Skessuhorn - 16.12.2015, Page 90
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201590
Um síðustu mánaðamót hætti Inger
Helgadóttir rekstri gistiheimilisins
Borgarnes Bed and Breakfast, sem
hún hefur rekið síðustu árin í gamla
kaupfélagsstjórabústaðnum í Borg-
arnesi. Hún seldi húsið og rekst-
urinn til hjóna sem komu við hjá
henni í sumar og gistu. „Þau voru
á leið vestur á Snæfellsnes að skoða
gistiheimili sem þau ætluðu kannski
að kaupa. Ég sannfærði þau um að
miklu betra væri að kaupa af mér
því ég þyrfti að fara að hætta þess-
um rekstri þar sem ég réði ekki við
þetta lengur vegna heilsuleysis,“
segir Inger þegar blaðamaður sett-
ist niður með henni í nýlegri íbúð
sem hún festi kaup á eftir söluna, í
gamla hluta Borgarness.
Kynntist Hjálpræðis-
hernum í Noregi
En fyrst að upprunanum. „Ég er
ekki Borgfirðingur að uppruna.
Ég er fædd á Akureyri en foreldrar
mínir fluttu í Voga á Vatnsleysu-
strönd þegar ég var á fjórða ári.
Þaðan fluttu þau svo í Borgarnes
um tíma en pabbi kunni ekki við
sig þar og við fluttum aftur á Suð-
urnesin. Annars varð ég snemma
sjálfstæð og var ekki nema fimm-
tán ára þegar ég flutti að heim-
an. Þá lá leiðin til Hamar í Nor-
egi þar sem ég fór að passa börn
hjá íslenskum hjónum sem voru
í Hjálpræðishernum. Áður hafði
ég kynnst Hjálpræðishernum hér
heima í gegnum æskulýðsstarf og
ég hef enn í dag samband við fólk
sem tengist honum en þá aðallega
í gegnum móðir mína. Eftir að ég
kom heim frá Noregi fór ég að
vinna í fiski í Keflavík en varð svo
heppin að ég slasaðist í roðfletti-
vél á hendi og hætti og ákvað þá að
fara að vinna í sveit. Ég fékk vinnu
norður í Vatnsdal í Húnavatnssýslu
og þar átti ég yndislegan tíma hjá
góðu fólki og lærði mikið. Ég held
enn góðu sambandi við afkomend-
ur hjónanna sem ég var hjá.“
Gott að búa í
Skorradal þrátt fyrir
róstur í pólitík
Úr Vatnsdalnum lá leið Ingerar í
Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal
þar sem hún stundaði búfræðinám í
einn vetur. Hún segir skólavalið hjá
sér líklega hafa ráðist af því að Hólar
voru nær Vatnsdalnum en Hvann-
eyri. Á Hólum kynntist hún manni
sem hún svo giftist og eignaðist
tvær dætur sem fæddar eru 1971
og 1972. „Við bjuggum á Laugar-
bakka og Hvammstanga en skildum
svo átta árum seinna. Þá lá leið mín í
Borgarfjörðinn með dæturnar tvær í
mars 1976. Þar hóf ég sambúð með
Sveini Sigurðssyni á Indriðastöð-
um í Skorradal og árið 1978 fædd-
ist okkur dóttir. Við skildum svo árið
1999 en ég bjó áfram á Indriðastöð-
um. Það var gott að vera í Skorra-
dalnum þrátt fyrir að hreppspólitík-
in þar væri svolítið róstursöm.“
Inger kom þó aðeins nálægt sveit-
arstjórnarmálunum í Skorradalnum
á löngum búsetutíma sínum og hafði
gaman af. Hún segir samt að nú eft-
ir að hún kom í Borgarnes sýnist sér
að íbúarnir þar njóti meira af sam-
eiginlegum sjóðum en verið hafi í
Skorradal þrátt fyrir að Skorradals-
hreppur hafi álitið sig vera eitt rík-
asta sveitarfélag landsins, en Borgar-
byggð í hópi þeirra blönkustu.
Byrjaði með fjórhjólum
Inger hætti öllum búskap á Indr-
iðastöðum þegar hún tók alfarið
við jörðinni 1999 og fór svo að reka
ferðaþjónustu þar árið 2001 í sam-
vinnu við aðra. „Það var eiginlega
tilviljun að ég fór út í þetta. Þannig
var að ég hitti tvo flotta stráka sem
voru að grilla fyrir útlenda ferða-
menn niður við Skorradalsvatn og
Inger Helgadóttir sem nú hefur selt gistiheimili sitt í Borgarnesi
Hefur komið víða við í störfum víðs vegar um landið
fór að ræða við þá. Þeir voru þá
með hugmyndir um ýmislegt, ekki
síst tengt fjórhjólum, en sögðu það
vandkvæðum bundið nema hafa að-
gang að landssvæði. Ég sagði þess-
um strákum að koma bara með hug-
myndirnar til mín og ég væri til í að
skoða ýmislegt. Í talsverðan tíma
heyrði ég ekkert frá þeim en svo
komu þeir til mín með þessa fjór-
hjólahugmynd og ákveðið var að
hrinda henni í framkvæmd. Þetta
mætti að vísu ákveðinni andstöðu
og fólk sagði okkur vera að skemma
landið og fleira slæmt var talið þessu
til foráttu en allt var þetta samt á
ákveðnum þar til gerðum slóðum
og innan settra marka.“ Inger segir
að sín aðkoma hafi verið sú að veita
aðgang að jörðinni og að selja mat
í útbúinni hlöðu en síðan hafi hún
látið byggja fjögur sumarhús og far-
ið að leigja þau út. „Á þessum tíma
var mikið um að vera á Indriðastöð-
um. Stundum voru nokkur hundruð
manns á túninu í leikjum, á fjórhjól-
um og í mat. Eins varð hlaðan vin-
sæl til veisluhalda. Brúðkaup, afmæli
og alls kyns viðburðir voru haldnir.“
Í ferðaþjónustu
í Borgarnesi
Þetta varði þó ekki mjög lengi og
Inger seldi hálfa jörðina og hana alla
nokkru seinna. Inger keypti ásamt
elstu dóttur sinni gamla kaupfélags-
stjórabústaðinn í Borgarnesi árið
2005 og flutti þangað alfarin 2007.
