Breiðfirðingur - 01.04.1987, Side 123
BREIÐFIRÐINGUR
121
flautar svo við verðum að hafa hraðan á, því ekki vildum við
verða strandaglópar.
Ferðin yfir Atlantshafið gekk vel, alltaf gott veður og
engin sjóveiki. Farþegar skemmtu sér, dönsuðu, sungu, spil-
uðu á spil og legið var uppi á dekki í þægilegum stólum í
sólbaði.
Seinnipart dags, 8. maí 1926 var uppi ys og þys á dekkinu
því þá heyrðist kallað landsýn, en það var nokkuð langt fram-
undan. Við kveldverðarborð var tilkynnt að skipið myndi
ekki leggjast að dokk fyrr en að morgni. Þegar upp á dekk
var komið snemma morguns blasti frelsisstyttan við og fyrir-
heitna landið með öllum sínum skýjakljúfum. Um fjögur
hundruð farþegar voru með skipinu. Innflytjendum var til-
kynnt að þeir gætu ekki farið í land. Þeir yrðu fluttir með
ferju yfir á Elliseyju þar sem læknisskoðun færi fram og
farangur og pappírar skoðaðir. Þegar yfir á Elliseyju kom
voru þar fyrir fleiri hundruð manns af öllum mögulegum
þjóðflokkum. Var karlmönnum vísað inn í stóran sal og fór
þar læknisskoðun fram. Einnig voru pappírar skoðaðir þar
og gengið var úr skugga um að innflytjandinn hefði farseðil
til ákvörðunarstaðarins og minnst 50 dollara í peningum.
Læknirinn, sem skoðaði mig, talaði dönsku og var mjög við-
kunnanlegur og hló þegar ég svaraði honum á ensku. Ein-
kennisklæddur maður kom nú með pappíra mína og hefti
spjald á jakkaboðunginn, þar sem á stóð að ég hefði staðist
skoðun og væri frjáls að fara áfram inn í landið.
Nú var orðið áliðið dags og var tilkynnt af túlkum á
ýmsum tungumálum að engir yrðu fluttir til lands fyrr en að
morgni, en allir myndu fá mat og svefnpláss um nóttina.
Fólkið átti að færa sig inn í annan nærliggjandi sal. Þetta var
stór salur með borðum og bekkjum, en mat var útbýtt í
gegnum lúgur. Það var smurt brauð, ávextir og kaffi. Börn
fengu mjólk og soðin egg. Ég settist við borð þar sem sátu
hjón með lítinn dreng. Maðurinn var með mjög ljóst hár svo
ég spurði hann hvort hann væri frá Skandinavíu, hann kvað
nei við því, sagðist vera frá Englandi. Voru þessi hjón mjög