Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201520
Áratugahefð er fyrir því að Bridds-
félag Borgarfjarðar standi fyrir jóla-
sveinatvímenningi í Logalandi um
svipað leyti og fyrstu jólasveinarn-
ir mæta til byggða. Sú var raunin
að þessu sinni og bar spilamenns-
kuna upp á sama kvöld og Stekkjas-
taur mætti. Hann heiðraði líka sam-
komuna og mætti með tvær hækj-
ur og þríefldur til leiks. Spilarar
mættu úr Borgarfirði, Borgarnesi,
Grundarfirði og Akranesi og drógu
sig saman í pör og hófu fljótlega að
spila 33 spila keppni. Þegar líða tók
á kvöldið varð fljótlega ljóst hvert
stefndi. Félagarnir Jón Einarsson
fyrrum mjólkurbílstjóri og Davíð
Sigurðsson dekkjabarón spiluðu af
einstöku öryggi allt kvöldið og upp-
skáru 72,4% skor þegar yfir lauk.
Slíkur árangur sést sjaldan á mótum.
Í öðru sæti urðu Lárus Pétursson og
Gísli Ólafsson með 54,8%, Heið-
ar Baldursson og Magnús Magnús-
son urðu þriðju með 52,3%, Guðni
Hallgrímsson og Magnús Heiðarr
Björgvinsson með 52,1% og Jóhann
Oddsson og Guðmundur Kristins-
son fimmtu með 52%.
Mánudaginn 14. desember var
lokakvöld haustsins hjá Bridds-
félagi Borgarfjarðar. Spilaður var
léttur tvímenningur og mættu átta
pör. Sveinbjörn nautahirðir og
Baldur pútnabóndi nýttu sér fjar-
veru sinna makkera og spiluðu
saman. Það gerðu þeir af mikilli
snilld og stóðu upp sem sigurvegar-
ar með 101 stig. Ungstirnin Heið-
ar í Múlakoti og Logi í Steinahlíð
urðu næstir með 90 stig og þriðju
urðu fyrrverandi skólastjórarnir,
Flemming og Sveinn, með 85 stig.
Meðalskor kvöldsins var 84. Næst
verður spilað í Logalandi 4. janú-
ar og þann 11. verður svo aðalfund-
ur félagsins.
mm
Sigruðu í jólasveinatvímenningi
með fáheyrðum yfirburðum
Jón Einarsson og Davíð Sigurðsson.
„Þetta er krefjandi og gríðarlega
spennandi verkefni sem við hjá Eim-
skip höfum tekist á hendur hér í
Stykkishólmi,“ sagði framkvæmda-
stjóri Sæferða, Gunnlaugur Grettis-
son, þegar hann bauð gesti velkomna
í móttöku Eimskips og Sæferða í
húsakynnum Sæferða við Stykkis-
hólmshöfn. Fyrr á þessu ári festu
Eimskip kaup á Sæferðum og föstu-
daginn 11. desember var fyrsti fund-
ur nýrrar stjórnar haldinn í Stykk-
ishólmi. Stjórnina skipa þeir Gylfi
Sigfússon forstjóri Eimskips sem
er formaður stjórnar, Guðmundur
Nikulásson framkvæmdastjóri inn-
anlandssviðs Eimskips og Hilmar P.
Valgarðsson framkvæmdastjóri fjár-
mála- og stjórnunarsviðs Eimskips.
Í tilefni af þessum tímamótum bauð
stjórnin starfsmönnum Sæferða og
fleiri gestum til móttöku þar sem
þeim gafst kostur á að hitta stjórnar-
menn og ræða málin.
Gunnlaugur Grettisson í Vest-
mannaeyjum, sem nú er fram-
kvæmdastjóri Sæferða, er forstöðu-
maður ferjureksturs hjá Eimskip og
er jafnframt framkvæmdastjóri Herj-
ólfs. Í ávarpi hans kom fram að Eim-
skip hafi átt gott samstarf við Sæferð-
ir með ferjusiglingar til Eyja og kynni
hans og starfsfólks Sæferða hafi allt-
af verið sérlega ánægjuleg, enda úr-
valsfólk að störfum, bæði um borð í
Baldri og á skrifstofunni. „Tækifærin
í ferðaþjónustunni eru ótalmörg og
blasa alls staðar við, ekki síst hér í
Stykkishólmi og við Breiðafjörðinn.“
Aðspurður kvað hann áhuga á þátt-
töku í vexti ferðaþjónustunnar hafa
verið það sem vakti fyrir Eimskip
þegar félagið festi kaup á Sæferðum.
Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri
Stykkishólms, bauð Eimskip velkom-
ið til starfa í Stykkishólmi. Lýsti hann
ánægju sinni með aðkomu fyrirtækis-
ins að þessum rekstri og vildi minna
stjórnina á hversu mikilvæg þjónusta
Sæferða og ferjunnar Baldurs væri
fyrir Hólmara og aðra Breiðfirðinga.
Sagðist hann treysta því að Eimskip
héldi því merki áfram hátt á lofti.
Hjónin Pétur Ágústsson og Svan-
borg Siggeirsdóttir, sem stofnuðu
Sæferðir og ráku í þrjá áratugi, hafa
nú látið af störfum við fyrirtækið.
Pétur tók undir orð Sturlu og óskaði
nýjum eigendum velfarnaðar í þeirra
störfum. Pétur var spurður hvernig
honum gengi að venjast „nýju hlut-
verki“. Sagði hann það óneitanlega
skrítna tilfinningu að vera ekki að
vasast í þessum rekstri lengur. Eftir
að hafa um fátt annað hugsað í þrjá-
tíu ár er þó kominn tími til að sinna
ýmsu öðru „sem ég hef örugglega
vanrækt og látið sitja á hakanum,“
sagði Pétur brosandi. eb
Ný stjórn Sæferða bauð til
móttöku í Stykkishólmi
María Valdimarsdóttir fjármálastjóri Sæferða á tali við Hilmar Valgarðsson og
Gunnlaug Grettisson.
Nadine og Svanborgu leiðist ekki með Þorbergi Bæringssyni, húsasmíðameistara.
Nokkrir úr áhöfn Baldurs: Björgvin Ólafsson kokkur, Mattías A. Þorgrímsson
stýrimaður, Leifur Harðarson háseti og Kristján Jóhannes Karlsson vélstjóri.
Pétur Ágústsson og Hilmar P Val-
garðsson.
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri ávarpaði samkomuna. Stjórn Sæferða með framkvæmdastjóra.
Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar
24. desember. Aðfangadagur
Lokað.
25. desember. Jóladagur
Lokað.
31. desember. Gamlársdagur
Lokað.
1. janúar. Nýársdagur
Lokað.
Bókasafn Akraness
24. desember. Aðfangadagur
Lokað.
25. desember. Jóladagur
Lokað.
26. desember. Annar í jólum
Lokað.
31. desember. Gamlársdagur
Lokað.
1. janúar. Nýársdagur
Lokað.
2. janúar.
Lokað.
Héraðsskjalasafn Akraness er lokað frá
22. desember til og með 2. janúar 2015.
Safnasvæðið í Görðum
24. desember. Aðfangadagur
Lokað.
25. desember. Jóladagur
Lokað.
31. desember. Gamlársdagur
Lokað.
1. janúar. Nýársdagur
Lokað.
Akraneskaupstaðu� yfi� jó� og áramó�
Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga:
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Jólaopnun íþróttamannvirkja 2015
Íþróttamiðstöðin Jaðarsbakkalaug
Dagsetning Dagur Opnunartími
23. desember Miðvikudagur ..... 06:15-18:00
24. desember Fimmtudagur ..... 09:00-11:00
25. desember Föstudagur ........ Lokað
26. desember Laugardagur ...... Lokað
27. desember Sunnudagur ....... 09:00-18:00
28. desember Mánudagur ........ 06:15-22:00
29. desember Þriðjudagur ........ 06:15-22:00
30. desember Miðvikudagur ..... 06:15-22:00
31. desember Fimmtudagur ..... 09:00-11:00
1. janúar Föstudagur ........ Lokað
2. janúar Laugardagur ...... 09:00-18:00
Íþróttahús Vesturgötu
Dagsetning Dagur Opnunartími
21. desember Mánudagur ........ 07:00-19:00
22. desember Þriðjudagur ........ 07:00-19:00
23. desember Miðvikudagur ..... 07:00-15:00
24. desember Fimmtudagur ..... Lokað
25. desember Föstudagur ........ Lokað
26. desember Laugardagur ...... Lokað
27. desember Sunnudagur ....... Lokað
28. desember Mánudagur ........ 07:00-19:00
29. desember Þriðjudagur ........ 07:00-19:00
30. desember Miðvikudagur ..... 07:00-19:00
31. desember Fimmtudagur ..... Lokað
1. janúar Föstudagur ........ Lokað
2. janúar Laugardagur ...... Lokað
3. janúar Sunnudagur ....... Lokað
Bjarnalaug
Lokað frá 21.12 til og með 1.1 2016