Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 81

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 81
MENNING 81 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 AF TILRAUNUM Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Það er komið að þriðja undan-úrslitakvöldi Músíktilraunaog átta hljómsveitir voru á dagskrá þetta þriðjudagskvöld, 20. mars 2018. Fyrst til að spreyta sig var reykvíska tríóið Ateria, skipað þremur stúlkum á aldrinum 12 til 17. Hin 12 ára trommandi Fönn Fannarsdóttir stóð sig með ein- dæmum vel, og lög Ateria voru vel inn römmuð og útsett, og myrkra og drungalegra goth-áhrifa gætti í lagasmíðunum. Black Bar var einsmennings- sveit Bjarma Alexanders sem tefldi fram tveimur gjörólíkum lögum. Hið fyrra var kassagítarsslagari og hið seinna nýrómantískt tölvupopp eins og algengt var í upphafi ní- unda áratugarins. Frábærlega frá- brugðin lög og einstakt atriði í alla staði. Nótt úr Hafnarfirði líða fyrir það að vera nýbyrjaðir, en hljóm- sveitin var stofnuð í síðasta mán- uði. Söngvari er hikandi og nær sér ekki almennilega á flug og lögin hljóma ekki fyllilega tilbúin. Síðara lagið byrjar með mjög flottum og ögrandi gítar en svo kemur bara meira af því sama. Það er um að gera að halda bara áfram og finna sinn stíl. Darri Tryggvason, sem síð- astur steig á sviðið fyrir hlé var eins og Nótt, tónlistarmaður í mót- un. Fyrra lag hans, „Fljúgðu“, var reyndar prýðisgott en hið síðara vantaði betra form: Ris, uppbygg- ingar og brýr á rétta staði og þá byrjar eitthvað spennandi að mót- ast. Eftir ljómandi góða kaffipásu reið Jóhanna Elísa á vaðið, og þarna er á ferðinni lærð söngkona og lagasmiður úr FÍH. Fyrra lagið var dreymandi og hugljúft og í anda tónlistarmanna á borð við Enyu, en það vantar samt eitthvað. Það vantar eitthvert yfirborð sem mótvægi við fagra tóna og ljúf úú- úúú. Allt er fagurlega framkvæmt, en heldur ekki athygli, og er of mikið fullorðins-popp fyrir minn smekk. Morii var eina rokksveit kvöldsins og ein af fáum rokk- hljómsveitum sem keppa á Mús- iktilraunum í ár (Hvar er rokkið, krakkar?). Morii er þó ekki fylli- lega búin að finna sinn stíl og á köflum er allt of mikið í gangi í einu til að skilningarvitin nái að greina lagið. Útkoman er rokksúpa sem gæti verið bragðgóð, en það þarf að betrumbæta uppskriftina aðeins. Agnarsmár er rappverkefni Agnars Dofra sem byrjaði að rappa Eitthvað spennandi að mótast Morgunblaðið/Hari Færir Ljósfari lokaði kvöldinu og voru menn afar vel spilandi og syngjandi. til að tjá sig og endurspegla líf sitt. Síðara lagið var betra og frábærar pælingar í textum, en þarna er á ferðinni hugrakkur og áhugaverður rappari sem vert er að fylgjast með. Ljósfari lokaði kvöldinu og þar eru á ferð afar vel spilandi og syngjandi fimm-menningar, en lög- in hljóma allt of kunnuglega til að hægt sé að gleyma sér og njóta. Fyrra lag þeirra er til að mynda að stórum hluta eins og gamalt Toto- lag og tónlist Ljósfara hljómar eins og einhver bræðingur á milli Toto og Sálarinnar hans Jóns míns. Þarna er að sjálfsögðu að finna prýðis-hljóðfæraleikara en þeir hafa tækifæri til að vinna svolítið í frumlegheitum. Þá var dagskrá lokið og við tók talning atvæða, og þegar allt var komið upp úr kössunum var niðurstaðan ljós. Ljósfari hlaut kosningu úr sal en dómnefnd valdi hljómsveitina Ateria í úrslitin. Þessar tvær hljómsveitir eru því komnar áfram og spila aftur á laugardagskvöldið í Hörpu. »Hin 12 ára tromm-andi Fönn Fann- arsdóttir stóð sig með eindæmum vel, og lög Ateria voru vel inn römmuð og útsett. Rokkarar Morii var eina rokksveit kvöldsins og þær eru fáar í Músíktil- raunum í ár. Morii er þó ekki fyllilega búin að finna sinn stíl. Agnarsmár Rappverkefni Agnars Dofra sem byrjaði að rappa til að tjá sig og endurspegla líf sitt. Áhugaverður rappari þar á ferð. Myrk Lög Ateria voru vel inn römmuð og útsett, og myrkra og drungalegra goth-áhrifa gætti í lagasmíðunum. Ateria komst áfram í úrslit. Fagurt Allt var fagurlega gert hjá Jóhönnu Elísu en hélt ekki athygli, það vantaði eitthvert yfirborð sem mótvægi við fagra tóna og ljúf úúúú. ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 16. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu. Brúðkaups- blað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 20. apríl
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.