Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 71
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 71
Kveðjur úr héraði
Jólin er tími hefðanna. Bæði innan
hverrar fjölskyldu, meðal þjóða og
innan trúarbragða. Margar hefðir
veita öryggiskennd, það er þægilegt
að vita að hlutirnir hafa ekki koll-
varpast. Hin hliðin á hefðunum er að
þær geta valdið álagi og streitu. Það
getur kostað mikla vinnu að uppfylla
væntingar allra á heimilinu. Því er
afar nauðsynlegt að þau verk lendi
ekki á einni manneskju heldur axli
þar allir ábyrgð.
Hluti af þeim hefðum sem skap-
ast hafa á jólaföstu er að ýmis félaga-
samtök standa fyrir samkomum af
ýmsum toga. Hér í uppsveitunum
má nefna sem dæmi jólamarkaðinn
í Nesi og tónleika Reykholtskórs-
ins – hvort tveggja afar vel heppnað.
Að baki viðburða sem þessum liggja
óteljandi vinnustundir, að lang mestu
leyti unnar í sjálfboðavinnu. Ég dáist
alltaf jafn mikið að því óeigingjarna
starfi sem íbúar landsbyggðarinnar
leggja á sig varðandi menningu og
mannfagnaði og stuðla þar með að
bættara og gjöfulla samfélagi.
Þar sem þessar línur eru skrifaðar
í lok óveðursins sem gekk yfir land-
ið 7. – 8. desember þá er mér einnig
ofarlega í huga allt það sjáfboðastarf
sem unnið var í tengslum við það og
átti án efa stóran þátt í að mannskaði
varð enginn og tjón tiltölulega lít-
ið. Það er frábært hve vel tókst til að
bregðast við þessu óveðri. Svo virð-
ist sem við eigum mjög góðar við-
bragðsáætlanir og allir sem koma
að þeim málum vita hvað gera skuli
þannig að aðgerðir verði sem mest
fyrirbyggjandi og hjálparstarf, þegar
í óefni er komið, þar af leiðandi mun
minna. Einnig virðist almenningur
hafa tekið ábyrgð á sér og sínum og
farið eftir þeim leiðbeiningum sem
gefnar voru út. Þessu óveðri hefur
verið jafnað við febrúarveðrin 1981
og 1991. Nú búum við mun bet-
ur en þá vegna þess að fólk er betur
undirbúið, getur t.d. nálgast veður-
spár marga daga fram í tímann. Mér
er oft hugsað til þeirra sem urðu að
lesa veðurspár úr skýjafari, hegðun
skepnanna og hvernig gigtin lagð-
ist í mjöðmina. Á þeim tíma var góð-
ur forystusauður eða vitrir og veður-
glöggir hestar metfé. Má þar nefna
Kengálu Ásmundar á Bjargi og Eitil
Fjalla-Bensa í því sambandi.
Þó svo að ég hafi ekki glaðst yfir
nýafstöðnu óveðri þá held ég að það
sé nauðsynlegt fyrir okkur að vera
minnt á það stöku sinnum að við
ráðum ekki yfir náttúruöflunum. Við
getum hins vegar lært á þau og varast
að ofbjóða náttúrunni. Þessa dagana
heyrum við af flóðum í Bretlandi og
ofsafengnum þurrkum víða í heim-
inum. Eru þetta e.t.v. skilaboð til
loftslagsráðstefnunnar í París? Von-
andi vega þessar fréttir eitthvað á
þeim vettvangi þannig að allir verði
tilbúnir að fórna einhverju í stað
þess að benda á að aðrar þjóðir þurfi
að rifa seglin svo ná megi tökum á
breyttum aðstæðum á jörðinni.
Um daginn birtust fréttir af því
að Tónlistarskóli Borgarfjarðar og
Safnahús Borgarfjarðar hefðu hlotið
viðurkenningu fyrir samstarf þar sem
nemendur Tónlistarskólans semja og
flytja lög við ljóð okkar bestu skálda.
Í þessari vinnu fá yngri íbúar hér-
aðsins tækifæri til að efla hæfileika
sína og komast að því hvers þeir eru
megnugir. Það hefur verið verulega
ánægjulegt að vera á tónleikunum
þar sem verkin eru síðan flutt. Í sum-
um tilfellum eru tónsmiðirnir alveg
hissa á að þeim hafi tekist að semja
svona gott lag. Þessar tvær stofnan-
ir ásamt Snorrastofu og Landbúnað-
arsafninu á Hvanneyri eru afar mik-
ilvægar fyrir mannlíf í byggðarlaginu
og hafa skilað því margfalt sem sveit-
arfélagið hefur lagt til þeirra. Margt
af því sem gert er í héraðinu, m.a.
varðandi jólin og aðdraganda þeirra,
á beint eða óbeint rætur að rekja til
þess starfs sem þar er unnið og veit-
ir okkur gleði og ánægju sem er var-
anlegri en við finnum í veraldlegum
hlutum.
Gleðileg jól!
Ingibjörg á Fróðastöðum
Óeigingjarnt starf í
þágu okkar allra
Jökulhellir.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
ÞÖKKUM ÁNÆGJULEGT SAMSTARF Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA
Óskum Akurnesingum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
GLEÐILEG JÓL