Skessuhorn - 16.12.2015, Side 85
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 85
Óska starfsmönnum mínum og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þakka samskiptin á árinu sem er að líða.
Eiríkur Ingólfsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Höfðasel 15 • 300 Akranes • Sími: 435 0000 • www.gamar.is
Í liðnum mánuði fór fram Lands-
mót Skotfélags Íslands í loftgrein-
um. Skotfélag Akraness og Skot-
félag Vesturlands héldu mótið,
sem fram fór í inniaðstöðu Skot-
Vest í Borgarnesi. Í loftskamm-
byssuflokki náðist góður árang-
ur þar sem tvær stúlkur börðust
um sigurinn í stúlknaflokki. Báð-
ar skoruðu þær hærra en gildandi
Íslandsmet. Það var svo Margrét
Skowronski úr Skotfélagi Reykja-
víkur sem sigraði á 337 stigum en
Dagný Rut Sævarsdóttir, Skot-
íþróttafélagi Kópavogs, varð í
öðru sæti með 332 stig. Í kvenna-
flokki sigraði Jórun Harðardótt-
ir SR með 372 stigum, Bára Ein-
arsdóttir SFK varð önnur með 361
stig og Berglind Björgvinsdótt-
ir Skotfélagi Akraness varð þriðja
með 357 stig.
Í kvennaflokki í loftriffli sigraði
Jórunn Harðardóttir SR með 380
stig en keppinautur hennar, Íris
Eva Einarsdóttir SR féll úr keppni
eftir tvær hrinur þegar rifill henn-
ar bilaði. Í karlaflokki var Theo-
dór Kjartansson Skotdeild Kefla-
víkur eini keppandinn og því sig-
urvegari á 549,7 stigum.
grþ
Góður árangur náðist á
Landsmóti STÍ í Borgarnesi
Körfuknattleiksdeild Snæfells
frumsýndi síðastliðinn miðvikudag
nýja heimildarmynd, Hólmurinn
heillaði, eftir Garðar Örn Arnar-
son. Efnistök myndarinnar eru Ís-
landsmeistaratitlar kvennaliðs Snæ-
fells 2014 og 2015.
Ríflega 40 manns voru viðstadd-
ir létta frumsýningu myndarinnar
í matsal Skipavíkur í Stykkishólmi
og gafst gestum kostur á að kaupa
DVD-pakka myndarinnar, sem
inniheldur tvo diska. Annars veg-
ar myndina sem segir stuttlega frá
sögu kvennakörfuboltans í Stykk-
ishólmi og síðan Íslandsmeistara-
titlunum tveimur, og aukadisk með
þriðja leik úrslitaviðureignarinnar
gegn Haukum árið 2014 og þriðja
leiknum gegn Keflavík árið 2015.
Þeim sem eru áhugasamir að
eignast myndina er bent á heima-
síðu Snæfells, www.snaefell.is, þar
sem nálgast má allar upplýsingar
um hvernig hægt er að verða sér úti
um myndina. kgk
Ný heimildarmynd um
Íslandsmeistara Snæfells
Íslandsmeistaralið Snæfells árið 2014.
Mynd úr safni.
Nýjasta tölublað Náttúrufræðings-
ins er komið út. Þar kennir ým-
issa grasa. Þar má meðal annars
lesa merkilega grein um þróun í
fjölda æðarhreiðra á Íslandi frá því
fyrir allt að hundrað árum síðan,
þar með talið í eyjum Breiðafjarð-
ar, Hvammsfirði, Skarðsströnd,
Barðaströnd, Rifi á Snæfellsnesi og
í Hvalfirði. Meðal fjögurra höfunda
að þessari grein eru tveir vísinda-
menn við Rannsóknasetur Háskóla
Íslands á Snæfellsnesi, þeir Jón Ein-
ar Jónsson og Árni Ásgeirsson.
Forsíðugrein Náttúrufræðings-
ins ber svo titilinn Forystufé á Ís-
landi. Í henni má fræðast um fjölda
og dreifingu fjárins um landið,
erfðir og sérstaka eiginleika þessa
fjár sem sex höfundar greinar-
innar leggja til að verði skilgreint
sem sérstakt búfjárkyn. Þau eru öll
kunnir sérfræðingar sem hafa rann-
sakað íslenska forystuféð í áraraðir.
Fleira markvert má nefna í blaðinu
svo sem umfjöllun um loftlagsmál,
mikla skriðu sem féll á Kjalarnesi
1748 og fleira.
mþh
Greinar um forystufé og æðar-
fugl í nýjum Náttúrufræðingi