Heimsmynd - 01.12.1986, Blaðsíða 81
VIÐSK
D'
markadssetur
Samtök sýningarfólks hafa verið til staðar á íslandi það lengi
að framhjá fáum hefur farið. Nú hefur hins vegar í fyrsta sinn
verið stofnuð umboðsskrifstofa fyrir ljósmyndafyrirsætur og
það af fyrrverandi fyrirsætu Önnu Björk Eðvarðsdóttur. Hún
er 28 ára gömul, fyrrum skrifstofustúlka og jafnframt ungfrú
fsland árið 1977 auk þess sem hún starfaði sem sýningarstúlka
hjá Karon-samtökunum, einum af þrennum slíkum samtökum
sem starfandi eru á íslandi.
Fyrirtæki Önnu Bjarkar, Fyrirsœtan hf, sem þegar hefur
nóg að gera, hefur það að aðalmarkmiði að vera milliliður á
milli auglýsingastofa, framleiðenda auglýsingamyndbanda og
stærri fyrirtækja sem þurfa á fyrirsætum að halda í kynningar-
bæklinga sína. Fyrirtækið, Fyrirsœtan, var stofnað í september
°g meðeigendur Önnu eru Guðjón Magnússon arkitekt og
Stefán Guðnason en Anna Björk sér um daglegan rekstur
fyrirtækisins.
„Ég sá að það var þörf á svona fyrirtæki. Sjálf hafði ég oft
verið beðin um að útvega fyrirsætur í hin og þessi verkefni.
Upp frá því spratt hugmyndin um að stofna svona umboðs-
skrifstofu og fékk ég þá félaga með mér í þetta.“
Hún segir að það hafi þurft lítið til að stofna svona fyrirtæki.
„Húsnæði og auglýsingu í dagblöð eftir fyrirsætum og það stóð
ekki á viðbrögðunum. Það voru aðallega táningar sem sóttu
fast eftir fyrirsætustörfum en það er ekki endilega mest þörf á
þeim. Eftirspurnin er hins vegar helst eftir fólki sem komið er
yfir þrítugt og allt upp í sextugt.“
Hún segir engar útlitskröfur gerðar. „Það er ekki endilega
þetta fallega fólk sem auglýsendur eru að leita að, heldur fólk
sem getur leikið eða hefur eftirminnilegt andlit. Fyrsta verk-
efnið mitt var fyrir Verslunarbankann sem óskaði eftir fólki á
núðjum aldri, miðaldra manni og aðeins yngri konu auk
fveggja af yngri kynslóðinni."
FYRIRSÆTUR
Er þetta venjulega fólk, eins og hún kallar það, í leit að
aukavinnu eða spilar hégómagirndin eitthvað inn í? „Aðallega
virðist hvatinn sá að fólk hefur gaman af þessu. Mörgum finnst
þetta spennandi og kannski gefur þetta sumum aukið sjálfs-
traust. Auk þess er þetta ágætlega borgað. Það fer eftir því hve
mikla þjónustu við veitum hversu háa prósentu við tökum fyrir
að útvega fyrirsætur. í mörgum tilfellum útvegar fyrirtækið
fatnað, förðun, hárgreiðslu og það sem til þarf.“
Sjálf hefur hún reynslu af að vera fyrirsæta. Byrjaði að sitja
fyrir og sýna með Karon-samtökunum sautján ára gömul. „Ég
var mun betri sýningardama en ljósmyndafyrirsæta. Ég mynd-
ast misvel en á sviði eru aðrar kröfur en linsan gerir. Þar eru
gerðar kröfur um réttan limaburð og vaxtalag. En ég hafði
bæði verið í ballett hjá Þjóðleikhúsinu og dansskóla. Og
fatnaðarhliðinni kynntist ég svo með því að starfa í tískuversl-
unum í mörg ár.“
Há, grönn með þykkt dökkt hár ætlar hún nú að hasla sér
völl á viðskiptasviðinu. Anna Björk er alin upp í Reykjavík,
dóttir einstæðrar móður. „Það hefur blundað í mér lengi að
takast á við einhvern alvöru hlut sjálf en vera ekki í vinnu hjá
öðrum. Og auðvitað valdi ég mér svið sem ég taldi mig ráða
við. Auk þess á svona fyrirtæki að hafa góða möguleika,
verandi hið eina sinnar tegundar hér á landi."
Fyrirtækið á allan hug hennar nú. „Og næstu árin. Það er
alveg þess virði. Jú, auðvitað langar mig til að eiga börn, þó að
minn tími sé ekki kominn á því sviði.“
Hún er bjartsýn á framtíðina, segir fólk mjög áhugasamt.
„Þetta virðist vera heimur sem heillar marga. Sumir bjóða
fram krafta sína, bara til að gera eitthvað.“
-Verður hún Eileen Ford íslands innan fárra ára?
„Ja-há.“ Bros. „Ég ætla alla vega að reyna að vinna að því
hörðum höndum.“
HEIMSMYND 81