Skessuhorn - 16.12.2015, Síða 63
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 63
Englarnir sem birtust hirð-
unum á Betlehemsvöllum fyr-
ir svo margt löngu síðan höfðu
boðskap að færa. Það var þeirra
að færa hirðunum fregnir af
barni sem hafði fæðst í ná-
grenninu. Boðskapur englanna
kom heim og saman með öðr-
um eldri boðskap frá spámann-
inum Jesaja þar sem hann segir:
„Því barn er oss fætt, sonur er
oss gefinn“.
Saga fyrstu jólanna er saga af
fæðingu barns. Það eru mörg
börn sem fæðast á hverjum
degi við misjafnar aðstæður en
eitt er þó sameiginlegt. Lít-
ið barn setur lífið ávallt í nýtt
samhengi. Það þekkja allir for-
eldar. Það sem áður var hulið
verður skyndilega ljóst. Kær-
leikur Guðs kemur í heiminn
í litlu barni, í öllum börnum,
þar opinberast okkur lífið og
náð Guðs.
Lítið barn setur lífið í nýtt
samhengi, litla barnið sem
fæddist á jólanótt setti veröld-
ina alla í nýtt samhengi. „Yður
er í dag frelsari fæddur,“ sögðu
englarnir. Jólanóttin geym-
ir sögu af barninu sem kom-
ið er frá Guði, barninu sem
komið er til að frelsa mennina,
barninu sem öllu breytir. Saga
jólanæturinnar er sagan af und-
ursamlegri náð Guðs.
Brynja Einarsdóttir frá Akra-
nesi kemst svo að orði í fallegu
ljóði sínu um jólanóttina. Ég
læt ljóð hennar einnig vera mín
lokaorð. Guð gefi ykkur öllum
gleðileg jól.
Sr. Þráinn Haraldsson
prestur Akraneskirkju.
Jólahugvekja frá presti
Barn er oss fætt!
Blessaða nótt allra nátta
náð gefur mér.
Englarnir saman syngja
og sameinast þér.
Barn hinnar blessuðu móður
ber heilagan blæ
um brotnar og beygðar sálir
á brakandi glæ.
Sverfa að stormar og kala
þeir svíða um hríð.
Þú nótt allra nátta ert komin
svo nálæg og blíð.
Umlykur ljósið og speglast í
lindinni,
björkin og svolítill kvistur
sem nærast í helgustu nótt þinni,
nýfæddur Kristur.
(Brynja Einarsdóttir)
Fallegar skreytingar og
gjafavara í úrvalsokki
Blómalindin Kafhornið, Búðardal
Frá House Doctor * Interiörhuset *
heklaislandi * Heimaey (gæðakerti) og .
Íslenskt og erlent í bland og nú vörurnar beint frá
Erpsstöðum.
Eins og allir vita verður sama gamla stemningin á
Þorláksmessu, jólablómvöndurinn og .
Kafdrykkirnir eru nú í jólaklæðunum, rjóma lagaðir
og gómsætir ásamt kafkruðeríi.
Piparmynta - gingerbread, og kanill.
Alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi - sjáumst.
BLÓMAHORNIÐ KAFFIHORNIÐ * VESTURBRAUT 6 * BÚÐARDAL * 434 1606 / 894 6808 BLOMALIND.IS * BLOMALINDIN@SIMNET.IS
Afgreiðslutími í desember:
Mánudaga ..................................................16:00 – 18:00
Þriðjudaga – föstudaga ...............................11:00 – 18:00
Laugardaginn 19. des. ................................12:00 – 16:00
Sunnudaginn 20. des. ................................. 16:00 – 20:00
Mánudaginn 21. des. ..................................11:00 – 18:00
Þriðjudaginn 22. des. .................................. 11:00 – 20:00
Miðvikudaginn 23. des. ..............................11:00 – 23:00
Fimmtudaginn 24. des. ...............................10:00 – 13:00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5