Breiðfirðingur - 01.04.1997, Blaðsíða 114
112
BREIÐFIRÐINGUR
í það glugga, og gekk frá því að öllu leyti, nema hvað dyra-
karm og hurð fékk ég sent að sunnan. Ég smíðaði síðan frysti-
klefa í kjallara með góðri einangrun og setti utaná hann þýskt
frostblásturskerfi. Síðan breytti ég herbergjaskipan á annarri
hæð íbúðarhúss, setti upp ný þil og afhólfaði nýtt klósett á
þeirri hæð. Ég gerði við gamlan fiskhjall og reif svo að síðustu
niður stórt fjárhús og hlöðu þar við, að ógleymdum hænsna-
kofa, er ég hróflaði upp og svo girðingu meðfram bakkanum
næst íbúðarhúsi, enda ekki vanþörf á því. Þetta kann allt að
þykja mikið í borið. En gleymum því ekki, að ég hafði til þess
nægan tíma í samfellt tuttugu og fimm ár.
En tíminn til veðurtöku var ekki aðeins þriðju hverja
klukkustund. Einn þáttur hennar var rakastig lofts. Úti í mæla-
húsi var svokallaður votur mælir, um endakúlu hans var vafin
grisja og þráður settur þar um, er svo lá niður í dós fulla af
vatni. Mismunur á hitastigi þessa vota mælis og hins þurra, er
var við hlið hans, sagði til um rakastigið. En þegar vatnið
fraus í dósinni, varð að klippa þráðinn frá og bera svo vatn á
grisjukúluna, sem næst milli þeirra stunda er lesið var af mæl-
unum. Skrá þurfti í veðurbækur hitastig mæla ásamt öðrum
sjáanlegum þáttum veðurfars, og sjólag. Einnig hreinritaði ég
allar veðurbækur eftir hver mánaðamót. Snjólag varð að mæla
og ef hafís var sjáanlegur, þá að senda veðurstofu í skeyti sem
gleggst yfirlit um staðsetningu hans. Það gat þýtt ferðir uppá
fjall. Allan sólarhringinn var opin neyðarbylgja á talstöð og
reynt að hlusta eftir hvað þar fór fram.
Talstöðvarsamband var við Siglufjörð. Oft heyrðist ekkert í
þeim vegna veðurtruflana. Stundum gat ég komið veðurskeyt-
um til skipa er sigldu framhjá og frá þeim komst það svo til
Reykjavíkur. Eitt sinn heyrðist ekki í neinni stöð nema á Homa-
firði, þótt ótrúlegt sé. Þaðan komst skeyti svo til veðurstofu.
Kjarabarátta
Þegar ég kom að vitanum voru laun vitavarða byggð á hlunn-
indakerfi, er var arfur frá bændasamfélaginu. Þú fékkst frítt