Heimsmynd - 01.12.1986, Blaðsíða 123
langar lúmskt ad vera dramaleikari.
myndina, konan varð ófrísk og ég hætti
við að fara út annan vetur.“
Það var um áramótin 1983 sem Laddi
og Egill Ólafsson voru teknir inn í félag
íslenskra leikara. „Það gerði í raun út-
slagið að ég taldi ekki eins brýnt að fara í
nám erlendis. Hins vegar er ég ekki bú-
inn að gefa nám upp á bátinn. Mig langar
að læra framsögn og fara í söngnám. Þá
hefur líka hvarflað að mér að fara í
íslenskunám."
Menntunarskortur hefur hins vegar
ekki staðið í vegi fyrir tilboðum á undan-
förnum árum. „Ég hef aðallega unnið
fyrir sjónvarpið og komið fram í
nokkrum kvikmyndum þótt mitt stærsta
hlutverk hafi ég ekki fengið fyrr en síð-
astliðið sumar, í Stellu í orlofi. Ég lék
smáhlutverk í Gullsandi Ágústs Guð-
mundssonar og í Veiðiferð Andrésar Ind-
riðasonar. Þá hafði Þráinn Bertelsson
samband við mig þegar Líf-myndirnar
voru í bígerð. Við Jörundur Guðmunds-
son vorum í því að leggja drög að fyrstu
myndinni. Við áttum hugmyndina að
Þór, Danna og lifibrauði þeirra. En Þrá-
inn sveik okkur. Hringdi einn daginn og
sagðist vera búinn að fá aðra í hlut-
verkið. Það var mjög ómerkilegt af hon-
um. Hins vegar er ég dauðfeginn eftir að
hafa séð útkomuna.“ Þá lék hann í kvik-
mynd Stuðmanna Hvítir mávar og setti á
fót revíu í Hafnarbíói ásamt öðrum grín-
leikurum, Gísla Rúnari Jónssyni, Erni
Árnasyni og Pálma Gestssyni.
Spaugstofan er síðan nýjasta uppfinn-
ingin hjá Ladda og félögum hans, Rand-
veri Þorlákssyni, Karli Ágústi Úlfssyni
og Erni Árnasyni. „Við höfum ýmislegt á
prjónunum, erum með frábæra hugmynd
að kvikmynd og sitthvað fleira. Hins veg-
ar erum við nú á kafi í að undirbúa
áramótaskaupið. “
Halli bróðir hans er hans besti vinur,
segir hann. Björgvin Halldórsson er
einnig náinn vinur hans en allir þrír stofn-
uðu þeir HLH-flokkinn. „Bjöggi hefur
lúmskan húmor, sem ekki allir skynja.“
Hann telur upp fleiri vini sína þar á
meðal leikarahjónin Eddu Björg-
vinsdóttur og Gísla Rúnar Jónsson sem
léku með honum í Stellu í orlofi. Edda er
frábærlega örugg leikkona. Gísli Rúnar
er skemmtilegur. Núna erum við að setja
saman skemmtiþátt á Hótel Sögu, sem
byrjað verður að flytja í janúar. Við höf-
um líka kýmnigáfu en hann er pjattaðri
en ég. Það er ótrúlegt hvað hann lifir sig
inn í karakterana sem hann leikur. í hlut-
verkinu í Stellu átti hann að vera brúnn á
hörund. Hann lá í Ijósabekk öllum stund-
um og var svartur.“
Hann segist vinna „allan sólarhring-
inn.“ Hann semur og æfir, gælir við hug-
myndir og horfir í kringum sig. „Pólitík-
usar eru í engu uppáhaldi hjá mér. Sé
ekkert frjótt við að nota þá sem uppi-
stöðu í grínþætti. Það er
hversdagsmaðurinn sem heillar mig.
Þreytta húsmóðirin sem drekkur kaffi af
undirskál og tekur andköf yfir kjafta-
sögum.“
Og hann leikur hana. Á svipstundu
breytist látbragð, rödd og andlit. Tvær
konur á næsta borði líta í áttina til hans.
Hann tekur ekki eftir því. Náttúrutalent-
inn Laddi.
HEIMSMYND 123