Breiðfirðingur - 01.04.1978, Page 16
14
BREIÐFIRÐINGUR
En hann sigldi sannarlega á fengsæl mið án byrjar frá
Breiðfirðingafélaginu, eins og bækur hans sanna best.
Þá var gerð tilraun til kvikmyndatöku við Breiðafjörð
að frumkvæði félagsins og unnið að örnefnasöfnun og
myndasöfnun.
En því miður hefur flest strandað á fjárskorti eða dvín-
andi áhuga hjá breyttu stjórnarliði, sem við verkefnum tók.
Þá hefur verið flutt erindi um Framtíð Helgafells, sem
sögulegs helgistaðar Breiðfirðinga, með listrænni, lítilli
kapellu uppi á fellinu við óskasteininn, þar sem fjöldi
fólks kemur saman á hverju ári til persónulegra óska og
bæna í góðri trú á hollvætti íslands.
Ennfremur hefur Breiðfirðingafélagið unnið hvað eftir
annað markvisst að stofnun Átthagasambands íslands. —
En ‘því miður eignast of lítinn hljómgrunn fyrir svo mikil-
vægt hugsjónamál í landi, þar sem fjöldi sveita er að
fara í eyði og gleymast með sín mannvirki, sérkenni og
menningar arf.
Að síðustu skal þess getið, að oft studdi félagið hér
fyrri á sinn hátt með fjársöfnunum og fyrirgreiðslu þá,
sem orðið höfðu fyrir óhöppum og tjóni í heimabyggð
félagsmanna.
En félagið taldi sig samt aldrei neitt góðgerðafélag og
taldi framlög sín fremur til heiðurs en hjálpar. Og þarna
varð að fara varlega. Alltaf geta því miður margir orðið
til að syndga upp á náðina, og erfitt hvar segja skal: „Hing-
að og ekki lengra.“
Eitt er víst. Margs er að minnast, þegar litið er um öxl
á fertugsafmælinu.
Og vissulega er þar margt til umhugsunar og eftirbreytni.