Skessuhorn - 16.12.2015, Síða 96
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201596
Áhugaljósmyndarar eru víða og
fer þeim fjölgandi eftir að stafræn
ljósmyndatækni gerði slíkt áhuga-
mál í senn auðveldara og ódýr-
ara. Þeir eru þó ekki margir sem
taka þetta áhugamál svo alvarlega
að ljósmyndunin sé framar flestu
öðru sem þeir taka sér fyrir hend-
ur. Mjög víða stunda áhugaljós-
myndarar ómetanlega samtíma-
skráningu fyrir sín byggðarlög, at-
vinnusöguna, menningarsögu og
fleira. Þessir aðilar eru ekki endi-
lega að ljósmynda í atvinnuskyni
heldur drífur áhuginn þá áfram.
Samtímaskráning af þessu tagi er
oft vanmetin. Í raun ætti að verð-
launa þetta fólk með einhverjum
hætti; gera það að launuðum bæj-
arlistamönnum – því það eru þeir
vissulega.
Hér á Vesturlandi eru nokkr-
ir sem stunda áhugaljósmyndun af
kappi. Í jólablöðum Skessuhorns á
liðnum árum hafa áhugaljósmynd-
arar á Vesturlandi verið kynnt-
ir. Við köllum þetta fólk samtíma-
söguritara, fólk sem á í sínum fór-
um þúsundir mynda frá liðnum
árum. Myndir sem varðveita ann-
ars glötuð augnablik.
Myndavélin
góð vinkona
Áslaug Þorvaldsdóttir í Borgar-
nesi segist lengi hafa haft áhuga á
ljósmyndun. Áhuginn jókst þeg-
ar hún eignaðist fyrstu almenni-
legu myndavélina, þá fyrst fór hún
að taka myndir fyrir alvöru. „Það er
mjög langt síðan. Ég átti Olympus
vél - svona gamlan rokk - og hef
tekið myndir alveg frá því ég eign-
aðist hann, sem var örugglega fyrir
þrjátíu árum. Guð, er orðið svona
langt síðan,“ segir hún og hlær við.
Fyrsta vélin var gamaldags filmu-
vél en Áslaug segist hafa átt hana
lengi. „Ég og myndavélin mín vor-
um rosalega góðar vinkonur. Síð-
an fékk ég mér stafræna myndavél
og við urðum ekki jafn nánar. Það
samband var einhvern veginn ekki
alveg að gera sig,“ útskýrir Áslaug.
„En svo þegar ég fékk símann, þá
kom þetta aftur,“ bætir hún við. Ás-
laug segist lítið framkalla myndirnar
nú til dags. „Þær eru bara geymdar
í skýinu,“ segir hún og brosir. Hún
hefur lítið verið að með myndirnar
til sýnis en var þó með ljósmynda-
sýningu í Borgarnesi fyrir tíu árum.
„Þá lét ég prenta myndirnar á striga
í stærðinni 30 x 60 og sýndi þær á
ganginum í Hyrnutorgi. Ég hef
ekkert sýnt myndirnar mínar síðan
þá,“ segir hún.
Notar myndavélina
sem síma
Áslaug er ekki einn af þeim áhuga-
ljósmyndurum sem er með tækja-
dellu og fjárfestir í hverri linsunni
á fætur annarri. Hún tekur flest-
ar sínar myndir á farsímann sinn,
sem er af gerðinni Samsung S5.
„Ég hef notað myndavélina lít-
ið síðustu mánuði. Ég tek flestar
myndir á símann minn, eða eins
og ég segi fullum fetum: ég nota
myndavélina sem síma,“ segir Ás-
laug. Hún segir símann koma sér
einstaklega vel, sérstaklega eftir að
hún lenti í meiðslum á annarri öxl-
inni. „Eftir það átti ég erfitt að vera
með myndavélina og það er líka
þess vegna sem ég er svona ánægð
með símann.“ Hún vinnur mynd-
irnar sínar ekki mikið og notar til
að mynda ekki photoshop mynd-
vinnsluforrit. „En ég er með app í
símanum þar sem ég skerpi litinn.
Þá kemur sér vel að ná að ramma
myndirnar inn í huganum, því þá
veit maður hvað getur komið flott
út með skarpari litum. HDR heitir
upplausnin sem ég nota hvað mest
og það er alveg prósess út af fyrir
sig. Ég horfi oft á myndirnar með
því hugarfari að þær komi flott út
með þessum breytingum, þessari
skerpu,“ útskýrir Áslaug.
Þarf að hafa auga líka
Áhugasvið Áslaugar þegar kemur
að myndefni er mjög breitt. Hún
segist taka myndir af öllu mögulegu
og að hún hafi tekið mjög skrítn-
ar myndir lengi. „Ég tek myndir
af öllu sem ég næ að sjá eitthvað
form úr. Ég sé mótív úr alls konar
sem aðrir sjá kannski ekki endilega
neitt út úr. Ég hef lent í því að sjá
fyrir mér flotta mynd en ekki ver-
ið með myndavélina á mér og er
enn með það mótív í huganum. En
ég er fegin að geta notað símann
í myndatökurnar, því ég er allt-
af með hann á mér.“ Áslaug seg-
ir að það sé ekki nóg að eiga góða
myndavél eða góðan síma, fólk
verði að hafa auga fyrir myndefni
líka. „Þú tekur ekkert bara ein-
hvern veginn mynd. Það þarf að
ramma hana inn í huganum og vita
hvað þú ert að gera. Myndirnar
verða ekki sjálfkrafa góðar vegna
símans, það þarf að hafa auga líka.“
Áslaug er sjálfmenntuð í ljósmynd-
un fyrir utan að hafa farið á eitt
helgarnámskeið fyrir margt löngu.
„Annars hef ég bara lært þetta sjálf
og kannski kemur þetta bara með
þroskanum.“ grþ
Sagnaritari samtímans 2015 er
Áslaug Þorvaldsdóttir áhugaljósmyndari
Áslaug Þorvaldsdóttir áhugaljósmyndari er Sagnaritari samtímans 2015. Hún
starfar í Landsnámssetri Íslands í Borgarnesi.
Lítil laug við Birkimel. Við Brákarsund í Borgarnesi. Listaverk á glugga.
Tekið út um gluggann á Skemmunni kaffihúsi á Hvanneyri.
Færeyjar.