Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 96
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018SJÓNARHÓLL
ÞÓR FH
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 9:00 - 18:00
Lokað um helgar
Tölvuverslun - Reykjavík:
Ármúla 11
108 Reykjavík
Sími 568-1581
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Hagkvæmhágæðaprentun - Engin blekhylki
EPSON ET-7700
Helstu kostir:
• Hraðvirk hágæða prentun
Allt að 13 síður á mínútu í svörtu eða 10 í lit.
• Prentar, skannarog jósritar
3 tæki í 1 sem prentar beggja megin.
• Miklir tengimöguleikar
USB2, Þráðlaust net, WiFi Direct og venjul. nettenging.
• Prentun beint úr síma
Ókeypis app til að prenta beint úr síma.
Nú getur þú prentað mikið af ljómyndum án þess að hafa
áhyggjur af blekkostnaði. Með prentaranum fylgja tvö sett af
blekflöskum sem duga í allt að 3400 ljósmyndir (10x15cm).
EcoTank ET-7700 er fjölnotatæki sem skannar, prentar og
ljósritar í góðum gæðum. Í stað hefðbundinna prenthylkja
fylgja blek flöskur sem draga verulega í prentkostnaði. Hægt
að prenta báðummegin á blaðið. Nettengdur/þráðlaus
prentari með allar upplýsingar á skjá.
Tvö sett af blekflöskum fylgja, sem dugar í samtals:
ÁTTUMIKIÐ AF LJÓSMYNDUM?
3400
Ljósmyndir
KRISTINN MAGNÚSSON
Líkt og iðulega þegar kjarasamningar stórrahópa launþega eru í bígerð þá vaknar uppumræða um getu fyrirtækja til að greiða
hærri laun og áhættuna sem því fylgir þegar samið
er um laun umfram hana. Það er ljóst að hækkun
launakostnaðar getur haft afdrifaríkar afleiðingar
fyrir einstök fyrirtæki, en erfiðara er að átta sig á
hvaða áhrif slík hækkun hefur á þjóðina sem heild.
Það kemur þó ekki í veg fyrir að menn reyni, en
þeim sem láta vaða verður oft tíðrætt um fram-
leiðni og þá oftast þýðingu framleiðni fyrir velmeg-
un þjóðarinnar og áhrif launahækkana á hana.
Í hagfræði og fjármálum
er framleiðni almennt skil-
greind sem hlutfallið á milli
virðisaukningar (úttaks) og
kostnaðar eða magns þess
sem þurfti að kosta til (inn-
taks). Þessi skilgreining
kann að hljóma einföld en í
hagfræðinni eru notaðar ótal
margar útgáfur af fram-
leiðni, allt eftir því hvernig
virðisaukning er mæld og
hvaða inntaksbreytur eru
skoðaðar og hvernig þær eru
mældar. Sem dæmi þá er
algeng skilgreining á fram-
leiðni heilla þjóða, þjóðarframleiðsla á hvern þegn,
en þá er þjóðarframleiðslan mælikvarði á virðis-
aukninguna og fjöldi þegna er mælikvarði á það
hversu marga þurfti til að búa hana til.
En framleiðni segir ekki alla söguna. Tökum
sem dæmi tvö fyrirtæki sem búa til sömu vöruna
sem seld er á sama verðinu og úr sama hráefni
sem keypt er sama verði. Annað fyrirtækið hefur
10 starfsmenn og engar vélar, en hitt hefur 1
starfsmann og eina vél sem kostar í rekstri jafn-
mikið og 9 starfsmenn. Þetta þýðir að kostnaður-
inn við virðisaukningu beggja fyrirtækja er sá
sami og framleiðnin sú sama. Ef við mælum hins-
vegar svokallaða framleiðni vinnuafls, það er hlut-
fallið milli virðisaukningar og nauðsynlegs vinnu-
afls, þá er sú framleiðni 10 sinnum hærri hjá
fyrirtækinu sem á vélina auk þess sem framleiðni
þess fyrirtækis breytist lítið þótt laun hækki. Og
það væri augljós leið hjá fyrirtækinu sem ekki á
neina vél að bregðast við hækkandi launum með
því að fjárfesta í vél og segja upp starfsfólki, sem
er lýsandi fyrir þróunina í vestrænum heimi þar
sem laun hækka jafnt og þétt en vélar lækka
nokkuð stöðugt í verði.
