Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Side 73

Skessuhorn - 16.12.2015, Side 73
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 73 Kveðjur úr héraði „Jólin, jólin, jólin koma brátt,“ söng Svanhildur Jakobsdótt- ir og það gera þau jú á hverju ári, sama hvað raular og tautar. Uppá- halds tíminn minn, aðventan, er nú gengin í garð. Ljós kvikna í gluggunum og lífið einhvern meg- in breytist þessar fjórar vikur sem aðventan varir. Aðventan er einn annasamasti tími ársins hjá mörg- um, því það er jú ýmislegt sem þarf að gera, kaupa og klára. Við þekkjum það flest að ætla að gera svo margt fyrir jólin: Klára þetta, kaupa hitt, baka einhvern helling, fara á nokkra jólatónleika og jóla- hlaðborð, gera jólaföndur, svo ég tali nú ekki um öll heimilisverkin sem á að klára fyrir jólin. Þetta ætl- ar maður nú allt að klára á aðvent- unni auk þess að sinna þessu dag- lega sem snýr að börnum, vinnu og heimili. Þessar fjórar vikur líða eins og hendi sé veifað og allt í einu er komin Þorláksmessa og „to do list- inn“ er enn á ísskapnum og hvergi nærri tæmdur. Eitthvað nær mað- ur að klóra í listann á Þorláks- messu með því að vera að langt fram á nótt að pakka inn síðustu gjöfunum, þrífa smá og skrifa síðustu kortin. Svo slær klukk- an 18:00 á aðfangadag og kirkju- klukkur hringja, jólin eru komin í allri sinni dýrð. Já, þau koma allt- af þó svo að „to do listinn“ sé enn á sínum stað og ekki búið að haka við sörurnar, bílaþrif eða skápatil- tektina. Því þegar öllu er á botninn hvolft þá snúast jólin um að gleðj- ast með þeim sem maður elskar og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum. Þetta vitum við öll en einhvern veginn gleymist það allt- af í öllu aðventuamstrinu. Það er oft talað um jólin sem há- tíð barnanna og það eru þau sann- arlega líka, en það er okkar full- orðna fólksins að skapa börnunum gleðileg jól. Eftir að börnin mín tvö komu inn í líf mitt fór maður að velta því fyrir sér hvernig mað- ur geti gefið þeim gleðileg jól. Í æsku voru jólin alltaf hátíðlegur og skemmtilegur tími. Þegar maður lítur til baka þá eru það ekki gjaf- irnar sjálfar sem maður man hvað mest eftir, heldur eru það frek- ar hefðirnar sem ylja. Það að fara með mömmu og pabba að versla í Hólmkjör á Þorláksmessu, bera út kortin á aðfangadag og jólaboð- in gerðu jólin svo eftirminnileg og innihaldsrík. Það er þetta sem gildir í dag, að eiga gæðastund- ir með börnunum, gera eitthvað með þeim, skapa einhverjar hefð- ir og góðar minningar í stað þess að missa sig í efnislegu jólahaldi og jólaundirbúningi. Það er ósk mín á þessari aðventu að börnin okkar fái að upplifa og skapa ljúfar minningar, því það er eitthvað sem þau muni búa að í framtíðinni. Það er hlutverk okkar sem eldri eru að gefa þeim tækifæri til að upplifa jólagleði sem bygg- ir á trú og kærleika, ekki á efnis- legum gæðum. Þegar þetta er skrifað er að ganga lægð yfir landið, ein sú versta í 25 ár. Heilu húsin að splundrast í veð- urofsanum og mannskepnan fær lítið við ráðið. Enn og aftur setj- um við allt okkar traust á björg- unarsveitafólkið okkar, sem alltaf stendur vaktina sama hvað á dynur. Elsku þið, munið nú eftir björgun- arsveitunum okkar þegar þið kaup- ið flugeldanna fyrir áramótin, þær eiga það sannarlega skilið. Að lokum vil ég óska Hólm- urum og