Breiðfirðingur - 01.04.1997, Blaðsíða 16
14
BREIÐFIRÐINGUR
en ýmsar breytingartillögur við þær eða viðaukar ýmist felldar
eða samþykktar.9'
„Bænarskrá” Alþingis með þessu „Frumvarpi til tilskipunar
um friðun á lax á íslandi” er skrifuð á Alþingi 26. ágúst 1867
og undirrituð af forseta þingsins, Jóni Sigurðssyni, og fram-
sögumanni nefndarinnar, Jóni Péturssyni, og send konungi
ásamt frumvarpinu eins og endanlega var frá því gengið.10'
Ganga skal guðs gjöf
Á Alþingi 1869 komu þessi mál ekki til umræðu, en á 2. fundi
Alþingis 1871 var skipuð nefnd til athugunar á konunglegu
„frumvarpi til tilskipunar handa Islandi um friðun á laxi”. I
nefndina voru kosnir: Jón Pétursson, Benedikt Sveinsson,
Hjálmur Pétursson, Ólafur Pálsson og Davíð Guðmundsson
(1834-1905) prestur á Felli í Sléttuhlíð, þingmaður Skagfirð-
inga.H) Ólafur Pálsson var kosinn formaður nefndarinnar, Jón
Pétursson skrifari.12'
Á 24. fundi, 5. ágúst, var lagt fram nefndarálit og var það
lesið upp af framsögumanni, Jóni Péturssyni.131 Segir þar að
stjórnin hafi frestað að gefa út lagaboð þar til hún hafi leitað
álits embættismanna sinna á Islandi og birkidómara nokkurs í
Danmörku. Ef til vill er hér átt við Jón Johnsen, fyrrverandi
þingmann Árnessýslu, sem á þessum tíma var birkidómari í
Álaborgarbirki í Danmörku. Stjórnin lagði síðan til grund-
vallar frumvarpi sínu frumvarp Alþingis frá 1867 og breytti
því í sumu.14) I þessum umræðum voru haldnar 19 langar ræð-
ur af 9 þingmönnum.15’
Á 28. fundi Alþingis 10. ágúst voru aftur haldnar margar og
langar ræður, eða 12, og lengri en áður.16)
Á 40. fundi 19. ágúst tilkynnti forseti þingsins að sér hefði
borist „álitsskjal” um hið konunglega frumvarp um friðun
laxins.17' Frumvarpið er í 9 greinum og ástæðurnar fyrir hverri
þeirra.18’ Margar tillögur um orðabreytingar og önnur atriði
komu bæði frá nefndinni um málið og frá einstökum þing-