Geirsson vakti verðskuldaða athygli á dögunum þegar hann hafnaði í öðru sæti í keppninni Kokkur
Íslands 2018 sem fram fór í Hörpu. Þessi afbragðs uppskrift er úr hans smiðju og er í senn ákaflega bragðgóð,
holl og mannbætandi. Það er nefnilega fátt betra en að gæða sér á Hollandaise sósu með fiski – sannið til.
Meistarakokkur Sigurjón Bragi Geirsson náði öðru sætinu í keppninni
Kokkur Íslands 2018
Morgunblaðið/Eggert
Einstaklega bragðgott
Rauðspretta er í miklu
uppáhaldi hjá mörgum
enda afbragðshráefni.