Heimsmynd - 01.12.1986, Page 60

Heimsmynd - 01.12.1986, Page 60
Sovétmanna í sendiráðinu í Reykjavík er oft skýrður með því að skriffinska sé svo mikil og þung í vöfum undir ráðstjórn, að tvo Rússa þurfi til að afkasta jafnmiklu og einn vestrænn skriffinnur gerir á jafn- löngum tíma. Má vera að svo sé, en það jafngilti þá að sex Sovétmenn ættu að starfa hér í sendiráðinu í Reykjavík, ef miðað er við íslensku starfsmennina þrjá í Moskvu. Pessi samlíking er í raun ekki fyllilega marktæk, þar sem Sovétmenn hafa þann sið að hafa einungis sovéska borgara í þjónustustörfum sendiráða sinna, þegar vestræn sendiráð jafnt í Reykjavík sem Moskvu, láta sér nægja innfædda í slík störf. í einu þeirra ráðuneyta sem töluverð samskipti hafa við Sovétmenn hér á landi, lét einn háttsettur starfsmaður þau orða falla við HEIMSMYND, að um það bil helmingur Rússanna í sendiráðinu hefði einhver raunveruleg störf undir höndum, en hinn helmingurinn væri þar til að passa hina. Petta er sagt í nokkru gríni, sem þó fylgir allnokkur alvara, þar sem hlutverk margra sendiráðsmanna- anna þykir mjög óljóst. Allavega er það ekki gefið upp í smáatriðum. Eins og önnur erlend sendiráð hér á landi sem annars staðar, mun sovéska sendiráðið hafa þann starfa að safna hin- um fjölbreyttustu upplýsingum um ís- lensk málefni, til skráningar og skil- greiningar í utanríkisráðuneytinu í heimalandinu. Utanríkisráðuneytið miðl- ar síðan upplýsingum til annarra stjórn- arstofnana eftir þörfum. í flestum tilfellum er þessi starfsemi eðlileg og nauðsynleg í samskiptum þjóða, og má geta þess, að íslensk sendi- ráð erlendis hafa sama hlutverki að gegna gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Vera má, að hinn mikli fjöldi sovéskra sendiráðsmanna í Reykjavík sem ekki eru beinlínis skráðir sem diplómatar sé hér til þess eins að þjóna hinum fáu útvöldu sendifulltrúum öreiganna. Fáir leggja þó trúnað á það, þótt þorri al- mennings leiði sjaldan hugann að þessum efnum. Hvað eru Rússarnir þá að bralla? Er ástæða til að gruna þá um græsku, eða eru allar hugleiðingar í þá átt bara leifar af ísmeygilegum heilaþvotti, kaldastríðs- og Rússagrýluáróðri Moggans? í nágrannalöndum okkar eru stjórn- völd ekki í neinum vafa um að sovéskir sendiráðsmenn stunda í verulegum mæli starfsemi sem er andstæð öryggi gisti- landsins. Frá flestum hinna Norðurland- anna eru fjölmörg dæmi um brottvikn- ingar sovéskra sendiráðsmanna, sem hafa orðið uppvísir að njósnum. Aðeins eitt slíkt dæmi hefur komið upp á íslandi, en það var þegar stæðilegur vörður lag- anna faldi sig aftur í pínulitlum Morris uppi við Hafravatn í febrúar 1963 og gómaði háttsettan starfsmann sovéska sendiráðsins, þegar hann hafði sest upp í farþegasæti bifreiðarinnar til að skiptast á peningum og ljósmyndum við Ragnar Gunnarsson vörubflstjóra. Stórkostlegasta atriði gildrunnar hefur án efa verið sá akróbatíski galdur að fela stórvaxinn lögregluþjón fyrir aftan fram- sæti litla bflsins, án þess að tortrygginn njósnarinn yrði hans var, fyrr en styrkur armur laganna teygði sig yfir sætisbakið og handsamaði þrjótinn. Tveimur Sovét- mönnum, Dimitri og Kisilev, var vísað úr landi í framhaldi af þessum atburði. Var þessi misheppnaða njósnatilraun einangrað tilfelli, eða má búast við að aðrar hafi verið gerðar og þá jafnvel með árangri. Pað væri afar barnalegt að halda Húsnæðið