Breiðfirðingur - 01.04.1987, Blaðsíða 48
46
BREIÐFIRÐINGUR
barminn í gjakta, til losunar. Mennirnir stóðu á meðan híft
var niðri í gryfjunni, algjörlega varnarlausir ef steinn hefði
dottið, höfðu ekki einu sinni hjálma. Upp og ofan fóru
mennirnir í kaðalstiga. Kveikt var í sprengiefninu með svo-
kölluðum kveikiþræði. Sprengdar voru 10-12 holur í einu.
Varð að hafa kveikiþræðina mislanga, því nokkurn tíma tók
að kveikja í þráðunum. Vitað var hvað það tók langan tíma
fyrir eldinn að eta sig að hvellhettunni. Maðurinn þurfti líka
að hafa tíma til að klórast upp kaðalstigann og draga hann
upp. Vissulega var alltaf hætta á að einn þráður gæti brunnið
afbrigðilega hratt að hvellhettunni, þá hefði ekki þurft um
að binda. Þetta verk hafði Kristján Friðbergur Bjarnason
bóndi á Tindum.
Eftir að kom nokkuð niður, eða gryfjan dýpkaði, urðu
miklir erfiðleikar og töf af því að reykurinn eftir sprenging-
una fjarlægðist seint, einkum ef logn var. Þá fóru mennirnir
niður til að hífa upp grjótið alltof snemma, fengu dúndrandi
hausverk. Þessi reykur er mjög eitraður, stórhættulegur,
einnig lyktin af þeirri gerð sprengiefnis, sem notuð var.
Túburnar af sprengiefninu voru of gildar fyrir holurnar. Það
varð að kreista þær með höndunum (eða það var gert
þannig). Slíkt var stórhættulegt, menn fengu mikinn höfuð-
verk við þetta og aðra vanlíðan, enda stór mildi að ekkert
slys varð af þessum verkshætti. Nú yrði slíkt algjörlega
bannað, að menn ynnu við þessar aðstæður, ekki ósvipaðar
og í umsátrinu við Stalíngrad. Þeir, sem unnu að þessu voru
þeir Magnús Halldórsson, Búðardal, Kristján Fr. Bjarna-
son, Tindum, Stefán Guðmundsson, Nýp, Lárus Magnús-
son, Heinabergi, Daníel Jónasson, Akureyjum.
Lárus og Stefán fóru fótgangandi hvern morgun til vinnu,
5 km veg og heim að kvöldi, alls 10 km á dag og þann tíma
kauplausir. Árið 1951 hófst undirbúningur að vinnslu í nám-
unni. Verkstjóri var Karl Guðmundsson. Byggð var bryggja
fyrir framan námuopið. Þar gátu um flóð lagst að rúmlega
100 tonna bátar. Reistur var turn yfir námuopið, allhár, og
lyfta gekk upp og ofan í námuna, bæði til að flytja verka-