Heimsmynd - 01.12.1986, Blaðsíða 21
urinn var dáinn. Ég er alin upp í þessu
hugarfari. Ég vil geta lagt fólki lið endur-
gjaldslaust. Sama daginn og prófkjörið
átti sér stað varð gömul kona á vegi
mínum. Ég ræddi við hana og hún sagðist
ekki vera flokksbundin. Þegar ég bauðst
til að keyra hana þangað sem hún var að
fara, því úti var mikil hálka fyrir fótgang-
andi aldrað fólk, varð hún mjög hissa.
Hví skyldi ég gera það ef hún væri ekki
flokksbundin."
Þegar Sólveig fór að sofa undir morg-
un daginn eftir prófkjörið vissi hún úr-
slitin. Þau komu henni á óvart, segir hún
sjálf. „Ég er ákaflega jarðbundin og
hafði síður en svo gert mér miklar vonir.
í slag sem þessum eignast maður marga
viðhlæjendur þannig að ég vissi eiginlega
ekki hvort hinar jákvæðu undirtektir
voru raunhæfar. Auk þess komst ég að
því þegar fór að líða á baráttuna að ég
var svolítið græn. Gerði mér ekki grein
fyrir því hversu harðsnúið þetta væri,
líkast til sem betur fer.“
Margir höfðu hvatt hana til að fara í
slaginn. Áður en hún tók ákvörðun
kannaði hún undirtektir víða. Hún komst
að því að margir töluðu um hana sem
unga og ómengaða og því fýsilegan kost
fyrir listann. Sjálf segir hún: „Kristinn,
maðurinn minn, hefur verið miklu virk-
ari í flokknum en ég. Hann var í stjórn
Heimdalls og formaður fulltrúaráðs á
Seltjarnarnesi en þar bjuggum við í
nokkur ár. En ég sé ekkert því til fyrir-
stöðu að taka þátt í svona þótt maður
hafi ekki starfað á öllum þrepum innan
flokksins. Á meðan maður er ungur og
þorir á maður að grípa tækifærið.“
„Ég hef þó unnið í nefndum og ráðum
á vegum flokksins. Var lögfræðingur
mæðrastyrksnefndar og sat í barnavernd-
arnefnd á vegum Sjálfstæðisflokksins.
Það var í kjölfar borgarstjórnarkosning-
anna síðastliðið vor að ég fór að gæla við
hugmyndina um prófkjör fyrir þingkosn-
ingar. Ég sá að með breyttri kjördæma-
skipan og aðeins fimm starfandi þing-
menn í prófkjöri væru líkur á þremur til
fjórum nýjum þingmönnum. Þorsteinn
Pálsson hafði hvatt menn til að kjósa
konur með tilliti til breyttra þjóðfélags-
aðstæðna. Það trúir því sjálfsagt enginn
en það var ekki aðeins persónulegur
metnaður sem hratt mér út í þetta heldur
sú staðreynd að flokknum væri nauðsyn
að fá fleiri konur. Auk þess fannst mér
stemmningin þannig að það væri til bóta
að fara fram sem kona einmitt núna. Það
þýðir ekki að hið sama verði upp á ten-
Ung og nýgift í sumarleyfi með eiginmanni sínum Kristni Björnssyni.
Með frumburðinn Pétur Gylfa.
ingnum í næsta prófkjöri. Ég sá þó vissa
áhættu í þeirri ákvörðun því það hefði
verið slæmt að falla. Fjölmiðlar setja
ákveðinn stimpil á fólk sem fellur í próf-
kjöri, sérstaklega konur. Ég tel það mjög
ámælisvert að talað er um konur sem
klassíska fallkandídata á meðan karl-
menn sem reyna oftar en einu sinni í
prófkjörum eru næstum lofaðir fyrir
þrautseigju sína. Því verð ég að segja að
Bessí Jóhannsdóttir, sem fékk einmitt
þennan stimpii í einhverjum fjölmiðlum,
stóð sig að mínu mati frábærlega vel.
Hún er töff... Annað sem blöð gerðu var
að segja að kvenframbjóðendur Sjálf-
stæðisflokks væru allar mjög keimlíkar.
Ég get ekki séð hvað við eigum meira
sameiginlegt en að vera allar kvenkyns.
Aldrei heyrir maður talað um að karl-
frambjóðendur séu keimlíkir.“
Hún segist hafa tekið þá ákvörðun
strax að heyja baráttu sína ein á báti. „Ég
vildi forðast allt sem jaðraði við banda-
lög og taldi ráðlegast að byggja baráttuna
á mér persónulega. Það hafði reyndur
maður í pólitík líka ráðlagt mér. Hins
vegar má segja að ég hafi kastað mér út í
þennan slag án þess að gera mér grein
fyrir hvað til þyrfti. Ég byrjaði ein og
hringdi í fólk. Ég réði mér engan kosn-
ingastjóra. Tengdafaðir minn lánaði mér
autt herbergi í skrifstofuhúsnæði H.Ben.
á Suðurlandsbraut en sum blöð töluðu
eins og ég hefði heila byggingu til
umráða.“
Og varðandi kostnaðinn segir hún.
„Við erum ekki einu sinni búin að gera
það dæmi upp við okkur. Varðandi
auglýsingakostnað í prófkjörsbaráttunni
er samskotaleiðin farin. Það er ekkert
leyndarmál. Það tala margir eins og við
Kristinn séum svo rík. Við erum ekkert
sérstaklega vel stæð. Það var til dæmis
stór biti fyrir okkur að kaupa þetta hús
sem við búum í. En auðvitað höfum við
það gott miðað við marga aðra.“ Hún
horfir í kringum sig í híbýlum sínum í
HEIMSMYND 21