Breiðfirðingur - 01.04.1997, Page 21
Lúðvík Kristjánsson
Völundurinn frá Búlandshöfða
Kristjón Ólafsson
húsgagnasmíðameistari nírœður
Ég kom fyrst á heimili Kristjóns Ólafssonar og Magðalenu Guðjóns-
dóttur, konu hans, vorið 1925. Síðar urðu þau kynni náin og vöruðu
óslitið meðan bæði lifðu. Magðalena andaðist 1980 og lauk þar með 63
ára hjúskap. Hilmar, sonur þeirra, var lengi forstöðumaður fiskideildar
F.A.O. í Róm og búsettur þar. Hann samdi hið mikla rit stofnunarinnar
„Modem físhing gear of the world“, en það varð heimsþekkt. Kona
Hilmars var Anna Ólafsdóttir og eru börn þeirra þrjú. Hilmar lést 1983.
Jóhanna, dóttir Magðalenu og Kristjóns, er gift Ingva Viktorssyni hús-
gagnasmíðameistara og eiga þau þrjú börn.
Kristjón var frábær völundur, hafði auga og hendur listamanns, fagur-
keri á allt, sem laut að smíðum. Attræðum var honum falið að smíða eftir-
líkingar af munum úr búi Jóns Sigurðssonar forseta, þar á meðal eins
margbrotinn grip og skrifborð hans. Eru þeir munir í minningarsafni for-
setans í Kaupmannahöfn. Ekki sést hinn minnsti munur á eftirlíkingu og
fyrirmynd.
Lengi hafði verið ætlan mín að riíja upp og festa á blað sumt af því,
sem seint og snemma hafði borið á góma á milli okkar Kristjóns. Spjall
okkar, sem hér birtist, varð til um leið og hann varð níræður og birtist
litlu styttra í Mbl. 21.ágúst 1983. Kristjón lést 28. mars 1995 á 102.
aldursári.
Minningar úr Eyrarsveit
- Foreldrar þínir?
Ég man ekki hvort ég hef nokkurn tíma haft á orði við þig,
að ég hef smám saman verið að eignast mína Eyrbyggju, og
það fyrir tilstuðlan þína og margra annarra. Eitt sinn bar
Flesjuhverfið á góma.