Heimsmynd - 01.12.1986, Blaðsíða 105
SKA
i
►
desemberjfréttir
erlendis frá...
Þótt sígilda línan standi alltaf fyrir sínu segja margir hönnuðir nú að tíska í árslok, sérstaklega í
kvöldfatnaði. sé Þetta er sérstaklega áberandi hjá Parísarhönnuðum eins
og til dæmis Christian Lacroix hjá Jean Patou. Hann gengur svo langt í að sýna hversu lítil alvara
honum er með því að sýna kvöldkjól, þar sem pilsið er úr bleiku skinni! Nei, nei. Engin ástæða til
að óttast að fylgjast ekki með þótt skinnpilsin séu ekki notuð. Svartur, einfaldur kjóll er enn eins
sígildur og eins mikið í tísku og hann hefur alltaf verið. Annars ku spánski flamengó-stíllinn vera
að ryðja sér til rúms. Hönnuðir þurfa víða að leita fanga til að fá hugmyndir, oft leita þeir til einhverra
tímabila eða þá landsvæða, eins og kemur fram í kósakkatísku og kínverskum áhrifum. Nú eru það
hins vegar áhrif frá rómönskum löndum, Spáni og Argentínu. Og í framhaldi af þessu má spá svörtum
kjólum úr taffeta silki, í stíl listmálarans Goya. Eða svo vikið sé nær nútímanum, kvölddragt í stíl við
búning nautabana, sem Yves Saint Laurent hannar. Og fyrst minnst er á YSL má bæta því við að upp-
áhaldslitur hans núna rétt fyrir jólin er Liturinn sem Elsa Schiaparelli innleiddi í tísk-
unni snemma á fjóðra áratug. Hún kallaði þennan æpandi neonbleika lit, shocking pink!
Saint Laurent notar þennan skærbleika lit í kvöldklæðnaði og þá helst með svörtu pilsi eða buxum.
Aðrir hönnuðir nota litinn í ullarfatnað til hversdagsnota.
Prjónafatnaður er enn vinsæll, peysusett og prjónakjólar, rúllukragapeysur og stutterma peysur.
Pils setja einnig svip sinn á samkvæmisklæðnað nú fyrir áramótin. Á kvöldin eru það
oft víð og breitt belti í mittið. Við pilsin er bæði hægt að nota blússur og peysur, en nýjasta nýtt
eru svokallaðir Sophiu Loren bolir. Það eru síðerma bolir, flegnir og axlaberir.
Einkenni á buxum núna eru víðari snið og hár buxnastrengur. Sumir hönnuðir eru með buxna-
fc síddir niður á miðja kálfa.
Fyrir utan mittið er sá líkamshluti sem snið fata miðast mikið við. Þetta kemur sérstaklega
fram í kvöldtískunni. Það er sá þáttur klæðnaðar sem við fjöllum um hér. Jól og áramót í nánd og
því birt nokkur dæmi úr heimi hátískunnar um kvöld- og samkvæmisklæðnað.