Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Page 40

Skessuhorn - 16.12.2015, Page 40
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201540 Helgi Ólafur Jakobsson Vestlendingur ársins Í ársbyrjun var Helgi Ólafur Jakobsson kennari í Brekkubæj- arskóla útnefndur Vestlendingur ársins 2014 af Skessuhorni. Helgi brást hratt og fumlaust við þegar einn nemenda hans, níu ára drengur, brenndist á neyðarblysi við upphaf skólaárs- ins og kviknaði í fötum hans. Nokkrir bekkjarfélagar fundu blysið við göngustíg nálægt Brekkubæjarskóla og gerðu sér ekki grein fyrir hvað þeir höfðu í höndunum. Einn drengjanna stakk blysinu í vasann þar sem kviknaði á því. Eldurinn náði að læsa sig í föt drengsins og hlaut hann 2. og 3. stigs bruna á 15% líkamans. Helgi vissi að drengurinn þyrfti mikla kælingu og það strax. Hringt hafði verið á sjúkrabíl en Helgi ákvað að fljótlegra væri að hlaupa með drenginn á sjúkrahúsið, sem er í næsta húsi, frekar en að bíða eftir bílnum. Þannig kom Helgi drengnum hratt og örugglega undir læknishendur. Fyrsta barnið fæddist á nýársdag Á nýársdag klukkan 18:59 fæddist fyrsta barnið á fæðingadeild HVE á Akranesi. Var það stúlka, 3.725 grömm á þyngd og 51 sentímetri að lengd. Stúlkan er fjórða barn foreldra sinna, Hróðnýjar Kristjánsdóttur og Arons Páls Haukssonar sem búsett eru á Patreksfirði. Fyrsta barnið á landinu fæddist hins vegar þegar klukkuna vantaði fjórar mínútur í fjögur á nýárs- nótt. Það er Skagamaðurinn Sigurmon Hartmann Sigurðs- son sem er faðirinn en móðirin Gróa Sif Jóelsdóttur unnusta hans. Páll á Húsafelli sæmdur riddarakrossi Eins og venja er á nýársdag var efnt til hátíðlegrar athafnar á Bessastöðum þar sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Meðal ellefu Íslend- inga sem veittu orðunni viðtöku þá var listamaðurinn Páll Guðmundsson á Húsafelli. Var hann sæmdur riddarakrossi fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar. Fyrr í þessum mán- uði var heimildamynd um Pál frumsýnd í Húsafelli, en mynd- in verður sýnd í Ríkissjónvarpinu á nýju ári. Lögregluembætti sameinuð í eitt Embætti Lögreglunnar á Vesturlandi varð til um áramótin þegar lögregluliðin á Akranesi, Borgarnesi, Dölum og á Snæ- fellsnesi sameinuðust í eitt lögreglulið. Úlfar Lúðvíksson, fyrrum sýslumaður á Patreksfirði, tók við embætti lögreglu- stjóra á Vesturlandi. Aðallögreglustöð embættisins er í Borg- arnesi. Nokkur barátta sveitarfélaga hafði verið um að hafa embættið hjá sér, en þarna urðu Borgnesingar hlutskarpari. Almennt telja flestir að sameining lögreglunnar á Vesturlandi hafi tekist vel. Samstarfið hefur m.a. leitt til þess að ýmis mál hafa verið upplýst fyrr en áður og menn fara til aðstoðar koll- egum sínum í öðrum byggðarlögum þegar þurfa þykir. Lét af embætti eftir tvo áratugi Stefán Skarphéðinsson lét af embætti sýslumanns og lög- reglustjóra í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu um áramót. Hann varð sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu í mars 1994 og þjónaði því Borgfirðingum í tvo áratugi. Lét hann af störfum bæði vegna aldurs og einnig vegna breytinga á sýslumanns- og lögreglustjóraumdæmum landsins, sem tóku gildi um áramót- in. Sýslumaður fyrir Vesturland er Ólafur K Ólafsson, sem áður gegndi embætti sýslumanns Snæfellinga, og er embættið til húsa í Stykkishólmi en sýsluskrifstofur á fleiri stöðum. Verulegt brunatjón hjá Jötunstáli Á þrettándanum, þriðjudaginn 6. janúar, kom upp eldur í húsakynnum vélsmiðjunnar Jötunstáls á Breiðinni á Akranesi. