Breiðfirðingur - 01.04.1987, Page 124
122
BREIÐFIRÐINGUR
vingjarnleg og sögðu að ég væri fyrsti íslendingurinn, sem
þau hefðu séð. Sagði hann að ég skyldi vera afar varkár og
passa vel peningana mína, því ýmsir væru peningalausir í
þessum hóp og yrðu e.t.v. sendir til baka til heimalands síns.
Hefðu þeir að líkindum tapað peningum sínum í spilum á
skipinu. Væru þeir nú að biðja fólk um peninga.
Eftir máltíðina var karlmönnum vísað inn í allstóran sal
með uppbúnum svefnbekkjum. Sá ég þá hvar ljóshærði Eng-
lendingurinn var að tala við einkennisklæddan mann og
benti honum á mig. Þessi yfirmaður kom til mín og sagði
mér að taka ferðatösku mína og fylgja sér. Tók hann mig til
herbergis þar sem voru þrjú rúm og vísaði mér á rúm sem ég
ætti að sofa í. Þetta mátti ég þakka Englendingnum ljós-
hærða.
Næsta morgun vaknaði ég snemma við mikinn bjölluklið,
en verið var að vekja mannskapinn. Allir fengu morgunverð
og þeir, sem voru útskrifaðir til að halda áfram ferð sinni,
sagt að fara niður að ferjunni. Margt af þessu fólki kunni
ekki orð í ensku. Því fólki voru gefin spjöld sem á stóð nafn
ákvörðunarstaðar þess. Leiðsögumenn voru með, er sáu um
að hver og einn kæmist á rétta járnbraut. Þegar inn á ferjuna
kom, fór ég að litast um hvort ég sæi nokkurn sem hafði
verið mér samferða á Oscari II., en sá engan. Brátt kom ég
þó auga á ungan mann, sem kom inn á ferjuna, en á ferða-
tösku hans var miði sem á stóð Oscar II. Tók ég hann þegar
tali. Sá ég strax að hann var ekki innflytjandi, enda sagðist
hann vera að koma úr heimsókn frá Danmörku og væri hann
búinn að búa í Texas í 3 ár. Sagði ég honum að ég væri inn-
flytjandi frá íslandi og væri á leið til Chicago. Sagðist hann
hafa talað við norskan mann, sem brátt myndi koma um
borð, væri hann miðaldra maður og skildi ekki orð í ensku.
Kvað hann vera á leið til Minnesota. Sáum við nú hvar
Norðmaðurinn kom með tvær stórar ferðatöskur, í leður-
stígvélum upp að knjám og með stóra loðhúfu á höfði.
Vorum við nú kynntir. Kvaðst hann heita Jóhann Knútsen
og vera frá Molde. Skýrði hann mér samstundis frá högum