Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Page 20

Skessuhorn - 16.12.2015, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201520 Áratugahefð er fyrir því að Bridds- félag Borgarfjarðar standi fyrir jóla- sveinatvímenningi í Logalandi um svipað leyti og fyrstu jólasveinarn- ir mæta til byggða. Sú var raunin að þessu sinni og bar spilamenns- kuna upp á sama kvöld og Stekkjas- taur mætti. Hann heiðraði líka sam- komuna og mætti með tvær hækj- ur og þríefldur til leiks. Spilarar mættu úr Borgarfirði, Borgarnesi, Grundarfirði og Akranesi og drógu sig saman í pör og hófu fljótlega að spila 33 spila keppni. Þegar líða tók á kvöldið varð fljótlega ljóst hvert stefndi. Félagarnir Jón Einarsson fyrrum mjólkurbílstjóri og Davíð Sigurðsson dekkjabarón spiluðu af einstöku öryggi allt kvöldið og upp- skáru 72,4% skor þegar yfir lauk. Slíkur árangur sést sjaldan á mótum. Í öðru sæti urðu Lárus Pétursson og Gísli Ólafsson með 54,8%, Heið- ar Baldursson og Magnús Magnús- son urðu þriðju með 52,3%, Guðni Hallgrímsson og Magnús Heiðarr Björgvinsson með 52,1% og Jóhann Oddsson og Guðmundur Kristins- son fimmtu með 52%. Mánudaginn 14. desember var lokakvöld haustsins hjá Bridds- félagi Borgarfjarðar. Spilaður var léttur tvímenningur og mættu átta pör. Sveinbjörn nautahirðir og Baldur pútnabóndi nýttu sér fjar- veru sinna makkera og spiluðu saman. Það gerðu þeir af mikilli snilld og stóðu upp sem sigurvegar- ar með 101 stig. Ungstirnin Heið- ar í Múlakoti og Logi í Steinahlíð urðu næstir með 90 stig og þriðju urðu fyrrverandi skólastjórarnir, Flemming og Sveinn, með 85 stig. Meðalskor kvöldsins var 84. Næst verður spilað í Logalandi 4. janú- ar og þann 11. verður svo aðalfund- ur félagsins. mm Sigruðu í jólasveinatvímenningi með fáheyrðum yfirburðum Jón Einarsson og Davíð Sigurðsson. „Þetta er krefjandi og gríðarlega spennandi verkefni sem við hjá Eim- skip höfum tekist á hendur hér í Stykkishólmi,“ sagði framkvæmda- stjóri Sæferða, Gunnlaugur Grettis- son, þegar hann bauð gesti velkomna í móttöku Eimskips og Sæferða í húsakynnum Sæferða við Stykkis- hólmshöfn. Fyrr á þessu ári festu Eimskip kaup á Sæferðum og föstu- daginn 11. desember var fyrsti fund- ur nýrrar stjórnar haldinn í Stykk- ishólmi. Stjórnina skipa þeir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips sem er formaður stjórnar, Guðmundur Nikulásson framkvæmdastjóri inn- anlandssviðs Eimskips og Hilmar P. Valgarðsson framkvæmdastjóri fjár- mála- og stjórnunarsviðs Eimskips. Í tilefni af þessum tímamótum bauð stjórnin starfsmönnum Sæferða og fleiri gestum til móttöku þar sem þeim gafst kostur á að hitta stjórnar- menn og ræða málin. Gunnlaugur Grettisson í Vest- mannaeyjum, sem nú er fram- kvæmdastjóri Sæferða, er forstöðu- maður ferjureksturs hjá Eimskip og er jafnframt framkvæmdastjóri Herj- ólfs. Í ávarpi hans kom fram að Eim- skip hafi átt gott samstarf við Sæferð- ir með ferjusiglingar til Eyja og kynni hans og starfsfólks Sæferða hafi allt- af verið sérlega ánægjuleg, enda úr- valsfólk að störfum, bæði um borð í Baldri og á skrifstofunni. „Tækifærin í ferðaþjónustunni eru ótalmörg og blasa alls staðar við, ekki síst hér í Stykkishólmi og við Breiðafjörðinn.“ Aðspurður kvað hann áhuga á þátt- töku í vexti ferðaþjónustunnar hafa verið það sem vakti fyrir Eimskip þegar félagið festi kaup á Sæferðum. Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri Stykkishólms, bauð Eimskip velkom- ið til starfa í Stykkishólmi. Lýsti hann ánægju sinni með aðkomu fyrirtækis- ins að þessum rekstri og vildi minna stjórnina á hversu mikilvæg þjónusta Sæferða og ferjunnar Baldurs væri fyrir Hólmara og aðra Breiðfirðinga. Sagðist hann treysta því að Eimskip héldi því merki áfram hátt á lofti. Hjónin Pétur Ágústsson og Svan- borg Siggeirsdóttir, sem stofnuðu Sæferðir og ráku í þrjá áratugi, hafa nú látið af störfum við fyrirtækið. Pétur tók undir orð Sturlu og óskaði nýjum eigendum velfarnaðar í þeirra störfum. Pétur var spurður hvernig honum gengi að venjast „nýju hlut- verki“. Sagði hann það óneitanlega skrítna tilfinningu að vera ekki að vasast í þessum rekstri lengur. Eftir að hafa um fátt annað hugsað í þrjá- tíu ár er þó kominn tími til að sinna ýmsu öðru „sem ég hef örugglega vanrækt og látið sitja á hakanum,“ sagði Pétur brosandi. eb Ný stjórn Sæferða bauð til móttöku í Stykkishólmi María Valdimarsdóttir fjármálastjóri Sæferða á tali við Hilmar Valgarðsson og Gunnlaug Grettisson. Nadine og Svanborgu leiðist ekki með Þorbergi Bæringssyni, húsasmíðameistara. Nokkrir úr áhöfn Baldurs: Björgvin Ólafsson kokkur, Mattías A. Þorgrímsson stýrimaður, Leifur Harðarson háseti og Kristján Jóhannes Karlsson vélstjóri. Pétur Ágústsson og Hilmar P Val- garðsson. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri ávarpaði samkomuna. Stjórn Sæferða með framkvæmdastjóra. Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar 24. desember. Aðfangadagur Lokað. 25. desember. Jóladagur Lokað. 31. desember. Gamlársdagur Lokað. 1. janúar. Nýársdagur Lokað. Bókasafn Akraness 24. desember. Aðfangadagur Lokað. 25. desember. Jóladagur Lokað. 26. desember. Annar í jólum Lokað. 31. desember. Gamlársdagur Lokað. 1. janúar. Nýársdagur Lokað. 2. janúar. Lokað. Héraðsskjalasafn Akraness er lokað frá 22. desember til og með 2. janúar 2015. Safnasvæðið í Görðum 24. desember. Aðfangadagur Lokað. 25. desember. Jóladagur Lokað. 31. desember. Gamlársdagur Lokað. 1. janúar. Nýársdagur Lokað. Akraneskaupstaðu� yfi� jó� og áramó� Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga: SK ES SU H O R N 2 01 5 Jólaopnun íþróttamannvirkja 2015 Íþróttamiðstöðin Jaðarsbakkalaug Dagsetning Dagur Opnunartími 23. desember Miðvikudagur ..... 06:15-18:00 24. desember Fimmtudagur ..... 09:00-11:00 25. desember Föstudagur ........ Lokað 26. desember Laugardagur ...... Lokað 27. desember Sunnudagur ....... 09:00-18:00 28. desember Mánudagur ........ 06:15-22:00 29. desember Þriðjudagur ........ 06:15-22:00 30. desember Miðvikudagur ..... 06:15-22:00 31. desember Fimmtudagur ..... 09:00-11:00 1. janúar Föstudagur ........ Lokað 2. janúar Laugardagur ...... 09:00-18:00 Íþróttahús Vesturgötu Dagsetning Dagur Opnunartími 21. desember Mánudagur ........ 07:00-19:00 22. desember Þriðjudagur ........ 07:00-19:00 23. desember Miðvikudagur ..... 07:00-15:00 24. desember Fimmtudagur ..... Lokað 25. desember Föstudagur ........ Lokað 26. desember Laugardagur ...... Lokað 27. desember Sunnudagur ....... Lokað 28. desember Mánudagur ........ 07:00-19:00 29. desember Þriðjudagur ........ 07:00-19:00 30. desember Miðvikudagur ..... 07:00-19:00 31. desember Fimmtudagur ..... Lokað 1. janúar Föstudagur ........ Lokað 2. janúar Laugardagur ...... Lokað 3. janúar Sunnudagur ....... Lokað Bjarnalaug Lokað frá 21.12 til og með 1.1 2016
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.