Heimsmynd - 01.12.1986, Page 117
Ásamt syni sínum og nafna
Þórhalli. „Hann kom eins og
sólargeisli. Við vorum svo ung
þegar við eignuðumst tvo eldri
synina að við kunnum ekki að
meta þá eins."
ALVÖRU
GRÍNKARL
Laddi og líf hans...
Laddi er að verða fertugur. Og hann er
að flytja í nýtt einbýlishús ásamt konu
sinni og þremur sonum. Á sama tíma er
hann að undirbúa ný skemmtiatriði
ásamt Gísla Rúnari fyrir vetrardagskrána
á Hótel Sögu. Þá er hann að leika í
heimildakvikmynd um ísland fyrir vest-
ur-þýska sjónvarpið, sem sýna á þar á
jóladag. Hann hefur fengið tilboð um að
koma til Þýskalands til frekari starfa fyrir
sjónvarpið. Hann verður potturinn og
pannan í áramótaskaupinu nú eins og
flest önnur áramót. Kvikmyndin Stella í
orlofi hefur víst gengið vel og Laddi sem
sænski alkóhólistinn á örugglega sinn
þátt í því.
Er Laddi eða Þórhallur Sigurðsson í
raun svona rosalega fyndinn? Hann hef-
ur náttúrutalent, segja flestir, og er einn
fárra íslenskra leikara sem fengið hefur
inngöngu í félagið þeirra án þess að
flagga formlegri skólagöngu.
Satt best að segja virkar Laddi í eigin
persónu enginn óstjórnlegur grínkarl.
Eins látlaus og litaraftið er litlaust, lýsir
hann sjálfum sér. Hárið ljóst, augun föl-
blá, augnhárin og augabrúnir mjög ljós.
„Þess vegna breytist ég svona mikið í
hinum og þessum gervum. Eins og til
dæmis Ómar tannlæknir í Litlu Hryllings-
búðinni, dökkur á brún og brá - og bara
þokkalega myndarlegur. Ég hef gúmmí-
andlit. Förðun gerir kraftaverk fyrir mig
og mína persónusköpun.“ Það vita þeir
sem þekkja Þórð húsvörð, Saxa lækni,
Eirík Fjalar og þá tugi karaktera sem
Laddi skapar.
HEIMSMYND 117