Ljósmæðrablaðið - 01.07.2011, Side 40
40 Ljósmæðrablaðið • júlí 2011
mönnunum sameiginlegir samkvæmt frá-
sögn kvennanna:
• Skapvonska
• Ofur afbrýðissemi
• Ofur stjórnsemi
• Ógnandi hegðun
• Harkaleg viðbrögð við smámunum
• Niðurlægingaþörf.
Allir mennirnir beittu strax andlegu
ofbeldi, níu notuðu líkamlegt ofbeldi, sex
beittu fjárhagslegu ofbeldi og átta beittu
kynferðisofbeldi í samböndunum. Flestir
beittu að minnsta kosti tveimur tegundum
ofbeldis. Flestir mennirnir höfðu mjög mikið
sjálfsálit en sumir lítið. Í töflu 3 má sjá yfirlit
yfir ofbeldismennina og í töflu 4 má sjá
yfirlit yfir ofbeldi mannanna flokkað eftir
tegundum ofbeldis.
Allar sögðu konurnar að andlegt ofbeldi
hefði byrjað strax eða mjög stuttu eftir að
samband hófst. Þær sögðu hins vegar að
þær hefðu ekki áttað sig á því en séð eftir
á að þetta byrjaði strax. Það sem þær töldu
í fyrstu að væri umhyggjusemi hefði í reynd
verið ráðríki og yfirgangur. Konurnar tala
um að þær hafi aldrei fengið frið, þær hafi
stöðugt verið á varðbergi og vissu aldrei
hvað myndi koma næst. „Þú veist þegar
maður var að labba út úr bílnum þá skrans-
aði hann alltaf aðeins áfram skilurðu alltaf
svona niðurlæging allan liðlangan daginn,
skilurðu það var aldrei .. þú veist ég fékk
aldrei frið í rauninni” segir Anna. Undir þetta
tekur Bára: „Stundum þegar ég gekk fram
hjá honum … fram á klósettið, þá gaf hann
mér svona spark … sparkaði svo aftur með
fætinum í mig eða hnykkti svona í mig með
olnboganum til að meiða mig. Ég var yfirleitt
arspurningin sem lögð var fram í þessum
þætti rannsóknarinnar var: Hver er lýsing
íslenskra kvenna af mönnum sem beita
þær ofbeldi á heimili sínu á meðgöngu og
endranær? Nánar tilgreint: Hvað einkennir
ofbeldismennina? Hver er aldur þeirra?
Menntun? Atvinna? Eru þeir haldnir fíkn?
Glíma þeir við geðveiki? Eru þeir þunglynd-
ir? Hversu stjórnsamir eru þeir? Hvað með
sjálfsálit þeirra? Hafa þeir hótað sjálfsmorði
eða gert tilraun til þess? Hvers konar ofbeldi
beittu þeir?
AÐFERÐAFRÆÐI
Til að svara rannsóknarspurningunni
var valin fyrirbærafræðileg aðferð, Van-
couver-skólinn í fyrirbærafræði (Sigríður
Halldórsdóttir, 2000, 2003), sem lýst var
í tveimur síðustu tölublöðum Ljósmæðra-
blaðsins þar sem fyrstu tveir hlutar rann-
sóknarinnar voru kynntir. Þar voru kynnt
þrep rannsóknarferlisins í Vancouver-skól-
anum og hvernig þeim var fylgt í þessari
rannsókn, vitrænum meginþáttum í rann-
sóknarferlinu lýst sem og þátttakendum,
gagnasöfnun og gagnagreiningu ásamt
umfjöllun um réttmæti rannsóknarinnar.
Að lokum var fjallað um siðfræði rann-
sóknarinnar og getið þess leyfis sem
fengið var hjá Vísindasiðanefnd (tilvísun
SVNb2009010006/03.7) og að rannsókn-
in var tilkynnt til Persónuverndar (tilvísun:
S4206/2009/LSL/-).
NIÐURSTÖÐUR
Hér á eftir er ofbeldismönnunum lýst
ásamt ofbeldi þeirra samkvæmt frásögn
kvennanna. Sex þættir voru öllum ofbeldis-
þessa mælikvarða og skiptu ofbeldismönn-
unum í þrennt:
1. Ofbeldismenn sem beita ofbeldi ein-
göngu innan fjölskyldunnar
2. Ofbeldismenn með jaðarpersónuleik-
aröskun
3. Ofbeldismenn sem sýna andfélagslega
hegðun og almennt ofbeldi í samfélaginu.
