Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Síða 21

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Síða 21
J ó n S i g u r ð s s o n s n ý r a f t u r TMM 2010 · 3 21 heldur muni hafa áhrif á örlög lands og þjóðar um langa framtíð. Jafn­ framt felst í auglýsingunum ásökun um föðurlandssvik, tryggðarof við land og þjóð, í garð þeirra er styðja ríkisábyrgð. Jón er því eins konar gæslumaður þjóðréttinda og þjóðfrelsis. Hafa svona auglýsingar einhver áhrif? Það er óvíst. Þó er ljóst er að þeir sem standa á bak við auglýsingarnar telja að það geti verið málstað sínum til framdráttar að nota þjóðhetjuna á þennan hátt. Í vefritinu Vefþjóðviljanum er stundum leitað í sjóð sögunnar. Þeir sem þar halda á penna viðurkenna þó að menn verði „að fara varlega í að taka látna menn herskildi í baráttu sem fram fer að þeim fjarverandi“. En um Jón Sigurðsson sé þó „margt sem ekki verður af honum haft“. Meðal annars það „að þegar hagsmunir Íslands og annarra ríkja sköruðust, þá tók hann málstað Íslands en ekki hinna“.20 Þetta síðasta er augljóslega skrifað með hliðsjón af Icesave. Og enginn þarf að velkjast í vafa um hvert þessum ummælum er beint. Átökin um Evrópumál á árinu 2009 voru ekki síður heiftarleg en Icesave­deilan. Í júlí samþykkti alþingi tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Í þeirri orrahríð sem þá varð skaut Jón Sigurðsson stundum upp kollinum í ræðum alþingismanna, oftast í málflutningi andstæðinga Evrópusambandsins. Sumum þótti alveg nóg um. „Jóni hefði þótt þetta og Jóni hefði þótt hitt og þess vegna gerum við þetta,“ skrifaði til að mynda blaðamaður Fréttablaðsins og bætti við: „Gaman væri ef þingmenn hefðu meiri áhuga á fólkinu í landinu í dag en löngu dauðum kalli.“21 Athygli vakti ræða sem Sturla Böðvarsson, fyrrum ráðherra og forseti alþingis, flutti 17. júní á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar. Sturla notaði tækifærið og mælti gegn aðild að Evrópu­ sambandinu því á þann klafa mættu stjórnvöld ekki binda þjóðina. „Íslenskir stjórnmálamenn hljóta að horfa til arfleifðar þjóðfrelsis­ hetjunnar, Jóns Sigurðssonar, þegar við metum langtíma hagsmuni lands og lýðs í samskiptum þjóðanna,“ sagði Sturla. Því sjálfstæðið sé öllu öðru æðra og Íslendingum hollt „að minnast kenninga Jóns og krafna um sjálfstæði þegar hugleidd er sú sérstaka staða sem við Íslendingar erum í við byrjun 21. aldar“. Ennfremur: „Eðlilegt er að varpa fram þeirri spurningu hvort það sé í anda hugsjóna Jóns Sigurðs­ sonar að afsala hluta fullveldis okkar og flytja valdið yfir auðlindum sjávar til sameiginlegs og yfirþjóðlegs valds Evrópusambandsins?“ Sturla velkist ekki í vafa um svarið. Íslendingar eigi „að ganga fram í þágu frjálsrar og fullvalda þjóðar á Íslandi, í anda þeirrar arfleifðar sem Jón Sigurðsson skildi eftir sig“.22
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.