Tímarit Máls og menningar - 01.09.2010, Síða 34
P é t u r H . Á r m a n n s s o n o g S i l j a Tr a u s t a d ó t t i r
34 TMM 2010 · 3
jörðina og síðan að byggja á mismunandi hæðum í landinu, þétt við ána með
rísandi fjallshlíð til vesturs. Þetta kallar maður verkefni! […]
Og síðan hönnunin í smáatriðum: Það mikilvægasta á bænum er íbúðarhúsið
fyrir Gunnar Gunnarsson, fjölskyldu hans, vinnuhjú og gesti. Næst koma öll
gripahúsin fyrir allan bústofninn. Við það bætist þrefalt rými fyrir hlöður, heysíló
og forðabúr handa fólki og skepnum svo að allir geti lifað af langa vetur með
sólarhringslöngum nóttum, án þess að svelta. […]
En hvar á ég að leita fyrirmynda að bæ Gunnars Gunnarssonar? Hvað er hér
jarðbundið, þar sem engin byggingarefni eru til staðar nema blágrýtið? Ég vil og
verð að komast hjá því að nota sement og bárujárn sem byggingarefni – og það
tekst. […]
Stolt og látlaus, spengileg og blátt áfram mun hún standa þarna, tvílyft bygg
ingin, ein bæjarhúsa hlaðin úr risastykkjum úr blágrýti, fúgurnar hvítar, glugg
arnir traustir og staðfastir, friðsamlegir og vingjarnlegir – þakið með breiðu,
skýlandi þakskeggi í sama halla og þak alvöru fjallaskála með torfi á þakinu.
Torfið, fallega grænt yfir stutt sumarið, fullt af blómum, eins og túnin og engin
allt í kring; líka í vetrardvala alveg eins og túnin þakin þykkum snjó. Þunna
vetrargrasið hangir þá niður undan þakkantinum eins og gamalt grátt skegg, með
löngum grýlukertum. Svona verða þök allra húsanna, alveg eins, sama hvort um
er að ræða gripahús, hlöður, bústjórahús eða skúra fyrir sleða, vagna, búvinnu
vélar og bíl. […]
Vinnustaður skáldins liggur þannig að á löngum sumardögum horfir sólin á
hann næstum 24 tíma við óþreytandi skrif sín – hún getur þá ekki annað en unnið
eins og hann. Í gegnum gluggann sinn sér hann risastóran, sólfylltan garð sem
Das Kehlsteinhaus.