Þau telja reyndar að þetta séu ekki að-
skildir flokkar heldur nokkurs konar ás
(continuum). Mennirnir í þriðja flokknum eru
reyndar hættulegastir konunum. Þeir eru oft
haldnir einhvers konar fíkn, vilja hafa vald
og stjórn og ofbeldi þeirra er oft handahófs-
kennt og felur í sér meiri ógnun og vekur
þess vegna meiri hræðslu hjá konunum
(Delsol, o.fl., 2003).
Johnson (1995) hefur flokkað heim-
ilisofbeldi og heimilisofbeldismenn í tvennt:
hjónaofbeldi, þar sem ofbeldi milli hjóna
eða para kemur upp einstöku sinnum sem
afleiðing af rifrildi og hins vegar í nándar-
hryðjuverkastarfsemi (intimate terrorism)
þar sem um mikið, títt og alvarlegt ofbeldi
er að ræða þar sem ofbeldi er markvisst
beitt til að ná valdi yfir annarri manneskju.
Fjárhagslegt ofbeldi, ógnanir, hótanir, ein-
angrun og fleira er þá notað í sama tilgangi.
Johnson (1995) segir þessa tegund ofbeldis
afar hættulega og bjarga verði konunni
tafarlaust út úr þeim helgreipum.
Heimilisofbeldi getur verið andlegt,
líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt. Það
geta verið ein eða fleiri tegundir eða allar
tegundir saman. Í töflu 2 má sjá flokkun á
helstu tegundum ofbeldis.
En hvernig lýsa konurnar þessum karl-
mönnum sem beita þær ofbeldi? Rannsókn-
Andlegt ofbeldi Andlegt ofbeldi felur í sér niðurlægjandi hegðun sem hefur það að markmiði að ná stjórn eða valdi á maka eða leiðir til slíkra
yfirráða. Andlegt ofbeldi getur birst í mörgum myndum svo sem niðurlægjandi athugasemdum, ógnunum, hótunum, því að skemma
hluti sem konunni finnst vænt um og eftirliti sem felst í því að konan þarf stöðugt að gera grein fyrir ferðum sínum og gerðum.
Andlegu ofbeldi fylgir yfirleitt afneitun ofbeldis, þvinganir, einangrun og fleira. Þetta er hegðun sem leiðir til ofríkis þess sem henni
beitir eða styrkir slíka hegðun.
Líkamlegt ofbeldi Líkamlegt ofbeldi kemur oft í kjölfar andlegs ofbeldi. Það kemur fram í mörgum myndum eins og: Konan er hrist, lamin, kýld, klóruð,
brennd, rasskellt, tekin kverkataki, svelt, bundin, stungin, heitu vatni hellt á hana, barin með hlutum, hlutum hent í hana, henni hrint
og hent til. Oft gætir ofbeldismaðurinn þess að merki líkamlegs ofbeldis dyljist undir fötum konunnar en oft vill hann líka að þau
sjáist þannig að konan fari ekkert út.
Kynferðislegt ofbeldi Kynferðislegt ofbeldi kemur meðal annars fram í að kona er þvinguð til kynlífsathafna sem hún er mótfallin eða kynferðislegum
svívirðingum. Maðurinn þvingar hana til að horfa á klámmyndir og skoða klámblöð, nauðgar henni eða hótar nauðgun, hótar smitun
kynsjúkdóma, þvingar í vændi eða hindrar brjóstagjöf.
Fjárhagslegt ofbeldi Meðal þess sem fellur undir fjárhagslegt ofbeldi er takmörkun aðgangs að peningum. Maki skammtar konunni peninga sem duga
vart fyrir nauðsynjum, konan verður að gera grein fyrir hverri krónu, maki heldur stöðu fjármála leyndri fyrir konunni, kemur í veg
fyrir að hún vinni sér fyrir launum eða ráðstafar launum hennar, tekur af henni alla peninga svo sem arf eða innistæðu í bankabók,
ráðstafar einn sameiginlegum peningum þeirra o.fl.
Tafla 2. Yfirlit yfir tegundir ofbeldis (Byggt á Ingólfur V. Gíslason (2008) og Samtök um Kvennaathvarf (2008)).