Það er líka vel þekkt staðreynd að framleiðni er
mjög breytileg milli samskonar fyrirtækja í sömu
atvinnugrein og á sama markaði. Með öðrum orð-
um þá hefur kostnaður við vinnuafl og fjármagn
ekki allt um það að segja hversu mikil verðmæta-
aukning verður til hjá fyrir-
tækjum. Þar skiptir til dæmis
einnig miklu máli hvernig
framleiðslan er skipulögð, á
hvaða tæknistigi starfsemin
er, hversu hæft starfsfólkið er
og hversu góðir stjórnendur
eru. Það er því ekki víst að
framleiðni lækki þótt kostn-
aður vegna starfsmanna
hækki, ef það til dæmis þýðir
að hæfni starfsmanna eykst.
Þegar öll kurl eru komin til
grafar er það ekki endilega
einfalt mál að spá fyrir um
áhrif launahækkana á hag ein-
stakra fyrirtækja og hvað þá á hag heillra þjóða og
þá er loksins komið að tilefni þessa pistils.
Þegar kom fram á árið 2015 gekk flest á aftur-
fótunum hjá Walmart-verslunarkeðjunni í Banda-
ríkjunum. Sala fór stöðugt minnkandi og ánægja
viðskiptavina var í algjöru lágmarki. Fyrirtækið
fór í naflaskoðun og tilkynnti snemma árs 2015 að
það myndi hækka laun allra starfsmanna, nokkuð
sem kom flestum á óvart í ljósi aðstæðna og þarfar
fyrirtækisins til að bæta reksturinn. Þessi breyting
hafði hinsvegar þau áhrif að sala jókst, ánægja við-
skiptavina rauk upp og strax ári eftir breytinguna
hafði fjöldi verslana sem náðu þjónustumark-
miðum vaxið úr 16% upp í 75%. Sem er einmitt
dæmi um það hversu flókið fyrirbæri framleiðni er
og hvernig áhrif breytinga geta orðið þveröfug við
það sem búast mátti við fyrirfram.
MARKAÐIR
Hjörtur H. Jónsson
forstöðumaður áhætturáðgjafar
hjá ALM verðbréfum
Walmart-áhrifin
”
Þegar öll kurl eru
komin til grafar er
það ekki endilega
einfalt mál að spá
fyrir um áhrif launa-
hækkana á hag ein-
stakra fyrirtækja og
hvað þá á hag heillra
þjóða.
VEFSÍÐAN
Æ fleiri störf má vinna hvar sem er
í heiminum, svo fremi sem komast
má í tölvu og tengjast netinu. Spá
margir því að fjarvinna sé framtíðin,
enda sveigjanlegur vinnumáti sem
sparar fólki daglegar ferðir til og frá
vinnu og leyfir þeim jafnvel að finna
sér störf alveg óháð búsetu.
Þeir djörfustu sinna vinnunni úr
laufléttri fartölvu, sitjandi á sólbekk
undir pálmatré í góða veðrinu og
sólinni, og prísa sig sæla að þurfa
ekki að hírast inni á bás á loftlausri
skrifstofu.
En hvar er hægt að sækja um
þessi draumastörf? Vefsíðan Remote
Job Lists (www.remotejoblists.com)
fór nýlega í loftið til að leysa ein-
mitt þennan vanda.
Vefsíðan notar gervigreind til að
skima daglega atvinnuauglýsingar
hér og þar á netinu og vinsar út
fjarvinnustörfin. Notendur geta síð-
an leitað eftir lykilorðum og þrengt
niðurstöðurnar eftir ýmsum skil-
yrðum til að finna starf sem hentar.
Þá má fá sendar tilkynningar í
tölvupósti þegar Remote Job List
kemur auga á áhugaverða lausa
stöðu.
Áður en lesendur ViðskiptaMogg-
ans fara að hugsa sér til hreyfings
er rétt að taka fram að leitarvélin
virðist aðeins bjóða upp á störf hjá
bandarískum vinnuveitendum, og
því líklegt að gerð sé krafa um að
umsækjendur hafi atvinnuleyfi eða
séu svo heppnir að hafa bandarískt
vegabréf.
ai@mbl.is
Störf fyrir fólk í leit
að algjöru frelsi