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað á stað- inn um leið og elds varð vart. Þrátt fyrir að greiðlega hafi gengið að ráða niðurlögum eldsins urðu allnokkrar hita- og sótskemmdir á húsnæðinu. Allar raflagnir eyðilögðust sem og flest rafmagnstæki. Ekki mátti miklu muna að verr færi því tréverk hússins sviðnaði og lá við íkveikju. Eins mátti sjá á gas- kútum að þeir hitnuðu verulega. En með skjótum viðbrögð- um slökkviliðs var komið í veg fyrir stórbruna. Langreyðareistu í bjór Brugghús Steðja sendi snemma á árinu frá sér þorrabjórinn Hval 2. Er hann kryddaður með lang- reyðareistum sem verkuð eru eftir gamalli íslenskri hefð. Eistun eru léttsölt- uð og síðan taðreykt. Heil- brigðiseftirlit Vesturlands gerði engar athugasemdir við framleiðslu bjórsins, en eftir sem áður er óheimilt að framleiða bjór sem inniheldur hvalamjöl, eins og bruggmeistarar Steðja komust að þegar fyrirrennari Hvals 2 var sendur á markaðinn á sínum tíma. Skipað í nýja stöðu prests á Akranesi Það var einróma álit valnefndar Garðaprestakalls á Akranesi að mæla með því að séra Þráinn Haraldsson yrði skipaður prestur í nýja stöðu á Akranesi. Agnes M. Sigurðardóttir, bisk- up Íslands, staðfesti niðurstöðu valnefndar og var séra Þrá- inn settur í embætti á hvítasunnudag. Hann hefur síðan þjón- að Skagamönnum við hlið séra Eðvarðs Ingólfssonar sóknar- prests. Fréttaannáll ársins 2015 í máli og myndum Framhald á næstu opnu Eftir að undirritaður hóf að starfa sem blaðamaður hafa gárungarnir sem hann kallar vini sína oft undið sér upp að honum og spurt kankvíslega: „Hvað er að frétta?“ Undirritaður hefur með tíð og tíma vanið sig á að svara því engu heldur rétta spéfuglunum nýjasta tölublað Skessuhorns og ganga knarreistur á brott. Þar er jú allt sem skiptir máli. Hér skal árið 2015 rifjað upp og drep- ið á nokkrum atriðum sem komust á síður Skessuhorns á árinu. Auðvitað verður slík upptalning aldrei tæmandi, né vísindaleg, enda munu blaðamenn Skessuhorns hafa skrifað vel á sjötta þúsund fréttir og viðtöl á árinu sem birst hafa á rétt innan við tvö þúsund síðum. Vestlendingar gerðu vel í ferðaþjónustunni á árinu og fengu stórkostlega viðurkenningu og tækifæri sem ferðamannasvæði til framtíðar. Ljósleiðaravæðing landsbyggðarinnar er í fullum gangi og nokkur skriður virðist vera að komast á það mál. Allnokkuð var sótt af fiski úr sæ og er það vel, því fiskur er herramannsmat- ur og veiði á honum atvinnuskapandi. Í fréttum ársins kom fram að flestir íbúar á Vesturlandi hafa viðurværi sitt af þjónustu, iðnaði og sjávarútvegi. Hér mælist hag- vöxtur sá mesti á öllu landinu og því ættum við Vest- lendingar að bera okkur vel og geyma „kvartið“ til betri tíma. Kjaradeilur voru áberandi á árinu og settu strik í starfsemi nokkurra atvinnugreina. Litlu munaði að kæmi til mjög víðtækra verkfalla. Sérstaklega voru við- ræður ríkis og heilbrigðisstétta erfiðar. Engar kosningar voru á árinu. Hvorki var kosið til Al- þingis, sveitarstjórna eða til setu á Bessastöðum. Það er ágætt að vera laus við kosningar þótt undirritaður verði að viðurkenna að hann sé boðinn og búinn að þiggja kaffi hjá fulltrúum hinna ýmsu skoðana þegar að því kemur. Pólitíkin er þó aldrei langt undan og á árinu sem er að líða vakti stórsókn Pírata í skoðanakönnun- um mikla athygli. Ekki var laust við að farið væri að gæta pirrings í röðum eldri stjórnmálaafla af þessum sökum, sem ekkert skilja í þessum skilaboðum kjósenda. Langt væri seilst ef telja ætti París landfræðilega sem hluta Vesturlands. Borgin átti þó hug Vestlendinga og raunar landsmanna allra eftir hryðjuverkaárásir fyr- ir skömmu. Í kjölfar þeirra fóru að óma stöðugt hærra raddir haturs, fáfræði, hræðslu og fordóma af ýmsu tagi. Einhverjir sáu sig knúna til að nýta tækifærið og að- greina sig frá fólki sem hefur aðrar lífsskoðanir, úthrópa það og reyna að hefja sig skör ofar því. Þeir áttuðu sig ekki á að um leið sigu þeir sjálfir ofan í og sitja nú fast- ir í feni mannfyrirlitningar og virðast hafa gleymt því að fólk er fólk, óháð því hvaða trúfélögum það tilheyr- ir. Það er á okkar ábyrgð að hressa upp á minni þeirra. París verður svo enn meira og vonandi á jákvæðari hátt á vörum okkar á næsta ári þegar fótfráir knattspyrnu- menn héðan fara utan og keppa við aðrar sterkar þjóð- ir í knattspyrnu. Segið svo að það sé ekkert í fréttum! Það er alltaf eitthvað að frétta og undirritaður mun glaður benda á nýjasta tölublað Skessuhorns þegar spurningin „hvað er að frétta?“ verður borin upp næst. Ást og friður, Kristján Gauti Karlsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.