Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 86

Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 86
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201586 Hann er bóndasonur frá Sauðafelli í Dölum en hefur síðustu 15 árin búið á Akranesi þar sem hann unir hag sínum vel ásamt Svenju Neele Verena Auhage. Hún er frá Þýska- landi. Saman búa þau á Skaganum ásamt tveimur hundum og ketti. Síðan eiga þau eina 16 hesta og halda marga þeirra á húsum í hest- húsahverfinu í Æðarodda við Akra- nes. Undanfarin tvö ár hefur Ágúst Sigurjón Harðarson, sem einatt er kallaður Gústi, starfað sjálfstætt sem fararstjóri á Íslandi og getið sér gott orð sem slíkur. Nú nýver- ið hlaut hann viðurkenningu sem úrvals fararstjóri hjá stórum ferða- heildsala í Bretlandi sem sendir reglulega hópa til Íslands. Dalamaður með reynslu Nú þegar ekkert lát virðist á fjölg- un ferðamanna til Íslands þá hafa sjálfsagt ýmsir velt þeim möguleika fyrir sér að fara í ferðaþjónustu og jafnvel gerast fararstjórar eða leið- sögumenn. Blaðamanni Skessu- horns lék forvitni á að heyra hvaða bakgrunn Ágúst hefði haft áður en hann hellti sér í þessa atvinnugrein. „Ég ólst upp heima á Sauðafelli, gekk í heimavistarskóla á Laugum í Sælingsdal og síðan í Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi. Það- an lá leið mín í Garðyrkjuskól- ann í Hveragerði þar sem ég gerð- ist skrúðgarðyrkjufræðingur. Árið 1997 kom ég svo aftur á Akranes til að vinna hér í einn mánuð við kennslu í Brekkubæjarskóla, en ég bý hér enn. Eftir þetta kenndi ég næstu fjóra vetur til skiptis þar og í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, ásamt því að vinna við garðyrkju, ýmist hjá Akraneskaupsstað eða sjálfstætt. Síðan hóf ég nám í um- hverfisskipulagi við Landbúnað- arháskólann á Hvanneyri.“ Ágúst segir að hann og Svenja eiginkona hans hafi farið saman í námið á Hvanneyri. „Við höfðum kynnst vestur í Dölum þar sem hún starfaði við tamningar. Á námstím- anum á Hvanneyri bjuggum við á Akranesi en keyrðum á milli. Síðan hélt Svenja áfram, lauk vistfræði- námi í Englandi og starfar sem fuglafræðingur á Náttúrufræði- stofnun í dag. Ég vann hins veg- ar hjá Vegagerðinni í Borgarnesi. Var mikið í mælingum en svo kom hrunið. Þá varð minni ástæða til að mæla því það voru takmarkað- ir peningar til framkvæmda. Þá var ég látinn vinna á skrifstofu en ég er ekki andlega gerður fyrir slíkt.“ Í fararstjórn f yrir tilviljun Hann hætti hjá Vegagerðinni; „og fór aðeins að kroppa í garð- yrkjuna,“ eins og hann orðar það. „Síðan skoðaði ég nám í kennslu- fræði en leist ekki á það. Þá rakst ég allt í einu á auglýsingu um leiðsög- unám hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Þá rann upp fyrir mér að þarna væri komið eitthvað sem mér hefði auðvitað átt að vera búið að detta í hug fyrir löngu síð- an. Ég skellti mér í þetta nám, en er ekki enn búinn. Því kalla ég mig ekki leiðsögumann heldur farar- stjóra.“ Síðan fóru hlutirnir að gerast, nánast af sjálfu sér. „Lífið er allt fullt af litlum tilviljunum. Ég var í hestaferð undir Melabökkum með frænda mínum Jörundi Jökulssyni frá Vatni. Þá fór hann að nefna við mig hvort við Svenja hefðum ekki áhuga á að koma með ríðandi í ferð þvert yfir Ísland frá Langa- nesi út á Reykjanes. Skemmst frá að segja var það samþykkt snarhendis. Ferðin var farin í tilefni af afmæli hjá vinkonu Jörundar. Hún heitir Steinunn Guðbjörnsdóttir og starf- aði þá hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Íshestum sem skipuleggur hesta- ferðir um landið. Við hittumst öll til að undirbúa ferðina og þar kom upp úr dúrnum að ég væri í þessu leiðsögunámi. Í febrúar 2014 fékk ég svo tölvupóst frá Steinunni þar sem hún bauð mér vinnu við farar- stjórn. Fyrsta sumarið 2014 var ég aðallega í hestaferðum, en fór einn- ig eina eða tvær rútferðir auk þess að við fórum þessa þriggja vikna af- mælisferð yfir landið.