Skessuhorn - 16.12.2015, Qupperneq 94
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201594
Möndlugrauturinn
mikilvægur um jólin
Daníel Ben Daníelsson átta ára
og Sara Líf Sigurðardóttir sjö ára
eru nemendur í Grunnskólan-
um í Borgarnesi. Þau eru sammála
um að það fyrsta sem komi manni
í jólaskap sé að skreyta fyrir jólin.
„Ég fer líka í jólaskap við að pakka
inn gjöfum, að fá gjafir og auðvitað
að fá í skóinn. Það lætur mig eigin-
lega allt fara í jólaskap þegar jólin
nálgast,“ segir Daníel. „Undirbún-
ingurinn fyrir jólin og að baka smá-
kökur kemur mér í jólaskap,“ seg-
ir Sara Líf. Þau eru einnig sammála
um að maður komist í mikið jóla-
skap við að fá jólagjafir og líkt og
hjá flestum börnum er það einnig
það sem þau hlakka mest til um jól-
in.
Daníel segir þó mikilvægast
um jólin að vera glaður. „Og ekki
verða fúll ef maður fær ekki það
sem maður vill. Það er líka mikil-
vægt að leika með allt. Ég er oft-
ast að leika mér þegar Aron bróðir
minn er í tölvunni, hann er oft svo-
lítið lengi í tölvunni.“ Þau eru sam-
mála um að möndlugrauturinn sé
mikilvægur um jólin og hafa bæði
verið svo heppin að fá möndluna.
„Það er líka mikilvægt að það sé
gaman á jólunum. Það er líka gam-
an að borða jólamatinn,“ segir Sara
Líf að endingu.
Elskar alla jólasveinana
Heiða Dís Sófusdóttir er nemandi í
2. bekk Auðarskóla í Búðardal. Hún
er ekki viss hvað sé mikilvægast við
jólin en veltir fyrir sér hvort það sé
söngurinn og dansinn í kringum
jólatréð. Hún er þó ekki í vafa hvað
henni þykir skemmtilegast við há-
tíðirnar. „Að jólasveinarnir komi til
manna og að þeir stela ekki lengur
frá okkur. Skyrgámur tók til dæm-
is allt skyrið. Þegar krakkarnir ætl-
uðu að fá sér þá var tóm fata,“ seg-
ir Heiða og bætir því við að jóla-
sveinarnir komi sér í mikið jóla-
skap. „Ég elska jólasveina. Ég elska
Stekkjastaur og alla og Bjúgna-
kræki líka. Stekkjastaur er uppá-
halds því hann kemur fyrstur til
manna,“ segir hún.
Skemmtilegast að
setja upp jólatréð
Bergjón Paul Jenke gengur í 1.
bekk Auðarskóla í Búðardal. Hon-
um þykir skemmtilegast að setja
upp jólatréð. „Því þá setjum við
jólapakkana í kring og hengjum
upp jólakúlurnar og jólaborðana,“
segir hann og bætir því við að jóla-
pakkarnir komi honum í jólaskap.
„Ég kemst í jólaskap þegar pakk-
arnir koma frá Þýskalandi og Ís-
landi. Á föstudaginn verða litlu
jólin í skólanum og þá fáum við
pakka,“ segir Bergjón. En hvað er
að hans mati mikilvægast við jól-
in? „Kannski jólasveinninn. Kram-
pus í Þýskalandi er tröll og er svo-
lítið eins og Grýla. En ég veit ekki
hvort það er eitthvað jólalegt við
hann,“ segir Bergjón að endingu.
Jólaskapið kemur þegar
hún sér pakkana
„Mér finnst skemmtilegast að fá jóla-
gjafir,“ segir Sól Jónsdóttir, sex ára
stúlka í Grunnskóla Grundarfjarðar
aðspurð hvað henni þyki skemmti-
legast við jólin. Að hennar mati eru
gjafirnar ekki aðeins skemmtilegar,
heldur eru þær líka mikilvægar. „Það
er bæði mikilvægt að fá jólagjafir og
að gefa jólapakka,“ segir hún.
