Breiðfirðingur - 01.04.1997, Síða 155
HORNBJARGSVITI OG HIMINHVOLFIÐ
153
Enn um guðshugmynd
Það hefur lengi þótt guðlast að fetta fingur útí guðinn og það
sem menn kalla „gerðir hans“, jafnvel saklausasta spaug í þá
veru talið til siðleysis, jafnvel hroka, og það af mönnum er
sjálfir hafa sýnt siðleysi í innbyrðis baráttu sinni. Já, það er
víða brugðið við til þess að verja þann heilagan anda, er
kirkjufeðurnir sællar minningar bjuggu til í Nýja testamentið,
ásamt öðru því er þeir töldu hentugastan áróður málstað sínum
í eyru almennings þeirrar tíðar. En verum minnug þess, að í
því forriti kristinnar trúar, er birtir okkur sagnir af þeim Guði
sem okkur er ætlað að tilbiðja, elska og virða, sjálfri Biblí-
unni, stendur skýrum stöfum í fyrstu bók Móse: „Og Guð
skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir
Guðs mynd.“
Og hvað svo? Lá þá ekki beint við að guðinn gæddi mann-
inn einhverjum votti af þeim eiginleikum er hann bjó sjálfur
yfir? Veitti manninum þar með möguleika til að ávaxta sitt
pund og þroskast með og við þá reynslu er hann varð fyrir á
lífsleið sinni og gæddi hann þeim kostum er ég hef áður
nefnt? Er ekki fráleitt að ætla að guðinn hafi sætt sig við það
eitt að skapa líkama mannsins einan og sér án nokkurra
vitundarlegra eiginleika? Hann hlýtur að hafa ætlað mannin-
um hærra og umfangsmeira hlutverk en það eitt að tilbiðja sig,
krjúpa fyrir framan ímynd sína og biðja hana sem afbrigði
gamals fórnarstigs, að þrábiðja sig um vernd og þá fyrirgefn-
ingu synda sinna, sem reyndar fól í sér dulbúna bæn um hjálp?
Er ekki fráleitt að guð almáttugur hafi gerst svo lítilþægur?
Hver kristinn maður ætti ekki þurfa að efast um sannleiks-
gildi vissra höfuðþátta í Biblíunni sem orði Guðs. En hvernig
snúast þeir gegn þeirri staðreynd, hvort heldur í trúarlegum
efnum eða sögulegum, að fjögurhundruð árum áður en Móse
fékk úr höndum Guðs gyðinga lögmálin tíu, þá hafði Hamm-
úrabis konungur í Mesópótamíu fengið rétt í hendur af sínum
guði nákvæmt rituð þau tíu boðorð. Kannske er ekki gott mað-
ur hugsi of mikið? En þrátt fyrir það er ekki úr vegi að minna