Breiðfirðingur - 01.04.1997, Síða 117
HORNBJARGSVITI OG HIMINHVOLFIÐ
115
löng þögn þar til hrökk út úr stjóra: Þú verður þá víst að sækja
hann.
Tveir erfiðustu þættirnir voru: aukið orlof og viðurkenning
á aðstoðarmanneskju með öllum réttindum. Eitthvað tók þetta
á taugarnar, því eitt sinn eftir mikið þjark við vitamálastjóra
um aukið orlof, endaði það með því að hann hótaði að reka
mig norður. Þá var mér nóg boðið. Ég spratt upp, gekk að
honum og sagði: Það eina sem á að gera við þig, er að kasta
þér útum gluggann. Hann hörfaði útað vegg og sagði fljót-
mæltur: Verum rólegir Jóhann. Verum rólegir, verum rólegir.
Ég hugsaði honum þegjandi þörfina. Þegar ég kom norður,
sendi ég honum skeyti, og í því stóð: Að ef við fengjum ekki
það orlof, er við ættum fullan rétt á, þá mundu allir vitaverðir
leggja niður vinnu og ekki snerta á verki, fyr en við fengjum
leiðréttingu mála. Þá fékk ég orðsendingu um að við fengjum
tveggja mánaða orlof á fullum launum. Skeyti þetta hékk lengi
uppá vegg í samgöngumálaráðuneytinu. Ekki stóð á þakklætinu
frá vitavörðum. Allir þögðu nema tveir er sendu mér svívirð-
ingabréf um að ég skyldi voga mér að hóta því að leggja niður
störf. Þessi bréf á ég ennþá. Hitt er svo annað mál, að sjálfur
hefði ég aldrei lagt niður störf, því ég var þarna í öryggisþjón-
ustu vegna sjófarenda. Það var svo mitt eigið hvaða aðferð ég
notaði til þess að ná því fram, er við áttum fullan rétt á.
Árið 1966 átti ég frumkvæði að því að stofnað var Vita-
varðafélag íslands og var formaður þess frá upphafi til síðasta
dags míns sem vitavörður. Eftir minn dag hreyfði enginn vita-
vörður hönd né fót til þess að viðhalda félagsskap né standa í
frekari kjarabaráttu. Það var liðin tíð.
Einn vitavarðanna tók að sér að vera gjaldkeri félagsins.
Hann átti einnig að ákveða og innheimta félagsgjöldin. En
hversu ótrúlegt sem það kann að finnast, þá tókst þeim ágæta
manni ekki að ná inn nema skitnum 5.000 - segi og skrifa
fimm þúsund krónum. - Það var það eina er ég fékk samtals
frá þeim nítján vitavörðum, er í félaginu voru. Sjálfur varð ég
að greiða úr mínum vasa allan þann kostnað, er leiddi af tutt-
ugu og fimm ára mismiklu streði í launabaráttu í þeirra þágu.