Heimsmynd - 01.12.1986, Blaðsíða 44
RAGNAR TH.
Hefur Píus páfi XI sýnt kirkju þessari
alveg sérstaka velvild og umönnun. Hef-
ur hann sjálfur þegar sent kirkjunni
gripi, Kristsmyndina sem hann sendi
hingað í fyrra og nú stendur á stöpli úr
afríkönskum marmara við altariströpp-
urnar.
Úr Fálkanum: Síðari hluta mánudags
hófst kirkjuvígslan. Pað er suðrænn ef
ekki austrænn blær yfir helgisiðum kaþ-
ólskra manna, litir og ljós, iðandi líf og
þó eins og töfrablær yfir öllu saman... Er
hann (Van Rossum) gekk með mítur og
kórkápu um kirkjuna og stökkti hana
vígðu vatni, hár og herðalotinn, gat mað-
ur látið sér fljúga í hug að hér væri kom-
inn Jón Arason.
Þetta var í sem einfaldastri samantekt
saga endurnýjunar kaþólsku á íslandi og
saga Kristskirkju á Landakotstúni.
Árið 1978 skipti Reykjavíkurborg á
sneið úr Landakotstúni og lóð í Breið-
holtinu og á boðunardegi Maríu, 25.
mars 1985, var blessuð þar ný kirkja við
Raufarsel í Breiðholti. Maríukirkjunni
þjóna tveir prestar, séra Robert Brads-
Fólk spyr mig gjarnan
hvaö kaþólsk kirkja
geri fyrir mig. Ég vil
miklu frekar spyrja,
hvaö get ég gert fyrir
Guö?
(ÞRÍTUGT HÚSMÓÐIR)
haw, sem hefur verið hér óslitið síðan
1976, og séra Patrick Breen sem hingað
kom fyrir tveimur árum.
Um heimsmynd kaþólskra segir séra
Patrick Breen: „Við segjum að heims-
mynd sérhvers kaþólsks manns sé að
deila trú sinni til hins ítrasta með öðrum.
En það er misskilningur sem ég hef oft
heyrt um kirkjuna að hún sé ágeng og
frek í trúboði sínu. Hins vegar þykir okk-
ur gott ef fólk kemur til okkar, við erum
alltaf reiðubúin.“
Á íslandi er áætlaður fjöldi kaþólskra
um sautján hundruð. Samkvæmt upplýs-
ingum hagstofunnar er töluvert um
kaþólikka sem kalla mætti blandaða, það
er fólk sem flust hefur til Iandsins, sest
hér að eða gifst íslendingum.
Um kirkjurækni kaþólikka segir séra
Patrick að „hún mætti vera betri." Heim-
ildir herma að talsverður áhugi sé á kaþ-
ólsku um þessar mundir og þess gæti í
ríkari mæli að fólk skipti um trú. Séra
Patrick segist hins vegar ekki hafa orðið
var við neina sérstaka vakningu, þótt
hann voni að svo verði.
-En hvað kemur ungum manni til að
verða kaþólskur prestur? „Skriftafaðir
minn skaut þeirri hugmynd að mér. Mig
hafði langað til að vinna í tengslum við
kirkjuna en hér var ekki um neina upp-
ljómun að ræða. Ég hygg að það sé ekki
oft sem Guð tekur valið af mönnum eins
og til dæmis í köllun Páls postula."
-En er það rétt að hver einasti kaþólsk-
ur prestur stefni að því að verða dýrl-
ingur? Um það segir séra Patrick: „Ég
held að það mætti frekar orða það svo að
hver einasti kaþólskur maður ætti að
leitast við að verða dýrlingur, reyna að
verða fullkominn. Á írlandi fara margir
til messu á hverjum degi.“
-Hvað segir kaþólska kirkjan um
djöfulinn? „Við trúum því að djöfullinn
sé til, kannski ekki með horn, hala og
klaufir, heldur sem illt afl, illur andi í
veröldinni," segir séra Patrick.
Séra Robert Bradshaw er íri á sextugs-
aldri sem hefur dvalið á íslandi í áratug.
Ástæðu þess að hann settist hér að segir
hann: „Ég kom í tveggja vikna heimsókn
til íslands, og eitt sinn er ég var að labba
niður Austurstræti mætti ég nokkrum
drengjum sem sögðu: Hei! Manni, ertu
prestur? Já, svaraði ég. Og hvernig prest-
ur? Kaþólskur, sagði ég. Pá sögðu þeir
eitthvað sín á milli sem mér heyrðist vera
vit-lás. Nei, ég er ekki vitlaus, svaraði ég,
þegar ég hafði fengið orðið þýtt. Vitiði
ekki drengir mínir að kaþólska kirkjan er
kirkjan sem Kristur stofnaði og hún er
frumkirkja íslands? Nei, það höfðum við
ekki hugmynd um, sögðu þeir, við höfum
aldrei fyrr hitt kaþólskan prest. Munduð
þið vilja hlusta ef ég kæmi og talaði við
ykkur um kaþólsku kirkjuna? Já, mjög
gjarnan, svöruðu þeir.“
Séra Robert Bradshaw er þeirrar skoð-
Séra Patrick Breen: „Heimsmynd kaþólskra er að deila trú sinni með öðrum til hins ítrasta."
44 HEIMSMYND