Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 10

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2013, Page 10
K r i s t r ú n H e i m i s d ó t t i r 10 TMM 2013 · 2 við sögu og síðan Habermas og bandaríkjamaðurinn John Rawls sem báðir gera upp síðari heimsstyrjöld með leit að forsendunum og viðmiðum fyrir stjórnarfari frjálslynds velferðarmódels – í senn innan ríkja og meðal ríkja. Ertu sammála því að Ísland hafi verið ósnortið af alvarleika þessa upp- gjörs við glæpi gegn mannkyni og íslensk stjórnmál séu grunnhyggin að þessu leyti? „Við skulum byrja á lokaspurningunni; ég er að hálfu leyti sammála. Snertingin við nútímann var snögg og yfirþyrmandi á Íslandi og landið fékk sjokksnertingu fyrst og fremst frá og með hernáminu. Nútíminn helltist yfir Ísland eins og hland úr fötu, sagði góðkunningi minn, Guðmundur Ólafs- son (Lobbi), einu sinni, og hafði nokkuð til síns máls. Þetta auðveldaði ekki málefnalega umræðu um það sem var að gerast á meginlandinu. Við það bættist að kommúnisminn var langt í burtu og auðvelt að gleyma sumum þáttum hans. Þessir þættir voru ekki allir af sama tagi, og þar með er ég kominn að spurningunni um alræðið. Ég get tæplega fallist á að þetta hugtak sé höfuðatriði í röksemdafærslu minni en mikilvægt er það. Þess ber þó að gæta að „alræði“ þýðir ekki það sama hjá öllum sem um það hafa skrifað. Minn skilningur stendur nær frönskum höfundum, t.d. Cornelius Castoriadis og Claude Lefort, en Hönnuh Arendt (þótt ég hafi auðvitað lært eitthvað af henni). Alræðishugtakið snertir stjórnarfar og viðmið þess frekar en heil þjóðfélög og ég mundi skilgreina það sem tvöfaldan samruna: samruna pólitísks, efnahagslegs og hugmyndafræðilegs valds í höndum flokksríkisins, og svo kröfu þessa þríeina valds til yfirráða yfir siðferði, lögum og þekkingu. Þetta var „projekt“ frekar en fullkomnað kerfi, náði aldrei að umskapa allt þjóðfélagið í sinni mynd, og skýrir meira á sumum tímabilum og í sumum löndum en öðrum. Alræðið – eða alræðis-tendensinn – er sem sagt alltaf hluti af flóknari samsteypu, og í bókinni sem við erum að ræða reyndi ég að skilgreina hana nánar. Kommúnisminn var ekki heilsteypt kerfi, ekki rökrétt beiting hugmynda- fræði í ófrávíkjanlegu ferli, heldur samþætting margra sögulegra faktora – mixtum compositum, mundum við segja á latínu. Það skýrir líka hvers vegna þróunin í Kína eftir 1989 varð jafn ólík Rússlandi (og Austur-Evrópu) og raun ber nú vitni. Alræðisstefnan á sér auðvitað eldri rætur en atburðarásina eftir 1917. Einhvern tíma ekki löngu fyrir 1910 skrifaði Lenín – í grein fyrir alfræðiorðabók! – að kenning Marx væri almáttug af því að hún væri sönn. Marx hefði ekki tekið undir það, en í þessari staðhæfingu speglast pólitískur kúltúr sem ekki takmarkaðist við Rússland, en náði meiri undirtökum þar en annars staðar. Þennan jarðveg verðum við að taka með í reikninginn. Á hinn bóginn er alræðisstefnan, eins og ég skil hana, sögulegt fyrir- bæri – það þýðir að hún getur tekið breytingum, aðlagast kringumstæðum,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.