Skessuhorn - 16.12.2015, Side 50
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201550
Það helsta úr íþróttalífi ársins 2015
Framhald á næstu opnu
Karlalið Snæfells missti
af úrslitakeppninni
Eftir tap gegn Keflavík í næstsíðustu umferðinni síðastliðið
vor var ljóst að karlalið Snæfells myndi hafna í níunda sæti og
missa af úrslitakeppninni í fyrsta skipti í mörg ár. Gengi liðs-
ins hefur verið upp og ofan það sem af er vetri. Það hefur unn-
ið fjóra af fyrstu tíu leikjum sínum og situr í 10. sæti deildar-
innar. Liðið gekk í gegnum töluverðar mannabreytingar fyr-
ir keppnistímabilið og hefur auk þess lent í smá meiðslavand-
ræðum upp á síðkastið, eitthvað sem liðið má illa við því hóp-
urinn er ekki breiður fyrir. Markmið vetrarins verður að halda
liðinu í deild þeirra bestu og eins og mótið hefur spilast hing-
að til er það markmið á áætlun. Lítið má aftur á móti út af
bregða.
Skallagrímur og ÍA aftur
saman í 1. deild
Skallagrímur féll úr Domino‘s deild karla í körfuknattleik á
vormánuðum og leikur nú í 1. deildinni ásamt nágrönnum sín-
um í ÍA. Skallagrímur hefur gengið í gegnum miklar manna-
breytingar og teflir fram mjög ungu og spræku liði þennan
veturinn. Liðið hefur byrjað prýðilega, hefur unnið fimm af
fyrstu sjö leikjum sínum og er í fjórða sæti deildarinnar og á
góðan möguleika á að komast í úrslitakeppnina um laust sæti
í úrvalsdeild, haldi þeir áfram á sömu braut. ÍA féll úr leik í
úrslitakeppninni um laust sæti í úrvalsdeild þegar liðið tap-
aði tveimur leikjum gegn Hamri frá Hveragerði. Gengi liðs-
ins það sem af er vetri hefur verið þokkalegt, liðið hefur unn-
ið fjóra af fyrstu sjö leikjum sínum og situr í þéttum pakka um
miðja deild. Hópurinn hélst að stærstum hluta óbreyttur frá
fyrri leiktíð. Liðið er reynslumikið og kjarni þess hefur spilað
lengi saman og stefna Skagamenn á úrslitakeppnina í vor.
Kvennalið Skallagríms
endurvakið
Síðsumars var tilkynnt að körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefði ákveðið að endurvekja meistaraflokk kvenna eftir tveggja
ára hlé og senda lið til þátttöku í Íslandsmótinu. Leikur liðið í
1. deild kvenna. Farið var út í metnaðarfulla þjálfararáðningu
þegar spænski þjálfarinn Manuel Rodriguez var fenginn til að
stýra liðinu og hefur Skallagrímur heldur betur farið vel af
stað. Liðið er taplaust eftir fyrstu tíu leiki tímabilsins og trón-
ir langefst á toppi 1. deildarinnar.
Skagakonur leika í Pepsi
deild að ári
ÍA tryggði sér sæti í Pepsi deild kvenna í knattspyrnu á næsta
ári með sigri á Grindavík í úrslitakeppni 1. deildarinnar. Lið-
ið gerði gott betur og hampaði Íslandsmeistaratitli 1. deildar
með því að leggja FH í úrslitaleiknum á Akranesvelli með einu
marki gegn engu. Liðið lék trausta vörn allt mótið en gekk
illa að skora framan af sumri. Á síðara hluta mótsins var hins
vegar eins og allar flóðgáttir hefðu brostið. Liðið vann hvern
stórsigurinn á fætur öðrum og lék glimrandi knattspyrnu allt
til loka mótsins og er vel að úrvalsdeildarsætinu komið.
Víkingur tryggði sér sæti
í úrvalsdeild
Lið Víkings Ólafsvíkur tryggði sér sæti Íslandsmeistaratitil 1.
deildar karla í knattspyrnu og þar með sæti í í Pepsi deildinni
með ótrúlegum 2-7 sigri á Grindvíkingum þegar þrjár umferð-
ir voru eftir af mótinu. Liðið endaði mótið með 54 stig sem er
stigamet í 1. deild. Víkingur byggði árangur sinn á ógnarsterk-
um varnarleik, fékk aðeins 14 mörk á sig í 22 leikjum. Sóknar-
leikur liðsins tók svo við sér á síðari hluta mótsins og munaði þá
miklu um framlag Hrvoje Tokic sem gekk til liðs við Víking á
miðju sumri. Hann skoraði tólf mörk í aðeins átta leikjum.
Íslandsmótið í golfi var
haldið á Garðavelli
Golfklúbburinn Leynir á Akranesi átti veg og vanda að fram-
kvæmd Íslandsmótsins í golfi á 50 ára afmælisári klúbbsins.
Mótið fór fram á Garðavelli helgina 23.-25. júlí og fremstu
kylfingar landsins börðust um Íslandsmeistaratitilinn. Fór svo
að lokum að Þórður Rafn Gissurarson úr GR hampaði Íslands-
meistaratitli karla á nýju mótsmeti, tólf höggum undir pari.
Signý Arnórsdóttir úr GK varð Íslandsmeistari kvenna, en að-
eins eitt högg skildi á milli hennar og Skagakonunnar Valdís-
ar Þóru Jónsdóttur úr Leyni. Framkvæmd mótsins tókst eins
og best verður á kosið og fékk Leynir mikið og verðskuldað lof
fyrir. Völlurinn var glæsilegur, aðstaðan öll til fyrirmyndar og
bæði kylfingar og fjölmargir gestir mótsins nutu góðs af.
Skagamenn héldu sæti
sínu í úrvalsdeild karla
Skagamenn náðu markmiðum sínum og vel það í Pepsi deild
karla í knattspyrnu. Algert forgangsatriði var að halda liðinu í
deildinni. Þegar tvær umferðir voru eftir af mótinu var ljóst að
það markmið næðist. Að lokinni síðustu umferð varð sjöunda
sætið staðreynd og mega Skagamenn vel við una. Leikur liðs-
ins fór batnandi eftir því sem leið á sumarið, margir reyndari
leikmanna léku vel og yngri leikmenn stigu upp.
Vestlendingar geta státað af ótrúlega fjölbreyttu og
blómlegu íþróttalífi og eiga víða íþróttafólk í fremstu
röð. Á svæðinu er lagt stund á allt frá bridds til torfæru,
skotfimi til knattspyrnu og hestaíþrótta til langhlaups.
Blaðið myndi vart endast til að útlista öll afrek vest-
lenskra íþróttamanna á árinu, úrslit og viðburði. Því
verður hér aðeins stiklað á stóru og farið yfir það allra
helsta sem gerðist á undangengnu ári.