Þegar hugurinn reikar að jólagjöf-
unum er erfitt að ná honum það-
an og Sól er með það á hreinu hvað
það er sem kemur mest henni í jóla-
skapið. „Að sjá pakkana,“ segir hún
að lokum.
Mikilvægt að
sýna kærleik
Alfreð Ragnar Ragnarsson er átta
ára nemandi í Grunnskóla Grund-
arfjarðar. Að hans mati vekja skreyt-
ingarnar eftirvæntingu fyrir kom-
andi hátíð. „Ég kemst í jólaskap
þegar jólaskrautið kemur upp,“
segir hann.
Eins og mörgum öðrum börn-
um á öllum aldri nýtur hann þess
að fá gjafir á jólunum. „Mér finnst
skemmtilegast að fá pakka,“ segir
hann en bætir því við í anda jólanna
að mikilvægt sé að setja annað fólk í
öndvegi. „Það mikilvægasta við jól-
in er að leika við einhverja og sýna
kærleik,“ segir Alfreð.
Gjafirnar eru
bæði skemmtilegar
og mikilvægar
Anna Lísa Axelsdóttir og Eldór
Frosti Halldórsson eru nemendur
í 1. bekk Grundaskóla á Akranesi.
Bæði Anna og Eldór hafa gaman
af jólunum og eru ekki í vafa um
hvað þeim þykir skemmtilegast við
hátíðina. „Mér finnst skemmtileg-
ast að opna pakkana,“ segir Anna.
„Mér finnst skemmtilegast að fá í
skóinn. Þvörusleikir gaf mér jójó
og súkkulaði,“ bætir Eldór við,
en Þvörusleikir kom einmitt til
byggða þann morguninn og laum-
aði víða glaðningi í skó barna.
Þau geta ekki alveg sett fingur-
inn á hvað kemur þeim í jólaskap-
ið. „Ég veit ekki hvað kemur mér
í jólaskap,“ segir Anna. „Ekki ég
heldur,“ bætir Eldór við. Eftir smá
umhugsun sammælast þau þó um
að jólalög komi þeim stundum í
jólaskap. Gjafirnar eru þeim nefni-
lega enn nokkuð ofarlega í huga
og aðspurð hvað sé mikilvægast
við jólin eru þau ekki í vafa. „Það
er mikilvægast að opna pakkana,“
segir Eldór „og fá í skóinn,“ bætir
Anna við og brosir sínu breiðasta.
„En það er líka mjög mikilvægt að
horfa á jólamyndir,“ áréttar Eldór
að endingu.
grþ/sm/tfk/kgk
Jólin - hátíð barnanna
Desembermánuður er jafnan tími mikillar eftirvænt-
ingar hjá flestum börnum landsins. Frá því kveikt er
á fyrsta kerti aðventukransins, fyrstu músastigarn-
ir gægjast upp úr kössunum og fyrstu seríurnar tín-
ast upp í glugga eykst eftirvænting barnanna jafnt
og þétt þar til klukkan hringir inn jólin á aðfanga-
dagskvöld. Milli eftirvæntingar barnanna annars
vegar og foreldra hins vegar má oftar en ekki mæla
jákvæða fylgni, svo notað sé hugtak úr tölfræðinni,
þeirri jólalegu fræðigrein. Foreldrar upplifa gjarn-
an stemninguna og jólagleðina í gegnum börn sín.
Blaðamenn og fréttaritarar Skessuhorns ræddu við
nokkur börn á Vesturlandi og spurðu þau út í mikil-
vægi jólanna, hvað þeim þætti skemmtilegast við há-
tíðina og hvað kæmi þeim í jólaskapið.
Sara Líf Sigurðardóttir og Daníel Ben Daníelsson í Borgarnesi.
Heiða Dís Sófusdóttir í Búðardal.
Bergjón Paul Jenke í Búðardal.
Sól Jónsdóttir í Grunnskóla Grundar-
fjarðar.
Alfreð Ragnar Ragnarsson í Grunn-
skóla Grundarfjarðar.
Anna Lísa Axelsdóttir og Eldór Frosti Halldórsson á Akranesi.