Skessuhorn - 16.12.2015, Síða 106
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015106
Aðalfundur Golfklúbbs Borgar-
ness var haldinn að Hótel Hamri
miðvikudaginn 9. desember síðast-
liðinn. Formaður fór yfir skýrslu
stjórnar og starf klúbbsins og gjald-
keri fór yfir reikninga GB fyrir lið-
ið rekstrarárið. Rekstur GB gekk
mjög vel rekstrarárið 2015 og var
veltan 45,7 mkr. samanborið við
tæpa 41 mkr. árið áður. Rekstrar-
gjöld voru rúmar 27,5 mkr. sam-
anborið við rúmar 40,7 mkr. árið
2014. Rekstrarhagnaður klúbbsins
var því 18,2 mkr. fyrir fjármagnsliði
og afskriftir. Inn í rekstrartekjur má
þó reikna fyrirfram greiddar tekjur
(styrk+leigu) næsta árs að upp-
hæð 7,4 mkr. Allur hagnaður árs-
ins fór í að greiða niður langtíma-
og skammtímaskuldir félagsins.
Á móti náði GB samkomulagi við
Arionbanka um leiðréttingu eða
niðurfellingu skulda. Lausafjár-
staða GB verður að líkindum erfið
rekstrarárið 2016 en bjartari tímar
blasa þó við.
Á fundinum kom fram að rekst-
urinn hefði gengið vel og mikið að
þakka framkvæmdastjóra GB sem í
byrjun árs tók allan vélakost félags-
ins í yfirhalningu. Hann tók síðan
að sér starf vallarstjóra og kom vell-
inum í fremstu röð landsins með
dugmiklum vallarstarfsmönnum.
Golfsumarið í ár byrjaði seint sök-
um kuldatíðar og blásturs í maí og
lungan úr júní. Kuldinn náði jafan-
vel fram í júli en félagsmenn þurftu
samt ekki að kvarta yfir aðsókn
kylfinga á Hamarsvöll þetta sum-
arið. Hann þótti með betri völlum
landsins og voru flatirnar sérstak-
lega rómaðar.
Í skýrslu stjórnar kom fram hvað
magnað félagsstarf er hjá Golf-
klúbbi Borgarness í reynd og hversu
öflug sjálfboðaliðastarf hefur á ög-
urstundu lagt sitt lið og hjálpað til
við að gera góðan klúbb enn betri.
Í rekstraráætlun fyrir árið 2016 er
gert ráð fyrir 32 mkr veltu eða veru-
legri lækkun frá því í ár. Áframhald-
andi aðhald verður í rekstri og því
rekstrarkostnaði upp á sömu upp-
hæð. Lítið svigrúm verður til fram-
kvæmda eða endurnýjunar véla.
Vandmál sem leyst verður á sama
hátt og GB gerði í ár, með bjar-
sýni. Enda var lagt til að félags-
gjöld yrðu ekki hækkuð í samræmi
við almenna verðlagsþróun og var
það samþykkt.
Stjórn GB var kjörin þannig að
hana skipa Ingvi Árnason formað-
ur, Björgvin Óskar Bjarnason, Mar-
grét K Guðnadóttir, Guðmundur
Bjartara framundan í fjármálum Golfklúbbs Borgarness
Svipmynd af stjórnarborðinu á aðalfundinum.
Guðmundur Daníelsson færði Anton Elí Einarssyni háttvísisverðlaun GSÍ.
Framsókn lofaði í síðustu kosning-
um niðurgreiðslu skulda einstak-
linga með fé ríkissjóðs, en eins og
almenningur veit þá varð niður-
staðan 80 milljarða greiðsla inn á
skuldir þeirra sem miðaldra eru,
mest skulduðu og höfðu hæstu tekj-
urnar. Þetta var heldur lægri fjár-
hæð en lofað var en nokkuð gott
fyrir þá sem nutu góðs af. For-
maður flokksins mun á einhverjum
tímamótum hafa kallað þetta „sátt-
mála milli kynslóða.“
Þessu til viðbótar var samþykkt
að nota mætti framlög til söfnun-
ar séreignarlífeyris sem greiðslu á
skuldum með skattaafslætti. Aðeins
þeir sem hafa tekjur yfir meðallagi
geta fullnýtt skattaafsláttinn þann-
ig að enn og aftur eru það þeir sem
meira hafa sem mest njóta.
Vegna ríflegra kjarabótar opin-
berra starfsmanna á þessu ári hafa
lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs
hækkað á árinu um 126 milljarða og
munu standa í litlum 794 milljörð-
um. Þrátt fyrir þetta fallega nafn
„skuldbinding“ þá er þetta ófjár-
mögnuð skuld við núverandi og
fyrrverandi starfsmenn ríkisins.
Gott hefði
verið að nota þá
80 milljarða sem
þeir sem meira meiga sín fengu í
„lánaleiðréttingu“ til þess að létta á
þessari skuldbindingu. Þá væri líka
gott fyrir framtíðina að eiga væntar
skatttekjur af séreignarlífeyri sem
nú er verið að gefa eftir, til greiðslu
á hluta af þessarar skuldbindingu.
Í raun er hallinn á ríkissjóði í ár
vantalinn um þessa 126 milljarða.