sem sovéska sendiráðið hugðist festa kaup á við hliðina á Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. að Sovétmenn hefðu á annan hátt á starf- semi sinni hér á landi, en annars staðar á Vesturlöndum. Hvarvetna á Vesturlöndum hefur komist upp um starfsemi sovéskra sendi- ráðsstarfsmanna, sem ekki samræmist stöðu þeirra eins og það er kallað á kurt- eislegu diplómatamáli. Er hér að sjálf- sögðu átt við njósnir af ýmsu tagi. hvað eru þá njósnir og hvað er eðlileg upplýs- ingaöflun? Skilin þar á milli eru ekki alltaf skörp. Blaðamennska er til dæmis viðurkennd upplýsingastarfsemi, sem í flestum tilfell- um telst eðlileg og nauðsynleg hverju upplýstu þjóðfélagi. Erlendis, ekki síst í Sovétríkjunum, hafa blaðamenn oft orð- ið fyrir því að vera ásakaðir um njósnir, þegar þeir hafa verið að afla upplýsinga í starfi sínu. Þekktasta tilfelli af þessu tagi hin síðari ár, er án efa Daniloff málið í Moskvu nú í haust. Pessi tortryggni gagnvart blaðamönnum einskorðast þó ekki við einræðisríki eins og Sovétríkin, heldur hafa fjölmörg svipuð mál komið upp í lýðræðisríkjum Vesturlanda, jafn- vel á Norðurlöndunum. Blaðamennska er óneitanlega gott skálkaskjól fyrir njósnara, en fráleitt er að halda að nokkur samnefnari sé á milli þessara starfsgreina, þótt skilin séu ekki alltaf skörp, þar sem báðir aðilar safna og vinna úr upplýsingum, nema að les- endahópar njósnaranna er að öllu jöfnu mun takmarkaðri en blaðamannanna. í stuttu máli er hægt að flokka sem njósnir, öflun upplýsinga um ríkis- eða framleiðsluleyndarmál sem jafnframt ógnar hagsmunum þess sem upplýsing- anna er aflað um. Sérstaklega er málið alvarlegt, þegar erlent ríki stundar njósn- ir í skjóli friðhelgis sendiráðs síns. Það er kunn staðreynd, að flestir njósnarar á vegum ríkisstjórna, hvar í veröldinni sem þeir starfa hverju sinni, hafa höfuðstöðvar sínar í sendiráði síns eigin ríkis. Þetta þýðir þó ekki að allir erlendir sendimenn séu njósnarar í þrengsta skilningi þess orðs, það er, Sendiráð Sovétríkjanna við Garðastræti. starfsmenn leyniþjónustu eða þess háttar stofnunar. Hins vegar nota leyniþjónust- ur venjulega sendiráð lands síns til njósnastarfsemi, ef þær telja sig þurfa. Margir hafa orðið til að gagnrýna það sem þeir kalla andvaraleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart hugsanlegri erlendri njósnastarfsemi hér á landi. fslensk stjórnvöld eru þó ekki svo alfarið úti að aka í þessum efnum eins og margir halda. Yfirvöld eru ekki endilega að auglýsa þær varúðarráðstafanir sem eru viðhafð- ar hverju sinni, ef grunur leikur á að ekki sé allt með felldu. Til að mynda hefur ekki farið hátt um miklar varúðarráðstafanir, sem gerðar voru á Alþingi fyrir nokkrum árum, þeg- ar þessari virðulegustu og æðstu stofnun landsins var færður veglegur postulíns- vasi að gjöf frá Sovétríkjunum. Vasinn góði, sem er hinn eigulegasti gripur, þótti einhverra hluta vegna varhugaverður. Enda dæmi mörg úr góðum og spennandi njósnasögum, að hljóðnemar og önnur galdratól séu falin innan um sakleysisleg blóm í fallegum postulínsvösum. Ekki veit höfundur þessarar greinar um ástæður þess að menn fóru að gruna vasann veglega um græsku, en ástæða þótti til að setja hann í rækilega rannsókn hjá sérfræðingum í slíkum málum. Það hefur ekki farið hátt, hvort rannsóknir á 60 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.