Skessuhorn - 16.12.2015, Blaðsíða 108
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015108
Endurskoðun skólastefnu Borgarbyggðar:
Raddir barna og ungmenna
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
- -
-
-
Daglegar ferðir frá
Akranesi - Reykjavík
Reykjavík - Akranes
Akranes -
fimmtudagur 17. desember
Jólafjör í Búkollu. Opið er frá kl. 18
- 21. Kl. 19:30 kemur Kór Saurbæjar-
sóknar ásamt Karlakórnum Svönum
í heimsókn og flytja þeir fallega
jólatónlist.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 17. desember
Hátíðartónleikar - jólatónleikar í
Stykkishólmskirkju kl. 18. Nem-
endur skólans flytja alls konar tón-
list sem kemur okkur í hátíðarskap.
Fjölbreytt samspil, einleikur og
söngur úr öllum deildum skólans.
Við hvetjum fólk til að gefa sér tíma
frá erli dagsins til að njóta stundar-
innar með okkur.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 17. desember
Kvöldopnun í Ljómalind sveita-
markaði að Brúartorgi 4. Opið verð-
ur til klukkan tíu. Samvera, kertaljós
og huggulegheit. Allir velkomnir.
Borgarbyggð -
föstudagur 18. desember
Jólaball í Félagsheimilinu Brún í
Bæjarsveit. Hví ekki að byrja jóla-
törnina á að skella sér á sveitaball?
Hljómsveitin Meginstreymi leikur
fyrir dansi, húsið opnar kl 23 og
byrjar hljómsveitin að spila á mið-
nætti. Miðaverð: 2.500 kr. Aldurs-
takmark er 18 ár. Ath. Enginn posi.
Borgarbyggð -
laugardagur 19. desember
Jólatrjáahögg á vegum Björgunar-
sveitarinnar Brákar og Skógræktar-
félagsins í Holti (fyrir ofan Borgar-
nes). Boðið er upp á að fólk komi
í skóginn, velji sér tré og höggvi.
Félagar í Björgunarsveitinni Brák
standa vaktina og aðstoða við val
á jólatrjám 19. desember kl 12-15.
Sama verð er fyrir öll tré óháð gerð,
6500 kr. Boðið verður upp á hress-
ingu fyrir gesti.
Borgarbyggð -
laugardagur 19. desember
Jólamarkaður verður í íþróttahús-
inu á Hvanneyri kl. 13. Kaffihúsið
í Skemmunni verður með ýmist
jólalegt góðgæti, svo sem ristaðar
möndlur, jólaglögg og jólavöfflur.
Skógrækt ríkisins verður með
jólatréssölu. Jólaleg dagskrá verður
í kirkjunni.
Stykkishólmur -
laugardagur 19. desember
Jóla-ljúfmetismarkaður í Rækjunesi
við Reitarveg kl. 14. Veitingamenn
og matvælaframleiðendur í Stykk-
ishólmi og nágrenni bjóða upp á
smárétti í jólabúningi.
Akranes -
laugardagur 19. desember
Órjúfanlegur hluti af jólahaldinu
í rúma þrjá áratugi eru Þorláks-
messutónleikar Bubba Morthens.
Þeir verða nú, eins og undanfarin
ár, haldnir á þremur stöðum, þar
á meðal í Bíóhöllinni Akranesi 19.
desember. Miðasala á tix.is.
Reykjavík -
laugardagur 19. desember
Helgina 19.-20. desember ætlar
Breiðfirðingakórinn að ganga um
miðborg Reykjavíkur og syngja
á Laugavegi og Skólavörðustíg, í
Bankastræti og Austurstræti og á
Ingólfstorgi milli kl. 15 og 16 báða
dagana.
Borgarbyggð -
sunnudagur 20. desember
Jólatrjáahögg á vegum og Björg-
unarsveitarinnar Heiðars og Skóg-
ræktarfélagsins í Grafarkoti. Boðið
er upp á að fólk komi í skóginn, velji
sér tré og höggvi. Félagar í Björg-
unarsveitinni Heiðari standa vaktina
og aðstoða við val á jólatrjám kl
11-15. Sama verð er fyrir öll tré
óháð gerð, 6500 kr. Boðið verður
upp á hressingu fyrir gesti.
Borgarbyggð -
sunnudagur 20. desember
Skötuveisla í Logalandi kl. 19:30.
Húsið opnar kl. 19:00 og verður
matur fram borinn frá 19:30 - 21. Á
boðstólnum verður kæst skata og
saltfiskur ásamt tilheyrandi með-
læti; kartöflum, rófum, gulrótum,
hamsatólg, hnoðmör og síðast en
ekki síst heimaböku rúgbrauði með
smjöri. Drykkjarföng verða seld á
staðnum Aðgangseyrir er kr. 2.500,-
og frítt er fyrir börn 12 ára og yngri.
Akranes -
sunnudagur 20. desember
Jólatrjáasala Skógræktarfélags
Akraness kl. 12 - 15 í Slögu í Akra-
fjalli.
