Breiðfirðingur - 01.04.1997, Blaðsíða 145
HORNBJARGS VITI OG HIMINHVOLFIÐ
143
aðra hvora þá var ég kominn út af tröppunni, hangandi eins
og hálfviti út frá henni í greipum fárviðrsins. En þetta bjarg-
aðist.
Eitt vakti þó furðu mína. Veðurtökuna á undan hafði þurri
mælirinn sýnt 1,7 og voti 0,4 í plús. Nú sýndi hinn þurri 5,7
og voti 7,9 báðir í mínus. Að vísu hafði hitinn farið ört
lækkandi því kl. 18 sýndi þurri mælirinn 4,8 og hinn 2,0 í
plús, þar að auki var veðurspáin - ef ég man rétt - heldur
hækkandi hiti. Ég vissi að veðrið var vitlaust, en ég tregaðist
við að viðurkenna að ég væri orðinn það að öllu leyti - það er
svo mörg vitleysan er að manni sest.
En þetta fór ekki milli mála. Endurtekin rýni í mælana stað-
festi fyrsta aflestur. Ég lauk svo því er gera þurfti og lagði af
stað. Það er engu líkara en ég sé að segja frá fyrstu skrefunum
í hnattreisu. En það ætlaði ekki að ganga greitt þrátt fyrir
strengdan kaðal. í baráttunni við að komast að mælahúsinu
hafði ég misst af mér ullarvettlingana og jafnvel átt í streði við
að binda kaðalinn við grindina því mér var orðið svo kalt á
höndunum. Nú fann ég ekki fyrir þeim lengur og heldur ekki
kaðlinum í greipum mínum. Þetta var ekki andskotalaust. En
inn komst ég. Svona lauk þeirri veðurtökunni og rétta boðleið
komst hún og á réttum tíma.
Þrennt þarf ég að nefna til viðbótar. I fyrsta lagi: Algengt er
að hitastig snöggbreytist með tilkomu sunnanáttar og ekki
hvað síst ef himinninn er klæðlítill, að ég tali ekki um eins og
í þetta sinn, því segja má að ekki hafi verið nema einn í ský
síðustu klukkustund fyrir veðurtökuna, svo að í því gat að ein-
hverju leyti falist skýring á breytileika hitastigsins og þeim
rakastigsmun er fram kom. Rétt er og að geta þess, að þegar
ég var að ljúka útreikningum og færslu í veðurbók, þá skall
yfir svartnættis él, er að sjálfsögðu breytti fyrri útkomu á
skyggni og veðri.
Svo er annað: Hinn 28. hafði ölduhæð náð fimm metrum að
minni hyggju. Nú tel ég mig fara mjög nærri um rétta öldu-
hæð, því æ ofan í æ hef ég fengið mína ágiskun staðfesta rétta
af mönnum á skipum er hjá hafa siglt. En þar bar okkur saman