Núverandi stjórnarherrum virð-
ist slétt sama um þessa stöðu, enda
framtíðarvandi og kemur því lík-
lega í hlut annarra að leysa.
Þeir sem þurfa að hafa áhyggjur
eru börnin okkar og barnabörn sem
súpa seyðið af uppsöfnuðum vanda
lífeyriskerfisins og eftirgjöf fram-
tíðartekna af séreign. Þeim er ætl-
að að greiða skuldina og þá um leið
horfa upp á skerta samneyslu og
verri lífskjör sér til handa.
Ekki er víst að þau verði öll sátt
um þann „sáttmála milli kyn-
slóða“.
Borgarnesi, 14. desember 2015
Guðsteinn Einarsson.
Skautað framhjá
„smáatriðunum“
Pennagrein
Félagar í Lionsklúbbi Búðardals
eru nú rúmlega 20 talsins. Að auki
er starfandi deild á Reykhólum sem
telur 17 félaga en hún er hluti af
Lionsklúbbi Búðardals og starfar
sjálfstætt. Þorkell Cýrusson er fé-
lagi í klúbbnum í Búðardal og tók
hann að sér að vera umdæmisstjóri
fyrir tveimur árum, en það er næst-
æðsta embætti hreyfingarinnar á Ís-
landi og er hann því í heiðursráði
hjá umdæmi 109B. Einnig er hann
ritstjóri Lionsblaðsins sem er gefið
út sex sinnum á ári. Þorkell er virk-
ur í starfi sínu innan klúbbsins en
klúbburinn hefur ýmis jólatengd
verkefni á sinni könnu. Eitt af þeim
er að koma saman og skreyta Dval-
arheimilið Silfurtún í upphafi að-
ventu. Skapast hafa hefðir varðandi
skreytingarnar líkt og gerist á öðr-
um heimilum landsins og segja má
að þeir sem lengst hafa starfað inn-
an félagsins séu orðnir vel heima-
vanir hvað þetta varðar.
„Það er okkur ljúft og skilt að
gera þetta. Meðan á skreytingum
stendur koma flestir heimilismanna
fram og spjalla við okkur. Stundum
segja þeir okkur líka til. Það skapast
góð stemning þegar hópurinn kem-
ur saman á Silfurtúni og starfsfólk
býður upp á kvöldkaffi sem heim-
ilisfólk drekkur yfirleitt með okkur.
Þess má geta að við seljum minn-
ingarkort þar sem allur ágóði renn-
ur óskiptur til Silfurtúns og höf-
um við t.d. notað hann til kaupa á
hægindastólum og sjónvarpi,“ seg-
ir Þorkell.
Lionsfélagar byrja þannig jóla-
mánuðinn með elstu þegnum sam-
félagsins en á milli jóla og nýárs
hlúa þeir að yngsta hópnum. Jóla-
ball Lionsklúbbsins er löngu orð-
inn fastur liður í jóladagskrá Dala-
manna og er það haldið í félags-
heimilinu Dalabúð. Þegar jóladansi
lýkur er boðið upp á heitt kakó en
gestirnir leggja til smákökur. „Ekki
veit ég nákvæmlega hversu lengi
þetta hefur verið á okkar könnu en
í það minnsta nokkra áratugi. Þetta
byrjaði þannig að kvenfélagið leit-
aði til okkar um að aðstoða sig við
þetta. Stuttu síðar tók Lions alfarið
við þessu og hefur séð um það all-
ar götur síðan. Í ár verður jólaball-
ið haldið 30. desember kl. 17:00,“
upplýsir Þorkell.
Í desember fer ein helsta fjár-
öflun félagsins fram en þá stendur
Lionsklúbburinn fyrir sölu á ýms-
um varningi. Þar má nefna súkk-
ulaðijóladagatalið vinsæla, gjafa-
pappír, ljósaperur, reykskynjara og
fleira. Þennan varning er hægt að
nálgast á opnunartíma Leiðsbúðar
við smábatahöfnina í Búðardal. Úr
sjóði Lionsmanna eru veittir styrkir
til góðgerðarmála eða til að styrkja
málefni í heimabyggð sem snerta
velferð almennings.
„Við erum alltaf að leita að góðu
fólki sem er til í að starfa með okkur
að mannúðar- og líknarstarfi. Við
leitum bæði að konum og körlum
því klúbburinn okkar er blandað-
ur og þannig viljum við hafa það,“
segir Þorkell að lokum.
sm
Skreyta á dvalarheimilinu og
halda jólaball fyrir börnin
Þorkell Cýrusson er umdæmisstjóri hjá Lions.
Daníelsson og Jón Haraldsson.
Viðurkenningar voru veittar.
Anton Elí Einarsson fékk háttvís-
isverðlaun GSÍ en þau eru veitt ár
hvert þeim kylfingi undir 18 ára
aldri sem endurspeglar hvað mest
þá eiginleika sem GB vill sjá í afreks-
efnaunglingum sínum. Í almennum
umræðum var rætt um samvinnu
við okkar næstu samstarfsfélaga
og að bjóða golfklúbbum á Vest-
urlandi t.d. aðgang að frábærri að-
stöðu okkar í Brákaey þ.e. Eyjunni.
bób