„Ég fékk þó aldrei helminginn af
jörðinni borgaða og fæ víst aldrei
eftir því sem lögfræðingurinn minn
segir.“ Inger keypti svo hluta dóttur
sinnar í húsinu og eftir að hafa eign-
ast gamla kaupfélagsstjórabústaðinn
í Borgarnesi fór hún að leigja þar út
gistingu en sjálf bjó hún í þvotta-
húsinu á jarðhæðinni. „Þarna var ég
með gistiheimili og morgunmat og
þetta gekk vel. Það var alltaf nán-
ast fullbókað á sumrin en frekar lít-
ið yfir veturinn þótt alltaf væri opið.
Þá var aðallega lausaumferð Íslend-
inga. Það skipti miklu fyrir mig að
ferðavefurinn Lonely Planet kom
í heimsókn og skrifaði vel um Bed
and Breakfast. Ég naut góðs af því
og síðan því að vera með þetta inn
á bókunarvefnum booking.com en
það var nágranni minn hér hand-
an Borgarfjarðarbrúarinnar á Hótel
Brú sem aðstoðaði mig við að koma
gistingunni þar inn. Þetta jókst þó
með hverju árinu. Sérstaklega varð
meira og meira að gera yfir vetur-
inn. Alls konar hópar voru að koma
og leigðu þá gjarnan allt húsið yfir
helgi. Saumaklúbbar, afmæli, vinnu-
ferðir og ýmislegt hefur verið haldið
í húsinu. Jafnvel fermingar og brúð-
kaup. Eins má segja að sumarvertíð-
in sé alltaf að lengjast. Það var orðið
nánast fullt undir lokin hjá mér frá
apríl og alveg fram í október. Þannig
að það er augljóst að umferð ferða-
manna er að aukast út fyrir höfuð-
borgarsvæðið, sem er mjög jákvætt
fyrir okkur hér á Vesturlandi.“
Kosningastjóri
Kvennalistans
Það er sitthvað sem Inger hef-
ur fengist við því í eina tíð var hún
kosningastjóri Kvennalistans á Vest-
urlandi „Ég starfaði á kosningaskrif-
stofunni hjá Kvennalistanum, sem
var hér í Borgarnesi og við náð-
um góðum árangri, fengum einn
þingmann hér í kjördæminu; Dan-
fríði Skarphéðinsdóttur. Þetta var
skemmtilegur tími þarna í byrjun ní-
unda áratugarins og mikið líf í kosn-
ingabaráttunni,“ segir Inger þegar
hún rifjar þennan tíma upp.
Nú veit hún ekkert hvað tekur
við en hún afhenti nýjum eigend-
um gistiheimilið 1. desember síðast-
liðinn og hún vonar svo innilega að
þeim vegni vel. „Það er allt í lagi að
prófa eitthvað nýtt, svo verður bara
að koma í ljós hvað það verður. Eins
er gott að ég taki fram að ég sé alltaf
til í að taka þátt í alls konar ævintýr-
um, þótt gömul sé orðin,“ segir In-
ger og kveður kát á leið til Noregs
þar sem hún ætlar að halda jól með
sínu fólki. hb
Svipmyndir af Bed and Breakfast í Borgarnesi sem Inger seldi nýverið til nýrra rekstraraðila.
Inger á nýju heimili sínu í Borgarnesi.
Tónlistarskóli Grundarfjarðar hélt
sína árlegu jólatónleika í sal Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga á mánu-
dagin. Þar spiluðu nemendur jóla-
lög fyrir Grundfirðinga og sýndu
hvað þeir hafa verið að læra. Það
er ljóst að faglega er unnið að tón-
listarkennslu í Grundarfirði en um
53% nemenda Grunnskóla Grund-
arfjarðar stundar nám við tónlistar-
skólann. Þar er kennt á bassa, gít-
ar, píanó, horn, klarínett, kornett,
trompet, trommur, ukulele, þver-
flautu, ásamt söng. Það eru fleiri
hljóðfæri í boði en þetta er það sem
krakkarnir eru að læra á núna. Allir
árgangar grunnskólans hafa aðgang
að tónlistarnámi og eru þónokkrir
krakkar úr 1. bekk sem stunda tón-
listarnám og spiluðu á jólatónleik-
unum. Það er því ljóst að framtíðin
er björt hjá þessum krökkum sem
sendur gestina út í glimrandi jóla-
skapi. tfk
Ljúfir jólatónar í
Grundarfirði