Á döfinni
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Pennagrein
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
Verið er að vinna að endur-
skoðun skólastefnu Borgar-
byggðar og stefnt er að því
að þeirri vinnu ljúki með vor-
inu. Liður í þeirri endurskoð-
un er að leita eftir sjónarmið-
um nemenda um skólagöngu
sína. Voru kennarar í leikskól-
um og grunnskólum hvattir
til að ræða eftirfarandi spurn-
ingar við nemendur í kennslu-
stund:
1. Hvernig finnst þér skólinn
þinn?
2. Hvað er skemmtilegast í
skólanum? Hvað gengur þér
best með?
3. Hvað er leiðinlegast í skólanum?
Hvað gengur þér verst með?
Svör nemenda veita kennurum
innsýn í reynslu þeirra og upplifun.
Voru svör nemenda tekin saman að
umræðum loknum.
Börn í leikskólum
Í einum leikskóla unnu börnin
verkefni um draumaleikskólann
og fengu hugmyndir barnanna að
njóta sín í þeirri vinnu. Meðal ann-
ars vildu börnin hafa rennibraut
inni, trampólín, mikið af trjám,
tækni-lego og marga kennara. Þau
vildu hafa eldhús miðsvæðis og
fá að taka þátt í eldamennskunni.
Einnig fannst þeim mikilvægt að
hafa dýr, vatn og bát.
Í samtölum kennara og barna á
leikskólunum kom fram að börn-
unum þótti skemmtilegt í leikskól-
anum og þeim fannst leikskólinn
sinn flottur. Þau sögðust læra að
leika sér öll saman, hlýða konunum
og læra að vera stillt og prúð. Einn-
ig sögðust þau læra að skrifa stafi og
nöfnin sín. Börnin voru öll ánægð
með leikskólann sinn, fannst hann
fínn og gaman að leika í honum.
Það sem börnin töldu skemmti-
legast að gera var að leika við vin-
ina, úti og inni. Þeim fannst gam-
an að vinna með venjurnar sjö,
vera þjónaleiðtogi og bókaleiðtogi.
Einnig fannst þeim gaman að leika
í listakrók, salnum, í búó og í sand-
kassanum. Best var að borða ávexti
og þegar vinirnir voru að hjálpa
hver öðrum.
Það sem börnunum á leikskól-
unum fannst leiðinlegast var þeg-
ar einhver í leikskólanum var að
meiða aðra, henda sandi í mann og
þegar verið var að skemma. Börn-
unum fannst leiðinlegt að vera úti
í roki og rigningu og að labba í
göngutúrum. Og ekki var gott að
þurfa að leika einn.
Nemendur í
grunnskólum
Í samtölum kennara við nemend-
ur í grunnskólunum í Borgarbyggð
koma fram að flestum nemendum
fannst skólinn skemmtilegur og
góður, að þar færi gott nám fram
og námsefni væri fjölbreytt. Þeim
fannst skólinn vera heilsueflandi,
margir íþróttatímar, fjölbreytt-
ur matur og mikið val. Einhverj-
um nemendum fannst skólinn ekki
góður og frekar leiðinlegur. Þar
væru of mikil læti, talað of mikið og
skólinn í niðurníðslu. Aðrir
höfðu orð á því að betra væri
að vera í litlum skóla því þeir
væru huggulegir og rólegir.
Nemendunum fannst
skemmtilegast að fara í frí-
mínútur og fótbolta, læra
list- og verkgreinar, stærð-
fræði og ensku. Flestum
fannst þeir fá góða hjálp við
námið, að kennararnir væru
skemmtilegir og að góður
starfsandi ríkti í skólanum.
Einnig væru vinirnir góðir
og gaman í bakstri í heimilis-
fræði. Þeim fannst árshátíðin
skemmtileg og gaman að búa
til brandara.
Það sem helst má bæta í skól-
unum að mati nemenda var marg-
földunartaflan, frímínúturnar og
að betri fyrirvari væri á verkefna-
skilum. Þeim fannst hægt að stytta
skólatímann, minnka heimanám-
ið og hafa meira ljós, gott hljóð
og betri mat. Einnig má koma upp
sjálfsala í skólanum að þeirra mati,
þaki á fótboltavöllinn og betri kló-
settherbergi. Þeim fannst þurfa að
hafa sífellda gæslu, fleiri bækur og
góðan matsal. Tryggja þarf að net-
sambandið virki og skipuleggja
þarf sund og íþróttir vel. Það þarf
að hafa fleiri valmöguleika í vali og
vera ekki alltaf að nota heilhveiti í
heimilisfræðinni. Að lokum fannst
nemendum að fleiri ættu að hlýða
kennurunum, minnka einelti í skól-
unum og að nemendur ættu að sýna
meiri metnað í námi.
Sjónarmið nemenda munu vera
höfð til hliðsjónar við endurskoð-
un skólastefnunnar og viðhorf for-
eldra, kennara og annars starfsfólks.
Einnig mun skólastefnan taka mið
af erlendri og innlendri stefnumót-
un í skólamálum.
Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðs-
stjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar
Leikskóli á mörgum hæðum og tröppur sem hægt er
að ganga upp og niður. Mikið af sól og falleg blóm ein-
kenna þennan leikskóla.