Skessuhorn - 16.12.2015, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201512
ECORASTER
JARÐVEGSGRINDUR
Notkunarstaðir:
Bílastæði
Göngustígar
Innkeyrslur
Tjaldstæði
Hestagerði og reiðhallir
Almennt í landbúnaði
Gróðurhús
Græn þök
Aðkomusvæði neyðarbíla
úr endurunnu plasti - endurvinnanlegar -
menga ekki jarðveginn
VER ehf, Kirkjubraut 12 - 300 Akranesi
s: 431 1111 tölvupóstur: ver@ver-ehf.is
Kostir:
Örugg samlæsing
Hleypir aðkomuvatni niður
Eykur burð og styrkir
gljúpan jarðveg
Minni undirbygging
20 ára ábyrgð á efni
Auðlagt og meðfærilegt
Fjöldi aukahluta
Margar gerðir
www.ecoraster.is
Göngustígur við Skútustaðagíga
Bílastæði í Urriðaholti
Hin árlega bókveisla var haldin í
félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík síð-
astliðinn miðvikudag. Bókaveislan
var tileinkuð Þorbjörgu Guðmunds-
dóttur sem starfaði um árabil sem
ljósmóðir. Nemendur 10. bekkjar
Grunnskóla Snæfellsbæjar sáu um að
kynna höfunda og sáu um veitingar.
Að þessu sinni voru fjórir rithöfund-
ar sem lásu úr sínum nýútgefnu bók-
um, en það voru eftirtaldir:
Auður Jónsdóttir las úr bók sinni
Stóri skjálfti, sem fjallar um Sögu,
sem rankar við sér eftir flogakast við
Miklubrautina og þriggja ára sonur
hennar er á bak og burt. Það síðasta
sem hún man er tveggja hæða stræt-
isvagn sem vegfarandi efast um að
hún hafi í raun og veru séð.
Hildur Knútsdóttir las úr bók sinni
Vetrarfríi en bókin fjallar um síðasta
dag fyrir vetrarfrí og segir frá Berg-
ljótu sem hlakkar til að fara í tíund-
bekkjarpartý og Bragi bróðir henn-
ar ætlar að gista hjá vini sínum. For-
eldrar stefna á rómatíska sumarbú-
staðaferð. En allar áætlanir fara fyr-
ir lítið þegar furðulega plága brýst
út. Eftir það hugsar enginn um neitt
annað en að bjarga lífi sínu.
Kristín Helga Gunnarsdóttir las úr
bók sinni Litlar byltingar sem fjallar
um kennslukonuna Gló sem flýr
kaldan klakann og sest að í lukku-
landinu Danmörku. En þegar ell-
in færist yfir leitar hugurinn heim
til fornmæðra og áhrifavalda. Litl-
ar byltingar eru sögur af tíu konum
sem spanna í senn eitt kvöld, eitt ár
og heila öld. Óma raddir mæðgna,
systra og dætra sem dreymir um betri
daga, sléttar götur, frjálsar konur og
börn sem lifa.
Að lokum las Lilja Sigurðardóttir
úr bók sinni Gildra en sagan fjallar
um hvernig Sonja reynir að bæta líf
sitt á meðan hún horfist í augu við
ömurlegar aðstæður sínar, en hún er
þvinguð til að smygla eiturlyfjum.
Hún er fórnarlamb á margan hátt og
pikkföst í vítahring. Agla leikur stórt
hlutverk innan sögunnar og þarf að
undirbúa sig undir að taka afleið-
ingum gjörðar sinna og í þessa sögu
fléttast ástarsaga.
Áheyrendur sem fjölmenntu á
þessa bókakynningu voru ánægð-
ir með lestur höfunda sem árituðu
bækur sína að lestri loknum.
af
Árleg Bókaveisla
fór fram í Klifi
Rithöfundarnir saman komnir með Þorgrími Þráinssyni sem hefur séð um að
útvega höfunda til lesturs á bókaveislunni auk þess að vera bílstjóri og leið-
sögumaður.
Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar
fyrir árið 2016 og þriggja ára fjár-
hagsáætlun fyrir árin 2017-2019
var samþykkt á fundi bæjarstjórnar
10. desember sl. „Samkvæmt áætl-
uninni er fjárhagur bæjarins sterk-
ur og verulegt svigrúm til fram-
kvæmda. Hagnaður er af rekstri
sem er breyting frá því sem var á
síðasta kjörtímabili þegar halli var
á þriggja ára tímabili sem er ekki
heimilt samkvæmt reglum um fjár-
mál sveitarfélaga. Skuldahlutfallið
er áætlað 122,63% á árinu 2016
sem er mikil lækkun frá því sem
var í lok ársins 2013 þegar það var
153,6% og 139,1% eftir afgreiðslu
viðaukaáætlunar haustið 2014 eftir
að rekstur og fjármálastjórn hafði
verið stokkuð upp af nýjum meiri-
hluta bæjarstjórnar. Vert er að vekja
athygli á því að lækkun skuldahlut-
fallsins skapar svigrúm til aukinna
fjárfestinga og lántöku allt að 313
milljónum til viðbótar við það sem
gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun
án þess að fara yfir 150% markið
sem sett er sem hámark,“ segir í
tilkynningu frá Sturlu Böðvarssyni
bæjarstjóra.
Meirihluti bæjarstjórnar bókaði
ályktun vegna afgreiðslu fjárhags-
áætlunar. Þar segir m.a. að í áætl-
uninni sé gert ráð fyrir hækkun
framlaga til Umf. Snæfells, styrk-
ur veittur til sóknarnefndar vegna
viðgerða á Stykkishólmskirkju og
jafnframt veittur styrkur til Hest-
eigendafélagsins vegna byggingar
Reiðskemmu. „Þá er gert ráð fyr-
ir fjármunum til þess mikilvæga
verkefnis sem samþætting hjúkr-
unardeilda sjúkrahúss og dvalar-
heimilis er, til uppbyggingar bú-
setuúrræða fyrir fatlað fólk sem er
samstarfsverkefni inna Félags- og
skólaþjónustu Snæfellinga, bygg-
ingu við Grunnskólann sem hýsi
Amtsbókasafn, Ljósmyndasafnið
og skólabókasafn auk framkvæmda
við gatnagerð og margra smærri
verkefna sem og vinnu við deili-
skipulagningu byggingarsvæða.“
Helstu niðurstöðutölur fjár-
hagsáætlunar Stykkishólmsbæj-
ar fyrir árið 2016 eru þessar: Í A-
hluta er gert ráð fyrir að skatt-
tekjur bæjarsjóðs verði 885,3 m.kr.,
aðrar tekjur 209,2 m.kr. Tekjur
verða því samtals rétt um 1,1 millj-
arður króna. Rekstur málaflokka
er áætlaður um 987,07 m.kr. Fjár-
magnsliðir eru 48,33 m.kr. Mis-
munur tekna og gjalda A-sjóðs
sveitarfélagsins sýnir því afgang
um 33,83 m.kr. Þegar og A og B
hluti eru teknir saman kemur fram
að tekjur eru áætlaðar 1.144.45
m.kr. en rekstrargjöld 1.033.05
m.kr. Fjármagnsliðir eru 70,38
m.kr. Tekjur umfram gjöld verða
því um 41 m.kr. á árinu. Hand-
bært fé frá rekstri er 147,9 m.kr.,
fjárfestingar 128 m.kr., afborganir
langtímalána 144,23 m.kr., lántaka
verður 170 m.kr.
mm
Gert ráð fyrir jákvæðum
rekstri Stykkishólmsbæjar