Vestlendingum öllum gleðilegra og innihaldsríkra jóla og vona að nýja árið verði ykkur öllum gott og farsælt. Jólakveðja, Þórný Alda Baldursdóttir, Stykkishólmi. Það eru hefðirnar sem ylja Jólakveðja úr Hólminum Hótel Egilsen í Stykkishólmi. Ljósm. Eyþór Benediktsson. Jólin, jólin, jólin koma senn... það er sérstakur ilmur í loftinu, jóla- lögin farin að hljóma og þessi góða stemning sem kemur manni í jóla- skap. Á þessum tíma má merkja að það er eitthvað ánægjulegt í und- irbúningi. Það er einhver jólaandi sem svífur yfir og maður skynj- ar gleði, eftirvæntingu og væntum- þykju hjá fólki. Við brosum og ósk- um hvort öðru gleðilegrar aðventu og jóla, jafnvel fólki sem við þekkj- um ekki neitt - og það er gaman. Aðventan er svo fallegur tími - það er tími vonar, undirbúnings, gjafmildi og gleði. Fólk hittist til að gleðjast saman og njóta samveru. En þessi tími minnir okkur einnig á að lífið flýgur áfram og við horfum yfir farinn veg til að minnast þess sem liðið er og þakka fyrir það sem okk- ur hefur verið gefið. Ég hef margt að þakka. Ég bý á yndislega fallegum stað þar sem umhverfið og náttúran í kring er eins og margbreytilegt listaverk og í samfélagi þar sem fólki finnst vænt hvert um annað. Það er ljúft að upplifa samhug og velvilja fólks í verki, hvort sem um gleði eða sorg er að ræða. Hér hjálpumst við að og stöndum saman. Það er nota- legt í svo litlu samfélagi eins og er hér í sveitunum í sunnanverðum Snæfellsbæ að sjá hverju er hægt að áorka þar sem samhugur ríkir og hvað hver einstaklingur skiptir okk- ur öll miklu máli. Hér á Snæfellsnesi er líka gott að búa, allir hafa nóg að sýsla og gam- an að sjá og njóta hve menningalífið blómstrar og mikill hugur er í fólki. Við getum státað af atvinnuleikhúsi þar sem hvert frumsamda stórvirk- ið eftir annað er sett á fjalirnar, auk þess sem þar er staðið fyrir margs- konar tónleikum, menninga- og list- viðburðum sem færa okkur sem hér búum svo mikla gleði og stolt. Og víðar hefur verið boðið upp á tón- leika, markaði, viðburði og samveru á aðventunni sem hefur gefið okk- ur mörg tækifæri til að njóta aðvent- unnar saman í heimabyggð meðan jólaandinn svífur yfir. Þessi jólaandi er svo yndisleg- ur, það er einhver væntumþykja og vellíðan sem fyllir huga okkar og hjörtu af tilhlökkun yfir ljúfum sam- verustundum í faðmi fjölskyldu og vina. Jólandinn gerir okkur að betri manneskjum, því hann kennir okk- ur að njóta líðandi stundar og vera góð hvert við annað. Við ættum því kannski að líta á aðventuna og jól- in eins og góðan æfingatíma sem okkur er gefin á hverju ári til að æfa okkur í því að setja umhyggju, kær- leika, velvilja og vinarþel efst á for- gangslistann okkar - og láta það svo einkenna líf okkar allt árið. Gjöfin Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest. Að fegursta gjöf sem þú gefur, er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlegt hlær, hlýja í handartaki hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði, sakleysi fegurð og yl. (höf: Úlfur Ragnarsson) Bestu óskir um gleðilega hátíð og gæfuríkt ár sendi ég ykkur öllum héðan úr sveitinni. Margrét Björk Björnsdóttir, Böðvarsholti í Staðarsveit í Snæ- fellsbæ Jólakveðja úr Snæfellsbæ Búðakirkja. Ljósm. Tómas Freyr Kristjánsson.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.