Heimsmynd - 01.12.1986, Page 31
rikssyni þannig frá aðdragandanum:
,.Þegar drengurinn hafði verið hér í
nokkra daga, þá sá ég að honum var
eitthvað illt í augunum. Ég lét hann fara
ril læknis, sem var Andrés Fjeldsted.
Hann sagði að tachroma gengi að
drengnum, en það er tregsmitandi sjúk-
dómur. Svo byrjaði þessi dæmalausa
æsing, þar sem allir virtust blindir. Sagt
var að drengurinn þýddi bréf sem Lenín
sendi mér. Pá átti að vísa drengnum úr
landi. Ég spurði með hvaða heimild ætti
að gera það. Mér var sýnt það. Þar stóð,
að manni með bráðsmitandi sjúkdóm
niætti vísa úr landi. í bókum stóð, að
tachroma væri tregsmitandi sjúk-
dómur...“
Ólafur sá drenginn aldrei meir. Hann
var sendur til Kaupmannahafnar og það-
s, an til Sviss. Um afdrif hans veit enginn.
Síðan þetta gerðist hefur mikið vatn
runnið til sjávar, og væntanlega eru for-
dómar og tortryggni ekki söm í garð út-
lendinga og á tímum farsótta og smitsjúk-
dóma fyrr á öldinni, þegar spænska
veikin hafði tekið sinn toll og berklar,
holdsveiki og kynsjúkdómar herjuðu á
landann, að ekki sé minnst á pólitískar
væringar hér á landi sem annars staðar.
Þær væringar komust þó aldrei í hálf-
kvisti við þau ósköp sem dundu yfir í
■> Ungverjalandi árið 1956 og urðu til þess
að 52 ungverskir flóttamenn komu til
íslands, þar af níu fjölskyldur.