“ Fer um landið með erlenda ferðamenn Með þessu varð ekki aftur snúið. Ágúst fór að starfa sem fararstjóri í ferðaþjónustunni samhliða því að sinna leiðsögunáminu. „Síðan í ágúst í fyrra hef ég eingöngu unnið fyrir breska ferðaheildsölufyrirtæk- ið Explore. Ég tek þá á móti hópum sem koma hingað til lands á þeirra vegum. Það er búið að vera nóg að gera. Þetta er mjög skemmtileg og fjölbreytt vinna. Sem dæmi get ég nefnt að á morgun, laugardag, sæki ég hóp út á Keflavíkurflugvöll. Ég byrja á að fara með fólkið í Bláa lónið og svo á hótel í Reykjavík. Á sunnudag er svo lagt í hann hring- inn. Ég byrja að bjóða þeim til mín upp á Akranes, fer í vitann og lík- lega í hesthúsið okkar í Æðarodda. Það er þá svona til að kynna fyrir þeim Ísland, hvernig fólk lifir hér og líka til að við kynnumst aðeins hvort öðru. Þetta er tíu daga ferð, sex nætur á hringveginum og svo tvær nætur í Reykjavík í lokin. Þetta eru litlir hópar sem ég fer með. Há- marksfjöldinn er 18 manns en yfir- leitt eru þetta svona 12 – 15 í hverri ferð. Þetta er því smátt í sniðum og persónulegt.“ Ágúst nefnir líka Norðurljósa- ferðirnar sem annað dæmi. Þær eru yfirleitt styttri. „Þá sæki ég fólk út á flugvöll og að Gullfossi og hót- elinu þar í tvær nætur. Svo er farið aftur í bæinn þar sem við verðum á hóteli við Elliðavatn. Explore fyr- irtækið selur ferðir víða um heim og leggur þetta alltaf upp þannig ef hægt er, að heimafólk í hverju landi sjái um fararstjórn. Fyrirtækið er í Lundúnum og ferðirnar byrja þar. Rúmlega helmingur ferðafólksins er yfirleitt frá Suður-Englandi, en svo er fólk frá Skotlandi, Írlandi og víðar af Englandi. Síðan sjáum við einnig Ameríkana, Kanadamenn, Ástrali og Nýsjálendinga en yfir- leitt er þetta enskumælandi fólk.“ Tekur tíma að breyta til Nýverið greindi Skessuhorn frá því að Ágúst væri kominn í fjögurra manna úrslit sem fararstjóri ársins hjá Explore fyrirtækinu. „Ég vissi nú ekkert af þessu fyrr en í haust að ég fékk tölvupóst frá konu sem hafði verið með í ferð þar sem hún óskaði mér góðs gengis í þessari tilnefningu. Þetta er meðal farar- stjóra starfandi hjá Explore sem er með einhverja 650 slíka út um all- an heim. Fólkið sem fer í ferðirnar gefur umsagnir um ferðirnar, bæði það sem vel er gert og það sem bet- ur má fara. Þar eru fararstjórarnir oft nefndir. Upp úr þessum gögn- um eru síðan tilnefndir tíu eða tólf fararstjórar sem þykja hafa skarað framúr. Fjórir fara í úrslit og síðan er einn fararstjóri úr þessum hópi sem fær viðurkenningu sem farar- stjóri ársins. Nú eru komnar nið- urstöður og í ár var það indversk- ur maður sem hlaut titilinn. Við hin sem vorum með honum í fjórum efstu sætunum fengum svo líka við- urkenningar fyrir þann árangur.“ Ágúst segir að þetta sé ánægju- legur heiður sem kannski leiði til þess að rödd hans fái betri hljóm- grunn þegar kemur að því að finna upp á nýjum ferðamöguleik- um á Íslandi. Honum er hugleik- ið að efla ferðaþjónustu á Vestur- landi og Vestfjörðum. „Það eru margir í þessum geira að horfa til þessa landshluta en það tekur allt- af tíma að koma breytingum í gegn. Það þarf að skipuleggja ferðirnar, bóka í þær og þar fram eftir götun- um. Komi maður með nýjar hug- myndir eða tillögur að nýjum hóp- ferðum þá geta kannski liðið tvö ár þar til slík ferð verður að veruleika. Núna er til dæmis verið að bóka í ferðir sem farnar verða í september á næsta ári. Það eru ekki allir sem átta sig á þessu. Núna eru þekkt- ustu staðir Íslands líklega á Suður- landi. Það eru Gullfoss, Geysir og Þingvellir. Það er bara svoleiðis að það tekur tíma að koma einhverju nýju á framfæri en svo geta hlutirn- ir gerst hratt þegar þetta er kom- ið af stað. Mér hefur allavega tek- ist að færa gistingu og hádegisverði á Hraunsnef í Norðurárdal í Borg- arfirði við góðan orðstír.“ Alls ekki of margir ferðamenn Hann tekur ekki undir raddir sem halda því fram að Ísland sé nú of- setið af ferðamönnum. „Alls ekki. Ég tel heldur ekki að ferðamanna- straumur sé einhver bóla sem muni hjaðna. Ísland er tiltölulega nýupp- götvað af umheiminum þar sem Ágúst S. Harðarson umhverfisskipulagsfræðingur og fararstjóri á Akranesi: Ísland er komið til að vera sem ferðamannaland Ágúst S. Harðarson fararstjóri við vitana á Breiðinni á Akranesi. Ágúst hefur skoðanir á ýmsu varðandi ferðaþjónustuna. Hér bendir hann á gamlar ljósmyndir sem settar hafa verið upp á vegg á Breiðinni á Akranesi sem dæmi um gott en ódýrt framtak sem gagnist afar vel til að sýna ferðamönnum og segja frá. Í hestaferðinni góðu þvert yfir landið sumarið 2014. Frá vinstri: Ævar Ásgeirsson, Jörundur Jökulsson og hjónin Ágúst S. Harðarson og Svenja Auhage. Ljósm. Steinunn Guðbjörnsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.